Ísfirðingur - 19.02.1975, Blaðsíða 4
Breyting á
Steingrímur Hermannsson,
alþingismaður, flytur ásamt
tveimur öðrum þingmönnum
efri deildar breytingartiliögu
við frumvarp til laga um
breytingu á vegalögum. Er í
tillögu þessari gert ráð fyrir
því, að af heildarframlagi,
sem veitt er til lagningar
þjóðvega í kaupstöðum og
kauptúnum skuli árlega 35 af
hundraði ráðstafað eftir til-
lögu vegamálastjóra að feng-
inni umsögn Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, til að
auðvelda kaupstöðum og
kauptúnum að flýta gerð vega
með bundnu slitlagi og jafna
vegalögum
þann mismun, sem er á milli
staða að þessu leyti.
í núgildandi vegalögum er
90 af hundraði af svonefndu
þéttbýlisfé úthlutað aðeins
eftir höfðatölu, en ekkert
tillit tekið til ástands á hinum
ýmsu stöðum. 10 af hundraði
er ráðstafað til sérstakra
verkefna samkvæmt ákvörðun
vegamálastjóra. Ef breitinga-
tillagan fæst samþykkt, mun
fást verulega aukið fjármagn
úr Vegasjóði tii varanlegrar
gatnagerðar í kaupstöðum og
kauptúnum, þar sem íbúar
eru yfir 200.
Frá FSateyri
í hvassviðrinu sem gekk
yfir í Önundafirði fyrir síð-
astliðna helgi fauk trilla á
Flateyri. Lenti hún á dælu-
útbúnaði bensínstöðvar Esso
þar á staðnum, lagði dæluna
alveg útaf, fauk síðan á stöðv-
arhúsið og braut gat á það.
Trillan brotnaði í spón.
★ ★ ★
Slysavarnardeildin Sæljós á
Flateyri hefur haldið uppi
margháttaðri starfsemi und-
anfarin ár til fjáröflunar. í
því sambandi skal þess getið
að á fyrra ári afhenti stjórn
deildarinnar framlag að upp-
hæð kr. 400 þúsund til kaupa
á sundlaug til Flateyrar.
Um sama leyti lagð íþrótta-
félagið Grettir á Flateyri
fram kr. 150 þúsund til kaupa
á sundlauginni.
Með þessu hafa þessi félaga-
samtök sýnt mikla fórnfýsi
og áhuga fyrir framfara- og
menningarmálum á staðnum.
★ ★ ★
Nýlega gaf Hjálmur h.f. á
Flateyri íþróttafélaginu Gretti
búninga á knattspyrnumenn
félagsins. Eru búningamir
með merki Hjálms. Þessi
ágæta gjöf mun vera að verð-
mæti um kr. 50 þúsund.
Þá hefur Allabúð ákveðið
að gefa búninga á handknatt-
leiksstúlkur félagsins. Verður
verslunin auglýst á búning-
unum.
Skipakomur til
ísafjarðar árið 1974
Á árinu 1974 voru skrá-
settar 751 skipakoma, samtals
421.224 brt.tn.
Þar af voru 286 skip og
bátar yfir 100 tonn, frá ísa-
firði. Auk þessara skipakoma,
fór m/s Fagranes samtals
240 ferðir á árinu.
Þá voru að jafnaði gerðir
út héðan rúmlega 50 bátar,
5 - 100 smálestir að stærð,
og 22-25 bátar undir 5 smá-
lestir að stærð, sem aðallega
eru gerðir út að sumrinu,
3-4 mánuði.
Komur þessara báta, undir
100 lestir eru um 5150, svo
að skipakomur alls til fsa-
fjarðarhafnar á árinu 1974,
eru um 6140.
Þá fór hafnsögubáturinn,
auk hafnsöguskildra skipa-
ferða, 77 ferðir öðrum til að-
stoðar, og stóðu þær ferðir
misjafnlega lengi.
Afgreidd voru 6764 tonn af
vatni til skipa og báta.
Skipting þessara 751 skipa-
koma, eftir gerð þeirra og
þjóðerni, er þessi:
166 íslensk frakt- og far-
þegaskip, 36 íslensk varð- og
vitaskip, 412 íslenskir togarar
og bátar yfir 100 tonn, 17
íslensk hafrannsóknarskip, 72
enskir togarar, 22 ensk að-
stoðarskip, 7 færeyskir togar-
ar, 5 færeysk fraktskip, 1
rússneskur togari, 1 spánskt
fraktskip, 11 norskir fiski-
bátar og 1 belgísk seglskúta.
751 skip samtals.
Drykkjusýki í Bandnríkjunum
9 milljónir bandaríkja-
manna eru drykkjusjúklingar
eða ofdrykkjumenn. Drykkja
eykst en neysla annarra vímu-
efna minnkar.
Drykkjusýki er nú meira
vandamál í Bandarikjunum en
aðrir sjúkdómar, að undan-
skildu krabbameini og hjarta-
og æðasjúkdómum. Gera má
ráð fyrir að drykkjusýki
stytti æviskeiðið um 10-12 ár.
Rúmur helmingur þeirra 55
þúsund bandaríkjamanna, sem
bana bíða í umferðarslysum
ár hvert, deyr í siysum þar
sem áfengi kemur við sögu.
Hjónaskilnaðir eru miklu
algengari meðal fólks, sem
neytir áfengis í óhófi, en
annarra.
Bandarískur iðnaður tapar,
að álitið er, 12 milljörðum
dala á ári vegna áfengisneyslu
starfsmanna.
(Heimild: Folket, 1. 1975).
I síðasta blaði var sagt frá skuttogaranum Dagrún og komu skipsins til Bolungar-
víkur þann 4. þ.m. Blaðið hafði þá ekki handbæra mynd af þessu fríða skipi, en mynd
af skipinu birtist hér með.
Sknttogorinn Dngrún ÍS-9
Aflabrögð á Vestfjör&um
í janúar 7975
Fádæma ógæftir voru ná-
lega allan janúarmánuð og
sjósókn erfið. Yfirleitt fékkst
þó góður afli, þegar gaf til
róðra. Afli var þó töluvert
misjaín hjá línubátunum,
jafnbeztur hjá bátunum frá
Djúpi og nyrðri Vestfjörðum.
Togbátarnir fengu einnig góð-
an afla, þrátt fyrir rysjótt
tíðarfar og mikil frátök. Bezt-
ur var aflinn fyrstu daga
ársins.
loðnuvertíð voru 5 bátar frá
Vestfjörðum.
Aflinn í einstökum ver- stöðvum:
PATREKSFJÖRÐUR : 1. r.
Vestri 130,6 17
Örvar 127,4 15
Jón Þórðarson 125,3 15
Gylfi 112,8 16
María Júlía 99,9 15
Garðar n. 88,2 9
Þrymur 83,2 11
Vísir 67,6 15
Bragi 35,7 12
Kristján 32,9 12
SUÐUREYRI:
Trausti tv. 171,1 4
Kristján Guðmunds. 155,5 18
Ólafur Friðbertsson 128,0 19
Sigurvon 110,6 19
BOLUNGARVÍK:
Sólrún 179,5 21
Guðmundur Péturs 152,6 21
Hugrún 147,7 21
Jakob Valgeir 52,5 16
Heildaraflinn í janúar var
5.010 lestir, en var 4.369 lestir
á sama tíma í fyrra. Af 33
bátum, sem stunduðu bolfisk-
veiðar í janúar, réru 25 með
línu, 7 með botnvörpu og 1
með net, en í fyrra réru 30
bátar með línu, 8 með botn-
vörpu og 1 með net.
Línubátarnir stunduðu allir
dagróðra, og var heildarafli
þeirra 2.581 lest í 406 róðrum
eða 6,36 lestir að meðaltali í
róðri. I fyrra var afli linu-
bátanna í janúar 2.691 lest
í 466 róðrum eða 5,77 lestir
að meðatali í róðri.
Aflahæsti línubáturinn í
mánuðininn var Sólrún frá
Bolungarvík með 179,5 lestir
í 21 róðri, en í fyrra var
Guðmundur Péturs frá Bol-
ungarvík aflahæstur með 173,6
lestir í 20 róðrum. Af togbát-
unum var Bessi Súðavík afla-
hæstur með 419,6 lestir. Bessi
var einnig aflahæsti togbátur-
inn í fyrra með 351,6 lestir.
Tveir bátar frá Vestfjörðum
stunda loðnuveiðar á þessari
loðnuvertíð, en á síðustu
ÍSAFJÖRÐUR:
TÁLKNAFJÖRÐUR Guðbjartur tv. 397,4 4
Tungufell 78,6 13 Guðbjörg tv. 393,7 3
Sölvi Bjarnason 72,3 15 Júlíus Geirmunds. tv. 300,8 3
Tálknfirðingur 56,6 11 Páll Pálsson tv. 297,0 3
Orri 158,6 19
BÍLDUDALUR: Víkingur m 130,5 20
Andri 64,4 15 Guðný 105,9 16
ÞINGEYRI: SÚÐAVÍK:
Framnes I tv. 356,0 3 Bessi tv. 419,6 4
Framnes 74,0 15
Framanritaðar aflatölur eru
FLATEYRI: miðaðar við óslægðan fisk.
Sóley 97,0 17 tv. = togveiðar.
HEILDARAFLINN í HVERRI VERSTÖÐ í JANÚAR:
1975: 1974:
Patreksfjörður 767 ( 465)
Tálknafjörður 208 ( 131)
Bíldudalur 64 ( 105)
Þingeyri 430 ( 532)
Flateyri 233 ( 168)
Suðureyri 571 ( 539)
Bolungarvik 534 ( 771)
ísafjörður 1.784 (1 CD O CO
Súðavík 419 ( 352)
5.010 (4 L369)