Ísfirðingur


Ísfirðingur - 17.09.1976, Page 1

Ísfirðingur - 17.09.1976, Page 1
26. árgangur. ísafirði, 17. september 1976 17. tölublað. Kjördæmisþing framsóknnr- mnnnn í Vestf jnrðakjördæmi Vegurinn yfír Breiða dalsheiði 40 ára 17. Kjördæmisþing fram- sóknarmanna í Vestfjarða- kjördæmi var haldið að Fagra- 'hvammi í Örlygshöfn 4. og 5. september s.l. Þingið sóttu 29 fulltrúar, víðisvegar að úr kjördæminu, þar á meðal' alþiingismennirnir Steingrímur Hermannsson og Gunnlaugur Finnsson. Einnig sóttu þingið nokkrir gestir. Auk venjuiegra aðalfundar- starfa voru fjögur framsögu- erindi flutt á þinginu, og urðu miklar og fjörugar umræður um þau öll Steingrimur Her- mannsson fjallaði um stjórn- málaviðhorfið, Ólafur Þ. Þórðarson um fiskirækt á Vestfjörðum, Gunni. Finnsson um samgöngumál og Eysteinn G. Gíslason um öryggismál afskekktra byggða. Ekki voru gerðar beinar ályktanir um iþessi málefni, nema það fyrsta, en hinsvegar voru þau rædd frá ýmsium hliðum. Þess skal sérstaklega getið, að Magnús Ólafsson frá Vesturbotni, sem var gestur 'þingsins, sagði frá reynslu sinni af fiskirækt, en hann hefur á eigin spýtur hafið fiskieldistilraunir í sjó. Þingið stóð frá hádegi á laugardag fram undir mið- nætti á sunnudagskvöld, en fundi var frestað frá kl. 22,30 á laugardag tii kl. 14 á sunnu. dag. Sunnudagsmorguninn not- uðu menn til að skoða sig um í nágrenninu og fór allur hópurdnn m.a. á Látrabjarg í fylgd heimamanna. Var það hin besta ferð í ágætu veðri. Sérstök ástæða er til að geta um og þakka framlag heima- fólks til iþessa þinghalds, en fyrirgreiðsla öll og aðstaða í Fagrahvammi var til mik- iilar fyrirmyndar. Stjórnmáiaályktun þingsins er birt í leiðara á 2. síðu þessa blaðs. Á þinginu var enn- fremur samþykkt eftirfarandi ályktun: „Kjördæmisþ. framsóknar. manna í Vestfjarðakjördæmi, haldið í Fagrahvammi Öriygs- höfn 4. og 5. september 1976, átelur að aðilar innan sam- starfsflokks hafi að undan- förnu notfært sér dómsmál til persónuiegra niðskrifa um dómsmálaráðherra, á sama tíma og þeir hafa staðið gegn frumvörpum um endurbætur á rannsóknum dómsmáia. Af þessu verður ekki dregin önnur ályktun en sú, að fyrir þeim vaki ekki endurbætur í þessum máium, heldur gæti Eysteinn G. Gíslason. þar fyrst og fremst auðvirði- legrar sýndarmennsku. Vakn- ar þá sú spurning hvort þeim sjálfstæðismönnum sem að þessu standa finnist nóg um það traust sem Ólafur Jó- hannesson nýtur hjá þjóðinni, langt út fyrir raðir fram- sóknarmanna. Jafnframt bendir þingið á, að markvisst hefur verið unn- ið að þvi, af hálfu andstæð- inga Framsóknarflokksins að bendla flokkinn og forystu- menn hans við ýmis þau af- brot sem framin hafa verið og enn eru óupplýst. Telur þingið þetta einhverja lúalegustu mynd pólitísks áróðurs sem hugsast getur”. Núverandi stjórn Kjör- dæmissambands framsóknar- manna á Vestfjörðum er þannig skipuð: Formaður var kjörinn Ey- steinn G. Gíslason, Flateyri og varaformaður Ólafur Þ. Þórðarson, Suðureyri. Aðrir í stjórninni eru: Svavar Jó- hannsson, Patreksfirði, Karl Loftsson, Hólmavik, Magda- lena Sigurðardóttir, ísafirði, Fylkir Ágústsson, ísafirði og Heiðar Guðbrandsson, Súða- vík. Varamenn í stjórn: Kristinn Snæland, Flateyri, Birna Ein- arsdóttir, ísafirði, Örnólfur Guðmundsson, Bolungarvík, Össur Guðbjartsson, Láganúpi og Brynjólfur Sæmundsson, Hólmavík. í miðstjórn Framsóknar- flokksins voru kjörnir: Jón ALfreðsson, Hólmavik, Guð- miindur Sveinsson, ísafirði, Jón Guðjónsscn, Laugabóli, Svavar Jóhannsson, Patreks- firði, Kristinn Snæland, Flat- eyri, Jón Kr. Kristins.son, Hólmavík, Theódór Bjarnason, Bíldudal cg Eiríkur Sigurðs- son, ísafirði. Varamenn í miðstjórn: Guðm. Magnússon, Hóli Bolungarvík. Hjörtur Stur- laugsson, Fagrahvammi, Guð- mundur Hagalínsson, Hrauni, Jónas Jónsson, Melum, Grúnur Arnórsson, Tindum, Guðríður Sigurðaróttir, ísaf. Magnús Bjömsson, Bíldudal og Sig- urður Viggósson, Patreksfirði. í blaðstjórn voru kosnir: Steingrímur Hermannsson, Gunnlaugur Finnsson, Ólafur Þ. Þórðarson, Halldór Krist- jánsson og Guðmundur Ingi Kristjánsson. Endurskoðendur: Jóhannes G. Jónsson og Theódór Norð- kvist. Til vara: Guðmundur Óskar Hermannsson og Ei- ríkur Sigurðsson. Tvennir tón- leikar Tónlistarfélag ísafjarðar gekkst fyrir tvennum tónleik- um nú nýlega hér í bænum. Fyrri tónleikamir fóru fram í Aiþýðuhúsinu föstudaginn 10. þ.m., en þar komu fram Guðný Guðmundsdóttir, fiðlu- leikari og Phiiip Jenkins, píanóleikari. Síðari tónleikarnir fóru fram í ísafjarðarkirkju sunnu- daginn 12. þ.m., en þar kom fram Per-OIof Johnsons kammertríó. Hljóðfæraleikar- ar Bertil Melander, flauta, Ingvar Jónasson, víóla og Per Olof Johnson, gítar. Báðir tónleikamir tókust með ágætum, enda hér um frábært iistafólk að ræða. En svo sannarlega hefði aðsóknin að þessum ágætu tónleikum átt að vera betri. Lýður Jónsson. Vegagerð á Vestfjörðum hefur af eðlilegum ástæðum alltaf verið erfitt og jafnvel hættuiegt verk sem þó hefur tekist furðanlega vél, fyrir áræði og þol þeirra sem þar hafa að staðið. Nútíma tækni hefur gert ýrnsa hiutá mögu- lega, sem áður voru taldir ógerlegir. Nefna má sem dæmi torfærur þær á Svalvogavegi sem Elís Kj. Friðfinnsson frá Kjaransstöðum sigraðist ný- lega á með litiu ýtunni sinni, en þar er nú akfær braut, þó hættuleg isé, sem áður var ófær kletturinn. En tæki þau sem nú eru notuð tii vega- gerðar voru ekki tiltæk í „gamla daga”. Hinn 3. september árið 1936 var merkur dagur í sögu sam- göngumála á Vestfjörðum. Þá var tekin í notkun bílvegur yfir Breiðadalsheiði. Síðan eru nú liðin 40 ár. Þeir sem nú aka yfir Breiðadalsheiði mega gjaman minnast þess, að sá vegur var að stofni til lagður með höndum. Haki og skófla voru þau hjálpartæki sem þá voru tiltæk til slíkra hluta. Að vísu voru þá komnir til sögunnar IV2 tonna vöru- bílar með handsturtu, sem notaðir voru við ofaníburð, en veginn varð að ryðja með áðumefndum verkfærum. Vegurinn í svokallaðri Kinn var þá 3 y2 metri á breidd og geta menn ímyndað sér hversu mikil vinna sú vegalagnipg hefur verið, með handverkfær. um einum saman. Ekki var þó Breiðadáls- heiði fyrsti fjallvegur sem gerður var akfær á Vestf jörð- um, helldur mun það hafa-ver- ið vegurinn yfir Skersfjall, úr Patreksfirði og yfir á Rauðasand. Var sá vegur opnaður árið 1932, og kostaði þá 4000 krónur. Sá maður sem iþá var í fararbroddi vegagerðarmanna á Vestfjörðum og lengi siðan, var Lýður Jónsson. Er hann Vestfirðingum að góðu kunnur fyrir störf sín að vegalagn- ingu í fjórðungnum, en hjá Vegagerðinni hóf haínn störf árið 1926. Varð hann síðar umdæmisverkstjóri vegagerð- ar á Vestfjörðum um árabiL Lýður lagði báða áðuraefnda fjalivegi, auk fjölda annarra, við skilyrði og tækni sem margir í dag gera sér vanla grein fyrir. Má geta þess i því sambandi, að fyrsta jarð- ýtan til vegagerðar á Vest- Framhald á 2. sfðu.

x

Ísfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.