Ísfirðingur


Ísfirðingur - 16.10.1976, Blaðsíða 2

Ísfirðingur - 16.10.1976, Blaðsíða 2
2 ISFIRÐINGUR fltéhipiir Útgefandi: Samband Framsóknarfélaganna í Vestfjarðakjördæmi. Ritstjórar: Halldór Kristjónsson og Jón Á. Jóhannsson, áb. AfgreiBslumaOur: Guðmundur Sveinsson, Engjavegi 24, sími 3332. Neikvæður málílutningur Oft hefur verið um það rætt, að stjórnmálamenn í stjórnar- andstöðu temdu sér lítt þá hófsemi í máiflutningi og þá aðgæslu í sambandi við margskonar og oft óraunhæfa kröfu- gerð sína um fjárútlát úr hendi þess opinbera, sem ætlast verður til af mönnum sem boðist hafa til að vera forsjón þjóðfélagsins. Sjálfsagt hefur oftast eitthvað á þessu borið, en líklega sjaldan eða aldrei ein,s áberandi og tillitslaust og síðustu árin. Líklega hafa íslendingar aldrei búið við málefnasnauðari og aumari stjórnarandstöðu en einmitt nú. Málflutningur mjög margra talsmanna stjórnarandstöðuflokkanna virðist alla jafna mei'kvæður, ekki jákvæður. í ræðum sínum og (ritum fullyrða þessir menn mjög oft að flest það sem stjórnarflokkarnir gera sé rangt og illt. Verkefnin eigi að framkvæma al'lt öðruvísi. Séu þeir hinsvegar inntir eftir því hvern/ig að þeir sjálfir hefðu unnið að sömu verkefnum verður þeim oftast svara fátt. Rökin fyrir aðfinnslum og fullyrðingum skortir, én hlutina átti bara að gera einhvern- veginn allt öðruvísi. Þetta er neikvæð og gagnslaus stjórnar- andstaða, sem ber vott um úrræðaleysi og málefnafátækt. í seinni tíð hefur töluvert borið á því, að pólitískir ræðu- menn, og þá hvað helst þeir sem virðast haldnir taumlausu sjálfsáliti og telja sig þá rétt borna til pólitísks frama, hafa á fundum sem þeir hafa efnt til leitt hjá sér að ræða einstök vandamál sem úrlausnar bíða, len í þess stað notað ræðutíma sinn til að bera á borð fyrir hlustendur dylgjur og raka- lausar fullyrðingar um meintar persónulegar ávirðingar and- DERBY frystikisturnar og frystiskáparnir koma aftur í næstu viku Verzlunin Kjartan R. Guðmundsson ísafirði - Sími 3507 Gagnfræðaskólinn á Isafirði Gagnfræðaskólinn á ísa- firði var nú í haust settur á svipuðum tíma o,g áður. Á fundi fræðsilúráðs 7. þ.m. skýrði skólastjórinn, Kjartan Sigurjónssion, frá starfsemi skólans. NemendafjöMi er nú 236 nemendur í 10 deildum. Sú breyting er helst á skóla- starfi, að nú er einum bekk færra en síðastliðið starfsár og að nú er kennt fimm daga vikunnar í stað sex áður. Á kennarafundi í upphafi skólaárs voru kosnir þrír kennarar í kennararáð- G.í. Kosnir voru Skúli Benedikts- son, Hallur Páll Jónsson og Haildóra Magnúsdóttir. Á fundi fræðsluráðs kom fram að menntamálaráðuneyt. ið er tilbúið að senda til ísa- fjarðar tvær lausar kennslu- stofur, sem fræðsluráð hafði áður óskað eftir að Gagn- fræðaskólinn fengi. Fræðslu- ráð samþykkkti að óska eftir við bæjarráð að ákveðin verði staðsetning stofanna, og að kositnaður við undirstöður og lagnir verði tekinn inn á fjárhagsáætlun við þá endur- skoðun áætiunarinnar sem nú stendur yfir. Ódýrar passa- myndir í lit í dýrtíðinni er ánægjulegt að geta boðið ódýrar myndatökur. Við tökum myndir, hvar sem er, af hverju sem er. Ljósmyndastofa ísafjarðar sími 3776. Ályktanir frá Fjórð- ungsþingi Vestfirðinga stæðinga sinna. Á einum slíkum fundi spurði einn hlustenda ræðumenn að því, hvort þeir hefðu nú alveg gleymt málefnum kjördæmisins og þjóðfélagsins. Málflutningur af þessu tagi er að sjálfsögðu ósæmilegur og ©kkii frambærilegur, enda meira en hæpið að hægt sé að líta á Slíka málflytjendur sem alvöru stjórnmálamenn. Svona málflutningur er vissulega neikvæður og ekki líklegur til framdráttar þeim Sem honum beita. 'Blaðið 'birtir hér á eftir nokkrar af ályktu'nuin þeim, sem samþ. voru á Fjórðungs- þingi Vestfirðinga, en það var haldið, svo sem áður hefur verið frá sagt hér í blaðinu, dagana 11. og 12. september s.l. Það hendir oft stjórnmálamenn í stjórnarandstöðu að ÁLYKTUN UM ORKUMÁL: krefjast þess, að stjórnvöld láti framkvæma viðamikil verk- efni, sem oftast kosta stórfé, en án þess að þeir geri jafn- framt grein fyrir því hvernig á að afla fjár til framkvæmd- anna. Nú ætti það að vera filiestum augljóst, að enginn getur ráðist í framkvæmdir, hvorki stórar eða smáar, án þess að hafa áður tryggt sér fjármagn til þeirra. Ekki heldur ríkis- sjóður. Svona vinnubrögð eru raunverulega ekki marktæk og flokkast undir úrræðaleysi og neikvæðan málflutning. J. Á. J. © I IH h£W4l ferðaskrifstofa bankastræti 7 simar 16400 12070 Almenn ferðaþjónusta i. t Ferðaþjónusta Sunnu um allan heim fyrir hópa fyrirtæki og einstaklinga er viðurkennd af þeim fjölmörgu er reynt hafa. ini ftrðirnar sem fólkið velnr Fjórðungsþing Vestfirðinga þákkar hæstvirtum iðnaðar- ráðherra og hæstvirtri ríkis- stjórn iskilning á orkumálum Vestfiirðinga, með iþví að leggja fram á Alþingi frum- varp til laga um Orkubú Ves,t- fjarða og tryggja lagasetn- ingu um iþað. Væntir þingið þess, að þær viðræður, sem hafnar eru í framhaldi af lagasetningunni, til undir- búnings að stofnun Orkubús Vestíjarða, verði árangurs- ríkar, og treystir í þvi efni bæði á skilning stjórnvalda og sveitarstjórna, enda telur þimgið, að þau verkefni, sem framundan eru í orkumiálum Vestíjarða, séu svo viðamikil, og krefjist svo mikillar sam- hæfingar í uppbyggingu og rekstri, að nauðsyn beri til að um einn eignar- og stjórn- unaraðila verði að ræða. 'Þingið leggur áherslu á að sem fyrst fáist úr því skorið með jarðborunum hvar megi fá jarðhita í næsta nágrenni við þéttbýlisstaði á Vest- fjörðum. Það er brýnt að úr því fáiist skorið hvar ber að stefna að rafhitun og hvar að öðru formi hitunar. Allur dráttur á þessu veldur lengd- um tima sem íbúar Vestíjarða verða að ‘búa við olíukynd- ingu. Þá leggur þingið áherslu á að rannsóknir á vatnsorku Vestfjarða verði hraðað sem mest, svo hægt sé að velja besta 'kostinn í byggingu næsta raforkuvers. UM VERKASKIPTINGU RÍKIS OG SVEITARÉLAGA: Fjórðungsþing 1976 harmar iþá þróun sem orðið hefur í verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, þar sem kostn- aðarauki sveitarfélaganna hef- ur orðið miklum mun meiri en aukning tekjustofna. Sér- staklega bendir þingið á stór- aukinn kostnað sveitarfélag- anna er leiðir af rekstri skól- anna, svo sem vegna viðhalds skólamannvirkja og búnaðar og tannlækniniga í skólum. Jafnframt bendir þingið á að sveitarfélögin bera ein veru- legan kostnað af húsnæðis- málum kennara og annan hlið- stæðan kostnað er leiðir af rekstri skólanna. Varðandi viðhaldskostnað skóla, sem sveitarfélög bera nú ein, telur þingið að gera verði þá breytingu á skóla- kostnaðarlögum, að viðhald heimavistarrýmis verði allt greitt af ríkissjóði. Dreifbýlis- skólar bera nú viðhaldskostn- að af heimavistum, fram yfir þéttbýlisskólana. UM TÆKNIÞJÓNUSTU- STOFNUN: Fjórðungsþing Vestfjarða felur stjórn sambandsins að ná samstöðu með sveitarfélög- um á Vestíjörðum og leita eftir því við rikisvaldið að sett verði á stofn tækniþjón- ustustofnun á Vestíjörðum er vinni hönnunar- og undir- búningsvinnu fyrir ríkisstofn- anir er láta þurfa vinna verk á Vestfjörðum, sveitarfélög og einstaklinga sem þess óska. UM HÚSNÆÐISMÁL: Fjórðungsþing Vestíirðinga 1976 harmar þann seinagang sem orðið hefur á framkvæmd byggingu leiguíbúða og telur að stjómvöM hafi ekki tekið nægjanlegt tiTlit til þess alvarlega húsnæðisskorts sem ríkt hefur og ríkir hér á Vest- fjörðum. Þingið vi'll enn á ný benda á þetta mifcla vandamál vest- firðinga og telur ekki óeðli- legt að þeir njóti nokkurs for- gangs í þessum málum þegar

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.