Ísfirðingur


Ísfirðingur - 04.10.1975, Qupperneq 1

Ísfirðingur - 04.10.1975, Qupperneq 1
BLAÐ TRAMSOKNAKMANNA / Í/ES TFJARÐAKJORDÆMI 25. árgangur. Isafirði, 4. október 1975. 18. tölublað. Fjdröungsþing Vestfirö inga 1915 Bygglng sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar BYGGING sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar á ísafirði hófst 16. september s.l. með því að Matthías Bjarnason, ráðherra heilbrigðismála, tók fyrstu skóflustunguna í grunni hússins. Við þessa athöfn flutti Aage Steinsson, formaður byggingarnefndar, ræðu og rakti aðdraganda og undir- búning byggingarframkvæmdanna og flutti þakkir öllum sem að málinu hafa unnið. Þeir aðilar sem að byggingu hússins standa eru kaupstaðirnir ísafjörður og Bolungarvík og allir hreppar í fsafjarðarsýslum nema Auðkúluhreppur. Byggingin verður þrjár hæðir og turn. Jarðhæðin verður grafin niður um tæplega einn meter. Þar verður eldhús, þvottahús, kynditæki, endurhæfingarstöð, bún- ingsherbergi o.fl. Heilsugæslustöðin verður á næstu hæð, aðstaða fyrir fjóra tannlækna, þrjár læknamóttökur, aðstaða til hópskoðunar og mæðra- og ungbarnaeftirlit, rannsókna- og röntgenstofa, skurðstofudeild, aðstaða vegna slysatilfella, borðsalur og þar verða einnig skrif- stofur héraðslæknis og héraðshjúkrunarkonu. Á þriðju hæðinni verða legudeild og lyflæknadeild, 26 rúm í handlæknadeild og 26 rúm í lyflæknadeild. Þar verður einnig gjörgæsludeild, fæðingarstofa og setustofa. í turninum verður bókasafn o.fl. í húsinu verða þrir stigagangar og ein aðallyfta. Eftir athöfnina á grunni hússins bauð heilbrigðismála- ráðherra til kaffidrykkju á Mánakaffi. Það er vissulega fagnaðarefni að nú skuli vera hafin bygging sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar hér í bænum, og er þess að vænta að framkvæmdir allar gangi greið- lega. F J ÓRÐUN GSÞIN G Vestfirð- inga var að þessu sinni haldið í bamas’kólahúsinu á Klúku í Kaldrananeshreppi, Stranda- sýslu dagana 13.—14. sept. s.l. Forsetar þingsins voru kjörnir Jóhann T. Bjarnason Karl E. Loftsson, Hólmavík og Magnús Gunnlaugsson, Ytra-Ósi, Hrófbergshreppi. Ritarar þingsins voru Þórir H. Einarsson, Drangsnesi og Guðjón Jónsson, Gestsstöðum. Formaður stjórnar Fjórð- ungssambands Vestfirðinga, Ólafur Þ. Þórðarson, flutti skýrslu stjórnarinnar og framkvæmdastjóri sambands- ins, Jóhann T. Bjarnason, flutti skýrslu um það sem unnið var að á milli þinga. EINS og sagt var frá í síð- asta blaði, sem út kom 20. fm. hafði Sinfóníuhljómsveit ís- íands þá ákveðið tónleikaför um Vestfirði dagana 24.—29. september. Voru tónleikar haldnir þessa daga á Þingeyri, Bolungarvík, ísafirði, Flat- eyri og Bíldudal. Á ísafirði voru tónleikarnir haldnir í Alþýðuhúsinu 27. september s.l. fyrir troðfullu húsi af þakklátum áheyrend- um. Stjórnandi og einleikari á píanó var Vladimir Ashke- nazy. Gunnar Thoroddsen, iðnaðar- ráðherra, flutti framsögu- erindi um skipan orkumála á Vestfjörðum í náinni framtíð og Sigfús Jónsson, frá Fram- kvæmdastofnun ríkisins, flutti Ólafur Þ. Þórðarson framsöguerindi um væntan- lega Vestfjarðaáætlun og byggðaþróun á Vestfjörðum. Um bæði framsöguerindin urðu umræður og fyrirspumir. í upphafi skýrslu sinnar flutti formaður stjórnarinnar Jóhanni T. Bjarnasyni, fram- kvæmdastjóra, þalkkir fyrir vel unnin störf og gott sam- starf. Hann flutti einnig stjórnarmönnum sambandsins þakkir fyrir ánægjulegt og snurðulaust samstarf. Ólafur Vladimir Ashkenazy stjórn- aði tónleikunum af miklum þrótti og myndugleik, en hann er, eins og flestir vita píanó- snillingur á heimsmælikvarða. Vestfirðingar eru þakklátir Sinfóníuhljómsveitinni fyrir komuna og vænta þess að framhald geti orðið á tón- leikaferðum hennar um Vest- firði. Fararstjóri á þessu ferða- lagi var Þorsteinn Hannesson, tónlistarstjóri Ríkisútvarps- ins. sagði m.a. að tólf stjórnar- fundir hefðu verið haldnir á árinu og höfuð verkefni þeirra verið að vinna að framgangi þeirra mála sem Fjórðungs- þing hafði ályktað um. Unnið var að umsögnum um þing- mál, sem óskað var umsagnar um. Hann drap á ýmis veiga- mikil mál, sem stjórn Fjórð- ungssambandsins fjaliaði um og nefndi í því sambandi sam- göngumál, gatnagerðargjöld, vöruflutninga, húsnæðismál og orkumál, en það hefði verið aðalmál stjórnarinnar að koma hreyfingu á orkumálin. Jóhann T. Bjarnason flutti ítarlega ræðu um þau málefni sem unnið var að á árinu á vegum Fjórðungssambandsins Hann sagði fyrst, að sú venja hefði skapast, að halda Fjórðungsþingin til skiptis á ýmsum stöðum á Vestf jörðum í því fælist m.a. „undirstrikun á þeirri samheldni, sem Fjórðungssambandinu er ætl- að að skapa meðal sveitar- félaganna á Vestfjörðum”. Jóhann sagði að Strandasýsla væri sá hluti Vestfjarða, sem hvað mest hefði átt í vök að verjast hvað fólksfækkun snertir. Þess væri að vænta, að áætlun sú, fyrir Norður- land vestra og Strandabyggð, sem verið væri að vinna hjá Framkvæmdastofnun ríkisins og sem Fjórðungssambandið hefði lagt starf í, geri þeim málum þau skil, sem að gagni mættu verða. I Strandasýslu væri traust fólk, sem treysti á sjálft sig fremur en aðra og gerði ekki óhóflegar kröfur á hendur samfélaginu. Nú væri hafið uppbyggingarstarf í landbúnaði í sýslunni á félagslegum grundvelli og væri þess að vænta að það reyndist giftudrjúgt fyrir Strandabyggð alla. Framkvæmdastjórinn fjalaði um landshlutasamtökin í ræðu sinni og sagði að staða þeirra væri ennþá óbreytt. Alþingis- menn hefðu ekki kornið sér saman um, „að viðurkenna stöðu landshlutasamtakanna með breytingu á lögum um sveitarstjórnarmál, þar sem kveðið væri á um vérkefni og hlutverk þeirra í stjórn- sýslukerfinu”. Hann þakkaði þeim alþingismönnum sem jafnan væru fúsir til sam- starfs við landshlutasamtökin. Hann ræddi um fólksfækk- unina á Vestfjörðum og sagði m.a. að Vestfirðir væri nú eini landshlutinn þar sem um beina fólksfækkun væri að ræða. Um varanlega gatnagerð fjaliaði framkvædastjórinn í ræðu sinni og nefndi í því sambandi ýmis verkefni sem unnið hefði verið að. Hann lét í ljós ánægju sína yfir því að Vegagerð ríkisins og Rann- sóknarstofnun fiskiðnaðarins hefðu komið upp útibúum á Vestfjörðum og sagði að þær stofnanir hefðu mikilsverðu hlutverki að gegna. Þá gerði hann að umtalsefni Vest- fjarðaáætlun og orkumál, en eins og að ofan segir voru flutt framsöguerindi um þau mál bæði á þinginu og um þau mikið rætt. Hann talaði um framvæmd Inn-Djúps- áætlunar, húsnæðismál, vega- mál, útfærslu fiskveiðilögsög- unnar og ýmsa aðra mála- flokka. Hér á eftir verða birtar ályktanir sem gerðar voru á Fjórðungsþinginu: Um orkumál: „Fjórðungsþing Vestfirð- inga 1975, skorar á Alþingi og iðnaðarráðherra að hraða sem mest ákvörðunartöku og framkvæmdum til lausnar orkuvanda Vestfirðinga. Fjórðungsþingið minnir á, að nú þegar búa Vestfirðingar við mikinn orkuskort og að ijóst er, að sá viðauki, sem fæst þegar Mjólká n tekur til starfa, mun verða að fullu nýttur og meir en það árið 1977. Jafnframt leggur þingið áherzlu á, að í hverjum þétt- býlisstað og á Barðaströnd, verði að koma upp nægu vara- afli í formi díselrafstöðva og/eða kyndistöðva. Framhald á 4. síðu. Tónleikaferð um Vestfirði

x

Ísfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.