Monitor - 15.04.2010, Page 22
22
fílófaxið
Monitor FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2010
sunnudagur
„Ætli það sé ekki vegna þess að maður er
svo einfaldur sjálfur. Börn eru svo saklaus og
sönn og það er ég líka,“ segir grínistinn Sveppi
spurður út í ástæður þeirra gríðarlegu vinsælda
sem hann virðist ná hjá yngstu kynslóðinni.
Leikferill Sveppa, sem hófst í ógeðsdrykkjum og
áskorunum í 70 mínútum, hefur á undanförnum
árum þróast æ meira í verk fyrir börn. Hann
segir mikinn mun á því að skemmta börnum og
fullorðnum.
„Það eru margir sem tala um að það sé
svolítið erfitt að skemmta börnum. Maður þarf
að vera aðeins meira á tánum þegar maður
er að skemmta þeim. Börn hafa oft ekki lært
sömu lexíu og fullorðnir og eru gjörn á að
gjamma fram í og tala hátt og þess háttar.
Og ef þeim leiðist þá standa þau bara upp og
fara,“ segir Sveppi sem hefur þó náð að aðskilja
barnaskemmtikraftinn frá föðurhlutverkinu en
hann á tvö börn. „Þau átta sig á því að ég er bara
að skemmta börnum í vinnunni og svo er ég bara
pabbi heima. Auðvitað leik ég við börnin mín og
sprella í þeim en maður reynir að vera ábyrgur
faðir þess á milli. Ég er ekkert að kalla í þau
þegar ég þarf að prumpa til dæmis,“ sem hefur
þó ekki alveg jafn mikla trú á Audda vini sínum í
barnahlutverkunum.
„Hann er ekki jafn huggulegur og ég. Hann
er með alltof þykka skeggrót og of loðinn á
öxlunum. Börnin yrðu bara hrædd við hann,“
segir Sveppi og hlær.
Kalla ekki á börnin
þegar ég prumpa
ALGJÖR SVEPPI – DAGUR Í LÍFI STRÁKS
Íslenska óperan
13:00
SKOPPA OG SKRÍTLA
Á TÍMAFLAKKI
Borgarleikhúsið, litli salur
12:00 og 14:00 Tilvalin sýning tilað fara á með krakka enda
hafa Skoppa og Skrítla verið eftirlæti ungra
leikhús- og bíógesta undanfarin ár.
FÍASÓL
Þjóðleikhúsið, Kúlan
13:00 og 15:00 Fíasól í Hosiló ersprellfjörug sýning fyrir alla
fjölskylduna byggð á hinum geysivinsælu
og margverðlaunuðu bókum Kristínar Helgu
Gunnarsdóttur en sýningunni er leikstýrt af
Vigdísi Jakobsdóttur.
ÓLÍVER!
Þjóðleikhúsið
15:00 og 19:00 Eftir tuttugu árahlé gefst Íslendingum aftur
færi á að slást í för með götustráknum Ólíver
Twist sem lendir í ýmsum ævintýrum og
hindrunum í lífsbaráttu sinni. Ólíver! sem
byggður er á ódauðlegri sögu Charles Dickens
er einn vinsælasti söngleikur allra tíma.
Leikstjórn er í höndum Selmu Björnsdóttur.
VORSÝNING
DANCECENTER
Salurinn
17:00 Nemendur dansskólansDanceCenter Reykjavik sýna
vorsýningu sína sem þeir hafa æft af miklum
krafti fyrir.
SÖNGLIST
Borgarleikhúsið, litli salur
17:30 og 20:30 Sönglist er söng- ogleiklistarskóli sem starf-
ræktur hefur verið síðan 1998 fyrir ungt fólk.
Kennd eru undirstöðuatriði í söng og leiklist.
ÚTSKRIFTARSÝNING
NEMENDALEIKHÚSSINS
Smiðjan
20:00 Nemendaleikhúsið sýnirlokaverkefni sitt, leikritið
“Stræti”, eftir Jim Cartwright, einn af þekktari
samtímahöfundum Breta.
FAUST
Borgarleikhúsið
20:00 Það eru liðin fjörutíu ár síðanFaust fór síðast á leiksvið á
Íslandi en nú gefst áhugasömum tækifæri
til að berja sýninguna augum í Borgarleik-
húsinu. Í þetta skipti er leikstjórn í höndum
Gísla Arnar Garðarssonar en það er enginn
annar en Nick Cave sem sér um tónlistina í
sýningunni ásamt Warren Ellis.
MARGRÉT EIR
Í SÖNGLEIKJASTUÐI
Leikhúsið, Akureyri
20:00 Söngkonan Margrét Eir ferí ferð í kringum landið og
syngur lög úr söngleikjum á borð við Cabaret,
Les Misarables og Jesus Christ Superstar. Með
Margréti verða þeir Matti Kallio sem spilar
á píanó og harmónikku og Ágúst Ólafsson
barítónsöngvari.
BLÚSKVÖLD
Kaffi Duus, Reykjanesbæ
21:00 Blúsfélag Suðurnesja stendurfyrir blústónleikum þar sem
hljómsveitin BlúsAkademían með Tryggva
Hubner í broddi fylkingar spilar fyrir gesti
sem geta snætt þriggja rétta máltíð á meðan.
18
apríl
100% HÁGÆÐA MYSUPRÓTEIN
SVEPPI VIRÐIST KUNNA
LAGIÐ Á BÖRNUNUM