Ísfirðingur - 04.10.1975, Side 1
BLAÐ TRAMSOKNAKMANNA / Í/ES TFJARÐAKJORDÆMI
25. árgangur. Isafirði, 4. október 1975. 18. tölublað.
Fjdröungsþing Vestfirö
inga 1915
Bygglng sjúkrahúss og
heilsugæslustöðvar
BYGGING sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar á ísafirði
hófst 16. september s.l. með því að Matthías Bjarnason,
ráðherra heilbrigðismála, tók fyrstu skóflustunguna
í grunni hússins.
Við þessa athöfn flutti Aage Steinsson, formaður
byggingarnefndar, ræðu og rakti aðdraganda og undir-
búning byggingarframkvæmdanna og flutti þakkir
öllum sem að málinu hafa unnið. Þeir aðilar sem að
byggingu hússins standa eru kaupstaðirnir ísafjörður
og Bolungarvík og allir hreppar í fsafjarðarsýslum
nema Auðkúluhreppur.
Byggingin verður þrjár hæðir og turn. Jarðhæðin
verður grafin niður um tæplega einn meter. Þar verður
eldhús, þvottahús, kynditæki, endurhæfingarstöð, bún-
ingsherbergi o.fl. Heilsugæslustöðin verður á næstu hæð,
aðstaða fyrir fjóra tannlækna, þrjár læknamóttökur,
aðstaða til hópskoðunar og mæðra- og ungbarnaeftirlit,
rannsókna- og röntgenstofa, skurðstofudeild, aðstaða
vegna slysatilfella, borðsalur og þar verða einnig skrif-
stofur héraðslæknis og héraðshjúkrunarkonu. Á þriðju
hæðinni verða legudeild og lyflæknadeild, 26 rúm í
handlæknadeild og 26 rúm í lyflæknadeild. Þar verður
einnig gjörgæsludeild, fæðingarstofa og setustofa. í
turninum verður bókasafn o.fl. í húsinu verða þrir
stigagangar og ein aðallyfta.
Eftir athöfnina á grunni hússins bauð heilbrigðismála-
ráðherra til kaffidrykkju á Mánakaffi.
Það er vissulega fagnaðarefni að nú skuli vera hafin
bygging sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar hér í bænum,
og er þess að vænta að framkvæmdir allar gangi greið-
lega.
F J ÓRÐUN GSÞIN G Vestfirð-
inga var að þessu sinni haldið
í bamas’kólahúsinu á Klúku í
Kaldrananeshreppi, Stranda-
sýslu dagana 13.—14. sept. s.l.
Forsetar þingsins voru kjörnir
Jóhann T. Bjarnason
Karl E. Loftsson, Hólmavík
og Magnús Gunnlaugsson,
Ytra-Ósi, Hrófbergshreppi.
Ritarar þingsins voru Þórir H.
Einarsson, Drangsnesi og
Guðjón Jónsson, Gestsstöðum.
Formaður stjórnar Fjórð-
ungssambands Vestfirðinga,
Ólafur Þ. Þórðarson, flutti
skýrslu stjórnarinnar og
framkvæmdastjóri sambands-
ins, Jóhann T. Bjarnason,
flutti skýrslu um það sem
unnið var að á milli þinga.
EINS og sagt var frá í síð-
asta blaði, sem út kom 20. fm.
hafði Sinfóníuhljómsveit ís-
íands þá ákveðið tónleikaför
um Vestfirði dagana 24.—29.
september. Voru tónleikar
haldnir þessa daga á Þingeyri,
Bolungarvík, ísafirði, Flat-
eyri og Bíldudal.
Á ísafirði voru tónleikarnir
haldnir í Alþýðuhúsinu 27.
september s.l. fyrir troðfullu
húsi af þakklátum áheyrend-
um. Stjórnandi og einleikari
á píanó var Vladimir Ashke-
nazy.
Gunnar Thoroddsen, iðnaðar-
ráðherra, flutti framsögu-
erindi um skipan orkumála á
Vestfjörðum í náinni framtíð
og Sigfús Jónsson, frá Fram-
kvæmdastofnun ríkisins, flutti
Ólafur Þ. Þórðarson
framsöguerindi um væntan-
lega Vestfjarðaáætlun og
byggðaþróun á Vestfjörðum.
Um bæði framsöguerindin
urðu umræður og fyrirspumir.
í upphafi skýrslu sinnar
flutti formaður stjórnarinnar
Jóhanni T. Bjarnasyni, fram-
kvæmdastjóra, þalkkir fyrir
vel unnin störf og gott sam-
starf. Hann flutti einnig
stjórnarmönnum sambandsins
þakkir fyrir ánægjulegt og
snurðulaust samstarf. Ólafur
Vladimir Ashkenazy stjórn-
aði tónleikunum af miklum
þrótti og myndugleik, en hann
er, eins og flestir vita píanó-
snillingur á heimsmælikvarða.
Vestfirðingar eru þakklátir
Sinfóníuhljómsveitinni fyrir
komuna og vænta þess að
framhald geti orðið á tón-
leikaferðum hennar um Vest-
firði.
Fararstjóri á þessu ferða-
lagi var Þorsteinn Hannesson,
tónlistarstjóri Ríkisútvarps-
ins.
sagði m.a. að tólf stjórnar-
fundir hefðu verið haldnir á
árinu og höfuð verkefni þeirra
verið að vinna að framgangi
þeirra mála sem Fjórðungs-
þing hafði ályktað um. Unnið
var að umsögnum um þing-
mál, sem óskað var umsagnar
um. Hann drap á ýmis veiga-
mikil mál, sem stjórn Fjórð-
ungssambandsins fjaliaði um
og nefndi í því sambandi sam-
göngumál, gatnagerðargjöld,
vöruflutninga, húsnæðismál
og orkumál, en það hefði
verið aðalmál stjórnarinnar að
koma hreyfingu á orkumálin.
Jóhann T. Bjarnason flutti
ítarlega ræðu um þau málefni
sem unnið var að á árinu á
vegum Fjórðungssambandsins
Hann sagði fyrst, að sú venja
hefði skapast, að halda
Fjórðungsþingin til skiptis á
ýmsum stöðum á Vestf jörðum
í því fælist m.a. „undirstrikun
á þeirri samheldni, sem
Fjórðungssambandinu er ætl-
að að skapa meðal sveitar-
félaganna á Vestfjörðum”.
Jóhann sagði að Strandasýsla
væri sá hluti Vestfjarða, sem
hvað mest hefði átt í vök að
verjast hvað fólksfækkun
snertir. Þess væri að vænta,
að áætlun sú, fyrir Norður-
land vestra og Strandabyggð,
sem verið væri að vinna hjá
Framkvæmdastofnun ríkisins
og sem Fjórðungssambandið
hefði lagt starf í, geri þeim
málum þau skil, sem að gagni
mættu verða. I Strandasýslu
væri traust fólk, sem treysti
á sjálft sig fremur en aðra
og gerði ekki óhóflegar kröfur
á hendur samfélaginu. Nú
væri hafið uppbyggingarstarf
í landbúnaði í sýslunni á
félagslegum grundvelli og
væri þess að vænta að það
reyndist giftudrjúgt fyrir
Strandabyggð alla.
Framkvæmdastjórinn fjalaði
um landshlutasamtökin í ræðu
sinni og sagði að staða þeirra
væri ennþá óbreytt. Alþingis-
menn hefðu ekki kornið sér
saman um, „að viðurkenna
stöðu landshlutasamtakanna
með breytingu á lögum um
sveitarstjórnarmál, þar sem
kveðið væri á um vérkefni
og hlutverk þeirra í stjórn-
sýslukerfinu”. Hann þakkaði
þeim alþingismönnum sem
jafnan væru fúsir til sam-
starfs við landshlutasamtökin.
Hann ræddi um fólksfækk-
unina á Vestfjörðum og sagði
m.a. að Vestfirðir væri nú
eini landshlutinn þar sem um
beina fólksfækkun væri að
ræða.
Um varanlega gatnagerð
fjaliaði framkvædastjórinn í
ræðu sinni og nefndi í því
sambandi ýmis verkefni sem
unnið hefði verið að. Hann
lét í ljós ánægju sína yfir því
að Vegagerð ríkisins og Rann-
sóknarstofnun fiskiðnaðarins
hefðu komið upp útibúum á
Vestfjörðum og sagði að þær
stofnanir hefðu mikilsverðu
hlutverki að gegna. Þá gerði
hann að umtalsefni Vest-
fjarðaáætlun og orkumál, en
eins og að ofan segir voru
flutt framsöguerindi um þau
mál bæði á þinginu og um
þau mikið rætt. Hann talaði
um framvæmd Inn-Djúps-
áætlunar, húsnæðismál, vega-
mál, útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar og ýmsa aðra mála-
flokka.
Hér á eftir verða birtar
ályktanir sem gerðar voru á
Fjórðungsþinginu:
Um orkumál:
„Fjórðungsþing Vestfirð-
inga 1975, skorar á Alþingi
og iðnaðarráðherra að hraða
sem mest ákvörðunartöku og
framkvæmdum til lausnar
orkuvanda Vestfirðinga.
Fjórðungsþingið minnir á,
að nú þegar búa Vestfirðingar
við mikinn orkuskort og að
ijóst er, að sá viðauki, sem
fæst þegar Mjólká n tekur
til starfa, mun verða að fullu
nýttur og meir en það árið
1977.
Jafnframt leggur þingið
áherzlu á, að í hverjum þétt-
býlisstað og á Barðaströnd,
verði að koma upp nægu vara-
afli í formi díselrafstöðva
og/eða kyndistöðva.
Framhald á 4. síðu.
Tónleikaferð um Vestfirði