Ísfirðingur


Ísfirðingur - 06.09.1975, Síða 1

Ísfirðingur - 06.09.1975, Síða 1
/ l/ESTFJARÍMKJORMMI 25. árgangur. ísafirði 6. september 1975. 16. tölublað Kjördæmisþingið 1975 K J ÖRDÆMISÞIN G Fram- sóknarmanna í Vestfjarða- kjördæmi, það 16 i röðinni, var haldið á ísafirði .föstu- daginn 22. og laugardaginn 23. ágúst s.l. Þingið var haldið í Sjómannastofunni, en nefndafundir voru einnig haldnir í skrifstofu flokksins. Form. kjördæmissambands- ins, Eysteinn G. Gíslason, setti þingið cg bauð gesti og fulltrúa velkomna til þing- haldsins. Forsetar þingsins voru kjörnir þeir Svavar Jóhannsson, Patreksfirði og Eiríkur Sigurðsson, ísafirði. Ritarar voru kosnir þeir Svavar Júlíusson, Kristinn Snæland og Fylkir Ágústsson. í kjörbréfanefnd voru kosin Birna Einarsdóttir, Gunnar Leósson og Ólafur Magnúsison Eftir að kjörbréfanefndin hafði athugað kjörbréf full- trúa voru þau öll samþykkt. Alþingismennirnir Steingrím- ur Hermannsson og Gtrnn- 'laugur Finnsson sátu þingið. Eysteinn G. Gíslason fiutti skýrslu stjórnarinnar og ræddi þau málefni sem stjórn- in hafði fjaHað um milli þinga. Gjaldkeri sambandsins, Fylkir Ágústsson, las upp og skýrði endurskoðaða, reikn- inga þess og voru þeir sam- þykktir. Jón Á. Jóhannsson gerði grein fyrir reikningum blaðsins ísfirðingur, sem höfðu verið endurskoðaðir, og voru þeir einnig samþykktir. Á kjördæmisþinginu 1974 var stjórn kjördæmissam- bandsins falið að endurskoða lög þess og leggja tillögur sínar fyrir næsta þing, það er það þing sem nú var haldið. Eysteinn G. Gíslason lagði fram tillögur stjórnarinnar um breytingar á lögunum og ræddi þær og skýrði mjög ítarlega. Nokkrar umræður urðu um tillögur stjórnar- innar, en að þeim loknum var málinu vísað til laganefndar. Á þinginu störfuðu þessar nefndir: Laganefnd, fram- sögumaður Halldór Kristjáns- son. Stjómmálanefnd, fram- sögumaður Torfi Guðbrands- son. Allsherjamefnd, fram- sögumaður Kristinn Snæland. Þessu næst hófust almenn- ar stjómmálaumræður. Fyrst- ur talaði Steingrímur Her- mannsson, alþingismaður. Ræddi hann um stjórnmálin almennt, svo sem orkumál, vegamál, landhelgism., hafna- Eysteinn G. Gíslason, Steingrímur ermannsson mál o.fl. Næstur talaði Gunn- laugur Finnsson, alþingis- maður, sepi talaði um fjárlög ríkisins, tekjur þeirra og gjöld, niðurskurð fjárlaga o.fl. Að loknum yfirlitsræðum þingmannanna hófust almenn- ar umræður og tóku margir til mál-s. Alþ ingi smennirnir svömðu margskonar spurn- ingum ræðumanna um lands- málin og sérmál kjördæmis- ins. Umræðurnar stóðu langt fram á kvöld. Nefndir Þingsins s-törfuðu frá klukkan 9 á laugardags- morgun til hádegis. Klukkan 1 e.h. hófust þingstörf aftur og voru þá tekin fyrir álit nefnda. Fyrst var tekið fyrir álit -laganefndar og tóku nokkrir til máls. Að sam- þykktum nokkrum orðalags- breytingum var frumvarpið um lagabreytingarnar sam- þykkt samhljóða. Næst voru teknar fyrir Svavar Jóhannsson. Gunnlaugur Finnsson. ályktanir aHsherjarnefndar. Um þær urðu nokkrar um- ræður, en að þeim loknum voru ályktanir samþykktar samhljóða. Ályktanirnar verða birtar í næsta blaði. Þá var tekin fyrir ályktun stjórnmálanefndar. Nokkrar umræður urðu um ályktun- ina, en að þeim loknum var ályktunin samþykkt sam- hljóða. Stjórnmálaályktunin verður birt í næsta blaði. Kosningar. í stjórn kjördæmissam- bandsins voru kosnir: Ey- steinn G. Gíslason, formaður og Ólafur Þ. Þórðarson, vara- formaður. Aðrir í stjórn eru Svavar Jóhannsson, Karl Loftsson, Fylkir Ágústsson og Heiðar Guðbrandsson. Varamenn í stjórn: Brynjólfur Sæmundsson, Geir Framhald á 2. síðu Ólafur Jóhannesson. Eiríkur Sigurðsson. Héraðsmótið FRAMSÓKNARFÉLAG ís- firðinga ' hélt héraðsmót í félagsheimilinu í Hnifsdal laugardaginn 23. ágúst s.l. og hófst mótið klukkan 20,30. Formaður Framsóknarfél- ags ísfirðinga, Eiríkur Sig- urðsson, setti mótið og stjórn- aði því. Hann bauð gesti vel- komna og kynnti dagskrá. Sérstaklega bauð hann vel- kominn formann Framsóknar- flokksins, Ólaf Jóhannesson og frú hans, svo og alþingis- mennina Steingrím Hermanns- son og Gunnlaug Finnsson. Ræður á mótinu f-luttu þeir Ólafur Jóhannesson ráðherra og Steingrímur Hermannsson alþingism. Var mjög góður rómur gerður að ræðum þeirra. Óperusöngvararnir Svala Níel-sen og Guðmundur Jóns- son sungu einsöng, svo og saman, við undirleik Agnesar Löve. Var þessu ágæta lista- fól-ki mjög innilega fagnað. Hljómsveitin Villi, Gunnar og Haukur léku fyrir dans- inum. Héraðsmótið var ágætlega sótt. Or ræðu Ólafs Jóhannessonar: Ólafur hóf mál sitt með því að greina frá þeirri ánægju- legu ferð, sem hann hafði farið um hinn nýja Djúpveg. Hann ræddi síðan um nokkur verkefni, sem hann taldi einna mikilvægust framundan. Hann ræddi í því sam- bandi um nauðsynlega endur- skoðun vinnulöggjafarinnar, sem hann taldi mjög ábóta- vant. Hann sagði það ekki æskilegt að hér á landi mynd- ist stétt manna, sem ekki hefði annað hlutverk en það, að semja árið um kring um kaup og kjör og lýsti þeim furðulegu vinnubrögðum sem viðgangast yfir samnings- borðið og óþolandi að verk- faU eftir verkfall innan sömu atvinnugreinar, eða mjög litlir hópar, geti stöðvað viðkomandi atvinnugrein án tiUits til hei'ldarinnar. Ólafur lagði áherslu á, að vinnulög- gjöfin ætti að tryggja sam- tökum hinna ýmsu stétta fuH- an og traustan rétt til samn- inga um kaup sitt og kjör, en jafnframt atvinnugreinunum heilbrigðan starfsgrundvöll. Þá ræddi Ólafur um efna- hagsmálin og nauðsyn þess, að verðbólga verði hér ekki meiri en hún er á hverjum tíma í nágrannalöndunum. Hann kvað að þessu stefnt með ýmsum aðgerðum ríkis- stjórnarinnar og nokkuð hefði miðað í rétta átt. Hann sagði nauðsynlegt að halda áfram því uppbyggingarstarfi, sem hafið væri um land aUt, þótt ef til viH þyrfti eitthvað úr því að draga um stund, fyrst og fremst vegna fjárhags- erfiðleika ríkissjóðs. Atvinna væri alls staðar næg og fram- kvæmdir miklar. Ólafur ræddi um útfærslu fiskveiðilögsögunnar. Hann taldi, að við íslendingar þyrftum að öllum líkindum að ganga í gegnum svipaða eldraun og átök, eins og við höfum þurft við fyrri útfærsl- ur, áður en við fáum fuU yfirráð yfip 200 sjómilna fiskveiðilögsögu. Hann lagði jafnframt áherslu á, að þær þjóðir, sem veitt hafa áður hér við land og við okkur hafa viljað semja, hafa Framhald á 4. síðu.

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.