Ísfirðingur - 16.10.1976, Page 1
fWiwfpr
BLAÐ TRAMSOKNAKMANNA / l/ESTFJARÖAKJOZDÆM!
26. árgangur.
ísafirði, 16. október 1976.
19. tölublað.
Kafli úr ræðu á Fjórð
ungsþingi Vestfirðinga
Sturla Jónsson og Kristey Hallbjörnsdóttir.
GULLBRÚÐHJÓN
Laugardaginn 9. þ.m. áttu gullbrúðkaupsafmæli hjónin
Kristey Hallbjörnsdóttir og Sturla Jónsson, hreppstjóri, á
Suðuneyri í Súgandafirði.
í tilefni þessa merkisafmælis þeirra hjónanna efndi hrepps-
nefnd Suðureyrarhrepps til samkomu í Félagsheimilinu á
staðnum. Á samkomuna mættu um 90 manns og voru hinar
ágætustu veitingar á borð bornar.
Oddviti Suðureyrarhrepps, Ólafur Þ. Þórðarson, flutti ræðu
og afhenti Sturla Jónssyni undirritað skjal þar sem honum
var tilkynnt að hann hefði verið kjörinn fyrsti heiðursborgari
Suðurteyrarhrepps fyrir margvísleg og ágætlega unnin störf
í þágu hreppsins. Margir aðrir tóku til máls við þetta tæki-
færi, þar á meðal heiðursborgarinn.
Allir sem til þekkja vita, að Sturla Jónsson hefur gengið
heill og óskiptur að hverju því starfi sem hann, hefur að sér
tekið. Til marks um það traust sem hann hefur notið má
nefna að hann hefur verið hneppstjóri í 28 ár og er það
ennþá. Oddviti Suðureyrarhnepps var hann í 24 ár, safnaðar-
fulltrúi í 26 ár, í sóknarnefnd í 18 árí í skattanefnd í fjölda
mörg ár og umboðsmaður skattstjórans í Vestfjarðaumdæmi
hefur hann verið síðan 1962. Hann var fyrsti æðstitemplar
barnastúkunnar á Suðureyri og árum saman var hann í stúk-
unn,i Dagrún. Formaður íþróttafélagsins á Suðureyri var
hann í 16 ár. Sturla var form. stjórnar Fjórðungssamb. Vest-
firðinga í 15 ár.
Heimili þeirra gullbrúðkaupshjónanna er vistlegt og að-
laðandi og þar er gestrisni í heiðri höfð.
Blaðið óskar þeim hjónunum allra heilla í tilefni hinna
merku tímamóta.
1 ræðu sem form. stjórnar
Fjórðun-gssambands Vestfirð-
inga, Ólafur Þ. Þórðarson,
flutti á Fjórðungsþingi Vest-
firðinga, sem haldið var í
Reykjanesi í september s.l.,
gerði hann ítarlega grein
fyrir störfum stjómarinnar
og framkvæmdastjóra sam-
bandsins á liðnu starfsári.
M.a. kom fram í ræðu hans
að s-tjórnin hefði haldið fund
með þingmönnum Vestfjarða
20. mars s.l., en á þeim fundi
mætti einnig Sverrir Her-
mannsson, sem er annar
framkvæmdastj. Framkv.st.
ríkisins. Á fundinum var rætt
um fjárveitingar til Vestf-
fjarða, fjárhagsstöðu sveitar-
félaganna og þau verkefni sem
Byggðasjóður lætur sig varða
Rætt var um tekjustofna
hafnanna, gatnagerð í þétt-
býli, húsnæðismál, vegamál
0.0.
Formaður stjómarinnar og
framkvæmdastjórinn, Jóhann
T. Bjamason, sátu á árinu
tvo fundi með formönnum og
framkvæmdastjórum annara
landshlutasamtaka. Þar voru
rædd málefni sem gera má
ráð fyrir að landshlutasam-
tökin gætu náð samstöðu um,
svo sem rekstur fræðsluskrif-
stofanna, símamál o.fl.
Þá sat stjóm Fjórðungs-
sambandsins fund á ísafirði
í ágúst s.l. með stjóm Fram-
kvæmdastofnunar rikisins og
þingmönnum Vestf jarða.
Haldið hefur verið sambandi
við önnur fjórðungssambönd,
en það er vafalaust nauðsyn-
legt. Þá var ráðstefna um
málefni aldraðra haldin í
Flókalundi. Á starfsárinu
vom haldnir 10 stjómar-
fundir.
Hér á eftir fer síðari hluti
ræðu Ólafs Þ. Þórðarsonar:
„Ég ætla ekki að hætta mér
út á þann ís að rif ja upp öll
þau mál, sem fyrir hafa kom-
ið á stjómarfundum en get
þó ekki sleppt þvi að minnast
á örfá þeirra.
Flugfélagið Ernir hefur
haldið uppi flugþjónustu til
samgöngubóta innan Vest-
fjarða og sjúkraflugi ásamt
leiguflugi. Þar sem fyrir-
sjáanlegt var, að rekstur þess
myndi stöðvast vegna fjár-
hagsörðugieika, leituðum við
eftir stuðningi sveitarfélaga á
Vestfjörðum við flugfélagið.
Ég vil færa sveitarfélögunum
Ólafur Þ. Þórðarson.
þakkir mínar fyrir þeirra af-
stöðu. Það er mat stjómar
Fjórðungsambandsins, að
staðsetning flugvélar á Isa-
firði sé nauðsyn af öryggis-
ástæðum og óraunhæft að líta
svo á, að sjúkrahús þar eigi
að þjóna stóru svceði, ef sam-
göngur við það em ekki
tryggar. Að sjá um að svo
sé er ekki verkefni sveitar-
félaganna, heldur alþingis-
manna og þar með s-tjórn-
valda. Vonum við, að þeir
ljái þvi máii það lið, að ekki
skapist neyðarástand nú í
vetur.
Fjórðungssamband Vestfirð-
inga hefur fest kaup á hús-
næði á ísafirði undir sína
starfsemi. Hér er um helm-
inginn á miðhæðinni á hús-
eigninni Hafnarstræti 6 að
ræða. Hinn helminginn er
fastmælum bundið að kaupa
fyrir fræðsluskrifstofu eftir
áramótin. Samtals er flatar-
mál hæðarinnar 150 fm. og
75 fm. í risi fylgja með.
Kaupv. Fjórðungssambands-
ins að sínum hluta vom 5
milljónir. Segja má, að gætin
stjóm framkvæmdastjórans,
Jóhanns T. Bjarnasonar, á
fjármálum sambandsins ráði
því, að við töldum okkur fjár-
hagslega fært að fara út í
þessi kaup. Það er mat stjóm-
arinnar, að með þessum kaup-
um sé Fjórðungssambandinu
skapaður traustari rekstrar-
gmndvöllur.
Núna í maí var safnað
upplýsingum um verðlag vöru
og þjónustu á ísafirði, svo
að hægt væri að reikna út
framfærsluvisitölu hér á
Vestfjörðum. Þetta var gert
af Hagstofunni og okkur er
farið að lengja eftir útkom-
unni. Þessir útreikningar
þyrftu að fara fram árlega
og á niðurstöðum þeirra ber
að byggja kröfu um lagfær-
ingu þeirra liða, sem koma
óhagstæðast út. Það er mitt
mat, að í dag sé það síminn
og upphitun íbúðarhúsnæðis,
sem mestum mismun veldur.
Hvort sú spá er rétt ,ætti að
koma í ljós fljótlega.
Ekkert mái hefur tekið
meiri tíma hjá þeirri stjórn,
sem nú hefur starfað í tvö ár,
en orkumálin. Frcunkvæmda-
stjóri og þrír af stjórnar-
mönnum Fjórðungssambands-
ins hafa staríað í nefnd á
vegum Iðnaðarráðuneytis um
orkumál. Lög um Orkubú
Vestfjarða voru samþykkt á
liðnum vetri. Nú reynir á það,
hvort á grundveili þeirra
laga reynist fært, að stofna
til samrekstrar sveitarfélaga
og ríkisins um orkuöflun og
dreifingu á Vestfjörðum. Ég
hef aldrei farið dult með þá
skoðun mína, að um sjálfs-
eignarstofnun en ekki sam-
eignarstofnun ætti að vera að
ræða. Stjómunaraðild en ekki
eignaraðild er aðal atriðið.
Samt er það von mín, að
ríkisvaldið fáist til þess að
lita þessi mál þeim augum,
að af stofnun orkubúsins geti
orðið. Það liggur í augum
uppi, að ríkið verður að taka
á sig stóran hluta af skuldum
Rarik, ef orkuverð á að verða
sambærilegt og annars staðar.
Þetta verður að gera, hvort
sem af stofnun Orkubúsins
verður eða ekki. Það er
stjórnvöldum Ijóst, sem sést
m.a. af því, að þegar Rarik
bað um 40% hækkun á raf-
orkuverði var þeim veitt um
20% hækkun. Stjómvöld hafa
greinilega ekki treyst sér til
að velta þeirri haíkkun, sem
nauðsynleg var, út í raf-
magnsverðið.
HOTEL-
BYGGING
Að undanfömu hefur verið
unnið að gerð uppfylingar á
Mörg málefni mætti gera að
umræðuefni en ég ætla að
láta hér staðar numið.
Framkvæmdastjóra færi ég
bestu þakkir fyrir vel unnin
störf og gott samstarf.
Stjórnarmönnum færi ég
sömuleiðis mínar bestu þakkir
fyrir samstarfið”.
ísafirði þar sem ákveðið er
að byggt verði hótel.
Það var Junior Chamber
klúbburinn hér í bænum sem
í sínum tíma hafði forgöngu
um stofnun hlutafélags um
byggingu hótelsins. Hefur
klúbburinn lagt fram nokkur
hundruð þúsund krónur í
hlutafélagið og að öðnu leyti
hefur verið tekið fremur vel
í kaup á hlutafé.
Búist er við því að byrj-
unarframkvæmdir við bygg-
inguna geti hafist tiltölulega
fljótt.