Ísfirðingur - 30.10.1976, Qupperneq 1
BLAÐ TRAMSÓKNAKMANNA / VESTFJARÐAKJÖRDÆMI
26. árgangur.
ísafirði, 30. október 1976.
20. tölublað.
HJÁLPARSVEIT
EINHERJA 25 ÁRA
HJÁLPARSVEIT Einherja á
Isafirði efndi til fundar í
Skátaheimilinu sunnudaginn
24. október sL og var þangað
boðið iblaðamönnum og nokkr-
um öðrum göstum. Tilefni
fundarins var það, að þann
25. október voru 25 ár láðin
frá því að st'ofnfundur Hjálp-
arsveitar Einherja var hald-
inn. Frumkvæði að stofnun
sveitarinnar hafði Hafsteinn
O. Hannesson, félagsfordngi.
Á stofnfundinum voru mættir
14 skátar, sem allir gerðust
stofnendur. Af þeim eru sex
meðlimir sveitarinnar ennþá.
Nú munu vera um eða yfir
20 félagar í sveitinni.
Skutull
mei
r r\9
oraði
UNDARLEGAN leiðara
birti Skutull um daginn.
Ekki verður séð á hverju
hann er byggður. Þar er
sagt að ísfirðingur hvetji
til uppgjafar í landhelgis-
málinu og hrakyrði þá
menn sem andvígir séu
rányrkju útlendinga á Is-
landsmiðum. Væri fróðlegt
að vita hvað það er í ís-
firðingi sem Skutulsmenn
skilja svo.
Hitt má vel vera að ein-
hverjum aðstandenda Skut-
uls hafi Ieiðst að lesa orð
ísfirðings um þá sem
reyndu að æsa menn gegn
samningum við Breta í vor,
t.d. þessi orð:
Væntanlega láta þeir
Kjartan Ólafsson. og Sig-
hvatur Björgvinsson ekki
falla í fyrnsku hve farsæla
leiðsögn og forustu þeir
buðu þjóð sinni þá.
Samt er varla hægt að
kalla þetta hrakyrði.
Þessi endursögn Skutuls
virðist unninn í óráði.
Fyrstu stjórn sveitarinnar
skipuðu Haísteinn O. Hannes-
son, sem var kjörinn sveitar-
foringi, Sveinn EMasson og
Konráð Jakobsson. Á þessum
fundi voru samþykktar reglur
fyrir sveitina, en í regluoum
er m.a. kveðið á um, að
skilyrði til þátttöku í staríi
sveitarinnar sé, að viðkom-
andi sé orðinn 17 ára og
hafi próf í „Hjálp í viðlög-
um.” Verksvið stjórnarinnar
er, að sjá um að hjálparsveit-
in sé alltaf viðbúin og að
skipuleggja leitir og aðstoð.
Að sjálfsögðu var sveitin
á fyrstu árum sínum van-
búin að nauðsynlegum tækja-
kosti. En forráðamennirnir
voru vel vakandi í þessum
efnum og nú er Hjálparsveitin
vel útbúin að nauðsyn’.egum
tækjum. Nokkuð fljótlega
naut sveitin fjárhagsaðstoð-
ar vinveittra einstaMinga og
félaga, sem sMldu hið þýð-
ingarmikla starf hennar. Má
þar t.d. nefna Kvennadeild
SVFÍ og Norðurtangann hf.
Síðan 1966 hefur sveitin svo
fengið nokkum fjárhagsstyrk
á fjárlögum. í nokkur undan-
farin ár hefur sveitin annast
flugeldasölu í bænum og haft
af því nokkrar tekjur. En
aúknar tekjur hafa gert sveit-
inni fært að anka tækjakost
svo myndarlega sem raun ber
vitni.
Á árinu 1953 var komið á
samstarfi við Björgunarsveit
Slysavarnafélagsins, sem gef-
ist hefur vel. Skyldi Hjálpar-
sveitin sjá um aðstoð á landi,
en Björgunarsveitin um sjó-
slys og sMpsströnd. Að til-
lögu Jóns Páls Halldórssonar
tók Hjálparsveitin að sér að
annast verkefni flugbjörgun-
arsveitar. Á árinu 1965 var
gerð sMpuIagsbreyting á
Hjálparsveitinni að frum-
kvæði Jóns Þórðarsonar,
svedtarforingja. Þá var sveit-
inni skipt í 3 deildir: Slysa-
hjálpardeild, Leitardeild og
Fræðsludeild.
Hjálparsvedtin hefur alltaf
gert sér far um að fræða
og þjálfa meðlimi sveitarinn-
ar. Einndg hefur hún haldið
uppi fræðslh í björgunar- og
slysavamamálum í skólum
bæjarins og á vegum niokk-
urra féilaga.
Á 25 ára starfsferli sínum
hefur Hjálparsveit Einherja
unnið mikil fjölþætt og oft
erfið störf. Sveitin hefur allt-
af verið viðbúin þegar á
hennar hjálp hefur þurft að
halda. Margir hafa henni
miMð að þakka. Félagar
sveitarinnar hafa margoft
leitað að fólM, innan bæjar
Framhald á 2. síBu
Ólafur Ásgeirsson
Freyja Rósantsdóttir
GULLBRÚÐHJÓN
Miðvikudaginn 20. október isl. áttu gullbrúðkaupsafmæli
hjónin Freyja Rósantsdóttir og Ólafur Ásgeirsson, fyrrver-
andi tollþjónn, Austurvegi 12, ísafirði.
Þaiu hjónin hafa aila sína hjúskapartíð átt heima hér í
bænum og reynst mjög traustir og inýtir borgarar, vinmörg,
vinföst og velviljuð.
1 liðlega 30 ár var Ólafur tollþjónn hér í bænum og
gegndi hann því starfi af mikilli trúmennsku og samvisku-
semi. Áður hafði hann aðallega stundað sjómennsku og þá
m.a verið skipstjóri á fiskibátum. Var hann í þeim störfum
eftirsóttur, enda verkhygginn og afkastamikill.
Þau hjónin eiga tvo uppkomna syni, en Ólafur átti eina
dóttur áður en hann kvæntist.
Heimili þeirra hjónanna er hið myndarlegasta og þau eru
þekkt að hjálpsemi og gestrisni.
Þeim hjónunum er árnað aílra heilla í tilefni gullbrúð-
kaupsafmælisins.
Kvöldskólinn á ísafirði
— frœðsla fullorðinna
KV ÖLDSKÓLINN á Isafirði
— fræðsla fullorðinna — er
nú orðinn fastur Mður í vetr-
arstarfi ísfirðinga, Sú breyt-
ing varð á starfsemd skólans
nú í haust, að fræðsluráð ísa-
fjarðar tók við stjóm og
rekstri skólans, en honum
var komdð á fót haustið 1974
fyrir tilstilld nokkurra mennta
skólakennara og hvíldi þungi
starfsins að mes'tu á herðum
Bry'ndísar Schram.
Starfsemin nú í haust hófst
4. október og er með líku
sniði og undanfarna vetur.
Kennt er í bókfærslu, dönsku,
ensku (3 flokkar), frönsku,
spænslku, stærðfræði (náms-
efni grunnskóla), vélritun,
þýzku, og íslensku fyrdr út-
lendinga. 1 framangreinda
fldkka eru innritaðir miMi 110
og 120 nemendur.
Námskeiðsgjald er kr.
4.000,00 fyrdr 32 kennslu-
stundir á 8 vikum.
Kennarar Kvöldskólans eru
10 og láta þeir mjög vel af
námsgleði nemenda, sem eru
á aldrinum 15—68 ára.
Kennsla fer fram í Gagn-
fræðaskólanum á mánudags-
þriðjudags og miðvikudags-
kvöldum frá kl. 19:30 til
22:30.
í undirbúningi eru nám-
skeið í meðferð og viðhaldi
bifreiða, Ijósmyndun/fram-
köllun, almennum smíðum,
myndlist, fundarstjórn/fund-
arsköpim, siglingafræði, er
veiti réttindi til stjórnar
fisMsMpum allt að 30 ODestir
o.fli.
Námskeið Kvöldskólans
byggjast eingöngu á fjölda
þátttakenda og er öllum kostn
aði haldið í lágmarki. Það er
von Kvöldskólans, að takast
megi að mæta óskum bæjar-
búa og næstu nágranna hvað
varðar úrval námsgreina, en
starfsemi sem þessi á eftir
að taka á sig fastara form,
þegar séð verður, hverjar við-
tökur frumvarp það um full-
orðinsfræðshi, sem nú liggur
fyrir Alþingi Islendinga, fær.
Forstöðumaðúr Kvöldskól-
ans er frú Lára G. Oddsdótt-
ir. Hún kynnti blaða- og
frétta-mönnum starfsemd skól
ans þriðjudagskvöldið 26.
þ.m. og bauð þeim m.a. að
koma í kennslustofumar, en
kennsla fór þar þá fram.