Ísfirðingur


Ísfirðingur - 11.06.1976, Blaðsíða 1

Ísfirðingur - 11.06.1976, Blaðsíða 1
BiAÐ TRAMSOKNAmANNA / i/ESJFJARÐAKJÖKDÆM! 26. árgangur. ísafirði, 11. júní 1976 13. tölublað. Menntaskúlanum á ísafirði slitið Menntaskólanum á ísafirði var slitið laugardaginn 5. þ.m., og lauk þar með 6. starfsári skólans. Skólasiita- athöfnin fór fram í Alþýðu- húsinu á Isafirði kl. 4 síðd., að viðstöddu mi'Mu fjöimenni. Um kvöldið var efnt til stúdentafagnaðar í samkomu- sal skólans á Torfnesi. Þá samkomu sátu um 150 manns. 35 stúdentar voru braut- skráðir að þessu sinmi. Hæstu einkunnir hlutu: Jónas Guð- mundsson frá Siglufirði, af eðlisfræðikjörsviði með fulln- aðareinkunn 8.0, Stefán Jó- hann Stefánsson, frá ísafirði, af náttúrufræðikjörsviði með fullnaðareinkunnina 7.8 og Sigríður Hrafnkeisdóttir, frá ísafirði, af félagsfræðakjör- svóði með fullnaðareinkunina 7.8. Skólameistarinn, Jón Bald- vin Hannibalsson, ræddi í upphafi um starfsemi skólans og þar á meðal um helstu nýmæli, sem upp voru tekin á liðnu skólaári. Hann ræddi eimnig um samstarf sem skól- inn hefur við aðra skóla í bænum. Alls var 161 nemandi við skólann í vetur, 79 stúlkur og 82 piltar. Nemendur frá ísafirði voru 70, 32 voru annars staðar frá af Vest- fjörðum, en 59 búsettir utan Vestfjarða. Alls störfuðu 17 kennarar við skólann á liðnu starfsári, 12 fastráðnir og 5 stundakennarar. Félagslíf nemenda var fjölbreytt og ágætt í vetur. Sólrisuhátíðin var haldin 21. til 28. marz og tókst hún að vanda mjög vel. Skólirun hefur útskrifað 94 stúdenta á þremur árum. Þar af eru 37 stúlkur og 57 piltar. Af stúdentafjöldanum þessi 3 ár eru 41 frá ísafirði, 29 annars staðar af Vestfjörð- um og 24 utan Ves>tfjarða. í fyrsta bekk skólams náði bestum námsárangri Hanna Jóhannesdóttir frá ísafirði með fullnaðareinkunnina 8.6. Á öðru ári náði bestum ár- angri Rúnar Helgi Vignisson frá ísafirði með fullnaðar- eimkunnina 9.3, sem er hæsta fullnaðareinkunn sem teMm hefur verið við skólann frá upphafi. Á þriðja ári náði bestum árangri Steindór G. Kristjánsson frá Kirkjubóli í Nauteyrarhreppi með fulln- aðareinkunnina 8.7. Dúxinn úr hópi nýstúdenta, Jónas Guðmundsson, frá Siglufirði, hlaut verðlaun úr aldarafmælissjóði ísafjarðar- kaupsitaðar, sem námu 40 þús. kr. Jómas flutti ræðu við skólaslitin, þar sem hann kvaddi skólanm, skólameistara og kennara f.h. bekkjarsyst- kina, þakkaði fyrir dvöl sína í skólanum og árnaði honum allra heilla í framtíðinni. 14 nemendur 'hlutu sérstaka viðurkenningu við skólaslitin fyrir framúriskarandi árangur í einstökum námsgreinum. Skólameistari kvaddi út- skrifaða stúdenta með ræðu og sagða Menntaskólanum á ísafirði slitið. Þingmálafundir fund á Flateyri þriðjudaginn 1. þ.m. og á Þingeyri hélt hanin einmig þinigmálafund miðvikudaginn 2. þ.m. Báðir fundirnir hófust klufckan 9 síðdegiis. Gunnlaugur Finnsson, al- þingismaður, hélt þingmála- í framsöguræðum sínum á fundunum fjallaði Gunnlaugur um margvísleg málefni svo sem efnahagsmálin, orkumál- in, landhel'gismálið, hafna- mállin, skólamál o.fl'. Á fund- unum urðu fjörugar umræður um þessi og önnur mál og svaraði alþingiism. fyrir- spurnum sem fram voru bornar. Sabína eyjan fagra Um mánaðarmótin maí-júní frumsýndi Litli LeikMúbbur- inn nýtt íslenskt leikrit „Sabína eyjan fagra”, eftir Hafliða Magnússon á Bíldu- dal. Þetta er annað leikritið eftir Hafíiða sem ísfirðing- um hefur gefist fcostur á að sjá. Hið fyrra var leikrit hans um Gísda Súrsson, sem Mennt- skælingar færðu upp. Margrét Óskarsdóttir leik- stýrði báðum þessum verk- um. „Sabína” er einföld mynd af íslandi og því þjóðfélagi sem við lifum í. Þar er fjaU- að á gamansaman hátt um hinn stritandi verkalýð, verðhækkanir á landbúnaðar- vörum, kaupmátt launa, út- gerðarmenn sem aldrei borga skatt, því útgerðin er altaf á hausnum. Uppmælingamenn sem fá fimmfalt meiri kaup- hæfcfcun en verkalýðurinn í 'hvert sinn sem samið er, og síðast en ekki síst hið fræga Bæjarmálefni Elliheimilismál Á síðasta bæjarstjómar- fundi 28. maí urðu miMar umræður um þá tillögu meiri- hlutans að hefja byggingu þriggja smáhýsa á byggingar- reitnum í Bó'tinni, og láta þar með byggingu elliheimilis lönd og leið um ókomna framtíð. Því er borið við að landhelgismál okkar íslend- inga. Óhætt er að segja að Mar- gréti haifi enn sem fyrr teMst leikstjómin vel. Leikmynd var einföld og skemmtileg, söguatriðin voru verulega góð og allar hreyfingar leik- enda einfaldar og hnitmiðað- ar í samræmi við sextann. Lögin sem einnig eru eftir Hafliða vom snotur og létu vel í eyrum. Alls tóku 15 manns þátt í sýningunum, þar af margir nýliðar og gaman var að sjá hvað hver og einn skilaði sínu verki yfirleitt vel. Að öllum öðrum ólöstuðum vakti leikur þeirra Margrétar Geirsdóttur í hlutverM verka- konunnar og Helga Björns- sonar sem Áslákur Amer verðskuldaða athygli. Eitt skemmtilegasta og jafnframt vandmeðfarnasta hlutverMð, Framhald á 2. síðu lóðin sé efcki tiibúin. Það sýnir hug meirihluta bæjar- stjórnar til byggingar eJM- heimilis, að búið er að fylla upp stór svæði undir væntan- legan fjölbrautarskóla, sem óvíst er að verði nofckurn- tíma byggður, en látið ógert að fyla upp það svæði sem þurfti að ljúka við vegna byggingar elhheimils. Ef hraða ætti að ljúfca við lóð undir eliheimili þyrfti að flytja þetta uppfylingamefni til og gera það strax í sumar. BæjarfuUtrúar minnihlut- ans lögðu til, að byggt verði þriggja hæða hús, eUiheimUi, á lóðinni og byggingarnefnd skipuð, og málið þar með tek- ið úr höndum bæjarráðs, sem efckert hefur gert í málinu, nema að flytja þessa einu tilögu (jafn vitiaus og hún er) og sem getið er um hér að ofan. AUt síðasta kjör- tímabil svaf meirihlutinn á málinu, en nú þykir tími til kominn að hressa sig upp eftir fimm ára svefn, og þá með jafn ógæfulegri tiUögu sem hér hefur verið gerð að umtalsefni. Hraðbrautin jnn í fjörðinn Meirihluti bæjarstjómar ísafjarðar virðist ákveðinn í því, að leyfa Vegagerðinni að Verðnr forseti áfram Ekki barst neitt mót- framboð gegn dr. Kristjáni Eldjárn til forsetakjörs. Er hann því einn í kjöri og verður áfram forseti íslands næsta kjörtímabil. Hæstiréttur mun giefa út kjörbréf til handa dr. Kristjáni Eldjárn, en hann mun verða settur á ný inn í forsetaembættið þann 1. ágúst n.k. taka brautina upp á Selja- landsveginn fyrir innan Stakkanes og þar með beina henni inn í þröngt íbúða- hverfi. Þeir bera því við að bærinn eigi að sjá um braut- ina frá Stakkanesi út í bæ. Nú er spurt: Sér Kópavogs- kanpstaður og Garðahreppur um hraðbrautina í gegn um þá staði? Nei, þær hraðbraut- ir eru kostaðar af allmannafé, og nákvæmlega sama á að gera hér. Það þarf aðeins að standa í báða fætur í máUnu. Eignir bæjarins í fyrra kviknaði í húsi því í Neðsta-kanpstað sem verka- mannaskýlið var í, en það var allt búið húsgögnum. Ekki hefur þótt taka því að hirða húsgögnln þó engar skemmdir hafi orðið á þeim við brunann í húsinu, heldur liggja þau sem hráviði út um aUt inni í skýlinu, sem búið er að brjóta aUar rúður úr. Einnig eru þar öU hrein- lætistæki óskemmd með öllu. Þannig er farið með eignir bæjarbúa. G. Sv.

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.