Ísfirðingur - 17.05.1975, Blaðsíða 1
25. árgangur.
ísafirði, 17. maí 1975.
11. tölublað.
Fundur um landsmál og
héraðsmál á Bíldudal
Fundur fulltrúa Fram-
sóknarfélaganna í Vestur-
Barðastrandarsýslu var hald-
inn á Bíldudai laugardaginn
10. iþ.m. Ásamt fulltrúum
félaganna mættu á fundinum
þeir Steingrímur Hermanns-
son og Ólafur Þ. Þórðarson.
Umræðuefni var bæði lands-
málin og málefni byggðarlag-
anna. Steingrímur talaði um
landsmálin almennt og kom
víða við. Hann veittí einnig
upplýsingar um fjárframlög
til héraðsins. Þá talaði hann
um samstarfið í ríkisstjórn-
inni.
Ólafur Þ. Þórðarson ræddi
um stöðu Vestfjarða þróunar-
lega séð, miðað við landið í
heild. Lagði hann sérstaka
áherslu á raunhæfar aðgerðir
í orkumálunum og þá fyrst
og fremst á sviði upphitunar
íbúðarhúsnæðis. Vakin var
athygli á sameiginlegum
kyndistöðvum og einnig því
sjálfsagða atriði að leita að
jarðvarma á svæðinu.
Margir fundarmenn tóku til
máls og urðu umræður hinar
fjörugustu. Þeir ræddu ýmsa
mikilsverða málaflokka og
báru fram fyrirspurnir, sem
þeir Steingrímur og Ólafur
svöruðu.
Á fundinum kom fram
óánægja með það, að Hús-
næðismálastjórnin fari sér
hægt í þeim efnum að notfæra
sér heimild í lögum um bygg-
ingu leiguíbúða, sem sveitar-
félögin hafa pressað á að
yrðu byggðar.
Fundarstjóri var Theódór
Bjarnason.
Sumaráætlun innanlands-
flugs
Þann 1. mai gekk sumar-
áætlun innanlandsflugs Flug-
félags íslands í gildi. Áætl-
unarflugið verður með svipuðu
sniði og á s.l. sumri. Til nokk-
urra staða fjölgar ferðum.
Til ísafjarðar verða tvær
ferðir mánudaga, miðviku-
daga, föstudaga, laugardaga
og sunnudaga, en ein ferð aðra
daga. Til Patreksfjarðar verð-
ur flogið á mánudögum mið-
vikudögum og föstudögum.
H eilsufarsrannsóknir
á vegum Hjartaverndar
í Húsmæðraskólanum á ísa-
firði standa nú yfir, á vegum
Hjartaverndar, fjölþættar
rannsóknir á fólki á aldrinum
41 til 60 ára. Rannsóknirnar
taka til þvagrannsóknar, blóð-
rannsóknar, sykurþolspróf-
unar, tekið er hjartalínurit,
mældur er augnþrýstingur í
leit að gláku og gerð eru
öndunarpróf. Fólk fær sendan
heim spurningalista, sem það
á að svara áður en það kemur
í skoðun.
Við rannsóknirnar starfa
þrjár hjúkrunarkonur: Guðrún
Gunnarsdóttir, Katrín Arndal
og Hrefna Pétursdóttir, svo
og Gunnlaug J. Magnúsdóttir,
sem er ritari rannsóknar-
stöðvarinnar.
Læknar stöðvarinnar eru:
Stefán B. Matthíasson og
Reynir Tómas Geirsson.
Stöðin er opin frá kl. 8
til 12 á hádegi. Áætlað er að
stöðin starfi í maí, júní og
ágúst.
Þátttaka í þessari hóp-
rannsókn er mjög góð.
Til Þingeyrar verða einnig
þrjár ferðir í viku á mánu-
dögum, miðvikudögum og
föstudögum. Á miðvikudögum
er Þingeyrarflug í sambandi
við flug tíl ísafjarðar. Milli
ísaf jarðar og Akureyrar verð-
ur flogið tvisvar í viku, á
mánudögum og föstudögum.
Eins og að undanförnu eru
möguleikar á hringflugi um
ísland í áföngum, þannig að
farþegar eiga þess kost að
fara frá Reykjavík til Isa-
fjarðar, þaðan til Akureyrar
og frá Akureyri til Egilsstaða.
Næsti viðkomustaður er Höfn
í Homafirði og þaðan síðan
flogið til Reykjavíkur. Við-
dvöl er hægt að hafa á öllum
þessum stöðum.
Tíðar áætlunarferðir bif-
reiða verða milli flugvalla og
nærliggjandi byggðarlaga í
sambandi við innanlandsflug
Flugfélagsins.
Messað í ísafjarðarkirkju á
hvítasunnudagsmorgun kl. 11.
Ath. breyttan messutíma.
Um orkumál
Vestfirðinga
Orkuöflun og framtíðar-
skipan orkumála á Vestfjörð-
um er óumdeilanlega eitt allra
mesta hagsmunamál Vestfirð-
inga og raunar forsenda fyrir
atvinnuöryggi og afkomu íbúa
Vestfjarðakjördæmis. Það er
'því mikils virði að allir, sem
haft geta áhrif á framvindu
þessara mála, vinni að þeim
af einurð og festu.
Fjórðungssamband Vestfirð-
inga hefur mikinn áhuga fyrir
framtíðarskipan þessara mála
og hefur unnið að þeim af
framsýni og fyrirhyggju. Á
þess vegum hefur verið starf-
andi milliþinganefnd um raf-
orkumál. Þau atriði sem
stjóm Fjórðungssambandsins
hefur lagt áherslu á að rædd
verði eru m.a.:
Að lögð verði raforku-
flutningslína, er tengi Vest-
firði við aðalorkuveitukerfi
landsins.
Að virkjuð verði fallvötn á
Vestfjörðum eftir að athugun
hefur farið fram um hag-
kvæmni.
Að stofnað verði eitt orku-
öflunar,— orkuflutnings og
orkudreifingarfyrirtæki á
Vestfjörðum.
Að sveitarfélögin á Vest-
fjörðum, sem eiga orkustöðvar
leggi þær, ásamt flutnings- og
dreifikenfi, fram endurgjalds-
laust, umfram áhvílandi
skuldir, gegn því að sama
gildi um eignir ríkisdns, að
uppfylltum ýmsum öðrum
skilyrðum.
Að þessi sameiginlega orku-
veita Vestfjarða eigi og reki,
auk raforkuvera og dreifi-
kerfis, fjarhitastöðvar ásamt
dreifikerfi fyrir heitt vatn,
í þéttbýlsstöðum á Vestfjörð-
um, og eigi auk þess og reki
jarðvarmaveitur, þar sem það
yrði talinn hagkvæmari kost-
ur en framangreindar fjar-
hitakyndistöðvar.
Á sameiginlegum fundi
stjórnar Fjórðungssambands
Vestfirðinga og milliþinga-
nefndar F.V. í orkumálum,
sem haldinn var á ísafirði
11. þ.m., var samþykkt að
fela framkvæmdarstjóra F.V.
að boða til aukaþings Fjórð-
ungssambandsins um orkumál
Vestfjarða. Aukaþingið verði
haldið eigi síðar en 15. júní
n.k. á þeim stað, sem hentug-
astur er miðað við samgöngur
í fjórðungnum.
Dagskrá þingsins verði:
1. Félagsst. Vestfjarðaveitu
er annast orkuöflun, flutning
og dreifingu á orku á félags-
svæðinu í formi raforku eða
varma.
2. Stefnumörkun um orku-
öflun, orkunotkun og kyndi-
stöðvar eða hitaveitur á
félagssvæðinu.
Eftírfarandi ályktun var
einnig samþykkt á fundinum:
Fundur í stjóm Fjórðungs-
sambandsins og milliþinga-
nefnd þess í raforkumálum,
hvetur til þess, að lögð verði
byggðalína tíl Vestfjarða svo
fljótt sem verða má.
Árnað
heilla
GUÐBJÖRG TORFADÓTTIR,
Stekkjargötu 40 Hnífsdal, er
75 ára á morgun 18. maí. Á
afmælisdaginn tekur Guð-
björg á móti gestum á heimili
sonar síns og tengdadóttur,
Holti Hnífsdal.