Ísfirðingur


Ísfirðingur - 02.10.1976, Qupperneq 2

Ísfirðingur - 02.10.1976, Qupperneq 2
2 ISFIRÐINGUR Útgefandi: Samband Framsóknarfélaganna í Vestfjarðakjördæmi. Riistjórar: Malldór Kristjánsson og Jón Á. Jóhannsson, áb. AfgreiSslumaóur: Guðmundur Sveinsson, En'jjavegi 24, sími 3332. SKATTAMÁLEFNI - VERÐBÓLGAN Síðla sumars var þáttur um skattamál í sjónvarpinu. Hann var umhugsunarverður, og þó einkum vegna þess hvað lítið var á honum að græða. IVIenn töluðum um réttlæti og jöfnuð. Það vantaði ekki. Minna var talað um hitt, hvernig það ætti að nást. Það var athyglisvert að í öllu þessu jafnréttistali virtist koma fram áhugi fyrir því, að skattfríðindi þau, sem kennd eru við útivinnu eiginkvenna, fengju að haldast þó að sér- sköttun hjóna kæmist á. Sá misskilningur virtist koma fram hjá sérfræðingi Al- þýðusambandsins að launaslkattur og aðstöðugjald væru ekki lögð á atvinnurekstur, heldur aðeins falin atvininurekendum til innheimtu. Það var raunalegt að heyra. Úr hópi blaðamanna mátti heyra annað eins og það, að breyta ætti lögum svo að menn létu ekki fyrirtæki sín fram- færa sig án þess að telja sér til tekna, — rétt eins og þeir héldu að einhver lög heimiluðu slíkt. Vissulega komu sumir heldur illa lesnir í þennan tíma. Merkilegast í þættinum voru orð Ólafs Nilssonar um verð- bólguna. Hann benti á, að það er raunar EKKI HÆGT AÐ NÁ ALMENNU RÉTTLÆTI f VERÐBÓLGULANDI. Það er tómt mál að tala um réttlæti meðan verðbólgan er eins og verið hefur. Verðbólgan veldur því, að menn fá nauðsynjar sínar á mismunandi verði. Sumir borga húsa- skjólið margföldu verði á við aðra. Sami ójöfnuðurinn segir til sín í ölium reksturskostnaði. Framleiðsluverð og launakjör miðast smám saman við eitthvað meðaltal þanmig, að það verður of lítið fyrir suma, en óþarflega mikið fyrir aðra. Sá gamalgróni fær umfram þarfir og verðleika, það sem byrjandinn þarf og verðskuldar, en fær ekki. Þessu fylgir svo það, að ómögulegt er að lögfesta skatta- ákvæði öðruvísi en svo, að þau verði hlálega rúm fyrir einn, ef þau verða ekki óþolandi fyrir annan,. Þetta er ranglæti verðbólgunnar. Þá eru ótalin þau áhrif hennar að hún veldur varanlegri lánsfjárkreppu. Það gerir hún með því móti að stöðugt þarf fleiri og fleiri krónur í sama rekstur. Þó fjölgar alltaf þieim krónum sem eru í umferð eftir því sem þær smækka, en samt sér verðbólgan um það, að fjölgunin er alltaf á eftir þörf- inni. Önnur og enn verri áhrif verðbólgunnar eru þau, að menn vilja ekki geyma fé. Mörgum finnst það nauðsyn að eyða öllu aflafé sínu eftir hendinni og raunar helst fyrirfram. Það hafa svo margir auðgast á því að sökkva sér í skuldir. Gamla ráðdeildin hefur svipt svo marga eignum sínum. Glataður er geymdur eyrir! Höfuð einkenni verðbólgunnar er það, að velta byrðunum af sér á þá sem á eftir koma. Það er hvorki réttlátt né dnengilegt. Og það er ekki skynsamlegt heldur. Víst er það furðulegt hvað eftir er af sparsemi, vinnusemi og ráðdeild með þessari iþjóð. Samt er það greinilegt að un,gt fólk, sem vill verða sjálfbjarga og tryggja hag sinn, dreymir einkum um að eignast eitthvað slem hægt er að selja aftur, — og helst að eignast það í skuld. Verstu áhrif verðbólgunnar eru spilling hugsunarháttarins. Menn vilja eignast án þess að borga. Það hafa svo margir komist fram með það, að fá lánaða kú og borga hana með lambi. Bókasafnið ísafirði Frá og með 1. okt. nk. verður safnið opið sem hér segir: ÚTLÁN: þriðjudaga miðvikudaga fiimntudaga föstudaga laugardaga kl. 2—7 kl. 2—7 og 8,30—10 kl. 2—7 kl. 2—7 kl. 2—4 LESSTOFAN: þriðjudaga—föstudaga kl. 2—7. HNÍFSDALSSAFN: þriðjudaga kl. 5—6,30 laugardaga kl. 2—4 TALBÆKUR (segulbandsupptökur) lánaðar blindum, sjóndöprum og fötluðum — einnig gefst þeim kostur á að hlusta á þær í safninu. GRAFlKMYNDIR lánaðar út endur- gjaldslaust. Tvö héraðsmót Sextugur Kristinn L. Jónsson Kristinn L. Jónsson, húsa- smíðameistari, Sundstr. 31 A ísafirði, varð sextugur 29. september s.l. Hann er fædd- ur á ísafirði. Foreldrar hans vcru Kristón Aradóttir og Jón Leví Friðriksson. Kristinn ólst upp að Leiru í Jökul- fjörðum hjá hjómunum Ragn- hildi Ólafsdóttur og Guð- mundi Tómassyni. Á árinu 1934 flutti Krist- inn til ísafjarðar og hóf þá nám í húsasmíði hjá Albert Kristjánssyni, húsasmiða- meistara, og lauk hann námi í þeirri iðn. Síðan hefur Krisitinn átt heima hér í bæn- um og alltaf unnið að iðn sinni. í mörg ár hefur hann rekið Trésmíðavinnustofuna Reynir s.f. ásamt Sigurði H. Bjarnasyni, húsasmíðameist- ara. Kristinn er ágætur iðnaðar- maður og er fullkomlega hægt að treysta því að öll verk sem hann tekur að sér séu vel og vandiega unnin. Hann er mesta prúðmenni, viðkynn- ingargóður og velviljaður. Eiginkona Kristins er Anna Sigríður Kristjánsdóttir, ætt- uð úr Arnarfirði. Þau eiga 5 börn, 3 dætur og 2 syni, sem öll eru mannvænleg og vel gefin. Ég og kona mín óskum Kristni og fjölskyldu hans allra heilla í tilefni afmælis- ins og þökkum ágæt kynni. Héraðsmót framsóknar- manna í Strandasýslu var haldið að Laugarhóli í Bjarn- arfirði 7. ágúst s.l. Var mótið haldið á vegum Framsóknar- félags Kaidrananhr. Magnús Gunnlaugsson á Ósi setti mótið og stjómaði því. Ræðumenn á mótinu voru Guðmundur G. Þórarinsson og Steingrímur Hermannsson. Var ræðum þeirra mjög vél tekið. Skemmtiatriði önnuð- ust Gísli Rúnar og Baldur Brjánsson, við mjög góðar undirtektir. Að lokum var haldinn dans- leikur cg lék ágæt hljómsveit fyrir dansinum. Fjölmenni var á héraðsmótinu og dans- leiknum. Héraðsmót framsóknar- manna var haldið að Suður- eyri i Súgandafirði laugar- daginn 18. september s.I. Framsóknarfélag Súgfirðinga sá um mótið. Hörður Smári Hákonarson setti mótið og stjórnaði því. Vilhjálmur Hjálmarsson, menntcunálaráðh. og Stein- grimur Hermannsson, al- þingismaður, fluttu ræður og var mjög góður rómur gerður að ræðum þeirra. Um skemmtiatriði sáu Baldur Brjánsson og Jóhannes Krist- jánsson, cg var þeim báðum vel fagnað. Að loknu héraðsmótinu var haldinn dansleikur við undir- leik hljómsveitarinnar Mi- mósa. Mikið fjölmenni var á héraðsmótinu og dansleikn- um. Almenn ánægja var með bæði ofangreind héraðsmót. Kauplélags- stjórur ráðnir Sigurður Kristjánsson, sem hefur verið um mörg undan- farin ár skrifstofustj. Skipa- deildar S.Í.S. í Reykjavík, hefur verið ráðinn kaupfélags- stjóri Kaupfélags Dýrfirðinga frá næstu áramótum. Páll Andreasson sem verið hefur kaupfélagsstjóri Kf. Dýrfirð- inga sagði starfi sínu lausu Jón Á. Jóhannsson Þegar áhrif verðbólgunnar að þessu leyti eru athuguð sjáum við að hún ier þjóðarböl. Henni fylgir siðspilling. Með þessu er ekki sagt að verðlag megi aldrei breytast. Við það getum við ekki ráðið. En við ættum að geta verið nálægt því, sem gerist í helstu viðskiptalöndum okkar. Við megum ekki sætta okkur við annað en að peningaeign haldi gildi sínu svo að höfuðstóll rýrni ekki. Veigamesti þátturinn í verðbólgunni hér er sú stjórn eða óstjórn efnahagsmála, sem leitt hefur til gengisfellinga. Það er heimatilbúið. Við skulum ekki vanmeta það siem reynt er að gera jákvætt. Verðtrygging lána er einna merkilegast þéss sem gert er til jafnvægist og andófs gegn verðbólgunni. Þar dugar alls ekki að taka einstök lán út úr. Verðtryggingin þarf að verða almenn. Þá ©r hún réttlát, ef hún fylgir launakjörum og afurðaverði. Og eru menn ekki alltaf að tala um réttlæti? Skyldi verð- bólguhjólið stöðvast gerir tryggingin engum mein. H. Kr.

x

Ísfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.