Ísfirðingur - 13.11.1976, Side 1
BíAÐ TRAMSOKNAKMANNA / l/ES TFJARÐAKJORDÆM!
26. árgangur.
ísafirði 13. nóvember 1976.
21. tölublað.
Sjötugur:
EYSTEINH JÓNSSON
Látin:
Vigdís Steingrímsdóttir
Eysteinn, Jónsson, fyrrver-
andi ráðherra og alþingismað-
ur, er sjötugur í dag. Hann er
fæddur á Djúpavogi 13. nóv-
ember 1906. Foreldrar hans
voru hjónin Sigríður Hans-
dóttir, f. Beck og séra Jón
Finnsson. Eysteinn lauk námi
í Samvinnuskólanum 1927.
Næstu árin vann hann í
Stjórnarráðinu og á Skatt-
stofu Reykjavíkur. Skatt-
stjóri í Reykjavík er hann á
árunum 1930 til 1934. Fjár-
málaráðherra 1934 til 1939 og
aftur fjármálaráðherra 1950
til 1958. Viðskiptamálaráð-
henra 1939—1942 og mennta-
málaráðherra 1947—1949.
Prentsmiðjustjóri prentsmiðj-
imnar Eddu h.f. 1942—1947.
Alþingismaður Suður-Múla-
sýslu 1933—1959 og Austur-
landskjördæmis 1959—1974.
eða þingmaður samtals yfir
40 ár.
Formaður Framsóknar-
flokksins var Eysteinn í
mörg ár og Iengi var hann
formaður iþingflokks Fram-
sóknarmanna. Hann hefur
setið 1 stjóm Sambands ísl.
samvinnufélaga frá árinu
1944, iíengi varaformaður og
nú formaður stjómarinnar.
Hann var mikill unnandi
náttúruvemdar og nú for-
maður samtakanna um nátt-
úruvemd þ.e. Náttúruverndar-
ráðs. Hér hefur aðeins verið
stiklað á því stærsta í störf-
um Eysteins Jónssonar, en
fjölda mörgum öðrum mikil-
vægum trúnaðarstörfum hefur
hann gengt, setið í ýmsum
ráðum og nefndum, þ.á.m.
mörgum milliþinganefndum.
Um stjórnmál hefur Ey-
steinn skrifað mikið, bæði í
Tímann svo og fjölda rita
sem gefin hafa verið út í sér-
prentun.
Alit frá því að Eysteinn
Jónsson hóf afskipti af stjóm-
málum, eða í meira en 40 ár,
hefur hann verið einn af allra
atkvæðamestu stjórnmála-
mönnum þjóðarinnar. Enginn
annar núlifandi íslenskur
stjórnmálamaður hefur unnið
Svona er nú
fjármálastjórnin
Fjármálum ísafjarðarkaupstaðar er nú þann veg
komið, að auglýst hefur verið að Vatnsveita ísafjarðar
og hafnsögubáturinn, Þytur verði seld á opinberu upp-
boði vegna vanskila. Þetta er árangurinn af fjármála-
legri forsjón núverandi mieirihluta bæjarstjórnar ísa-
fjarðar. Það er árangur loforðanna og fyrirheitanna
sem þessir menn, gáfu bæjarbúum þegar þeir voru að
falast eftir atkvæðum þeirra í síðustu bæjarstjórnar-
kosningum.
Vatnið er frumþörf lífsins. Fer það nú ekki að verða
nokkurt umhugsunarefni bæjarbúum þegár svo er
komið, að Vatnsveita bæjarins er auglýst til uppboðs
vegna vanskila þeirra, sem boðist hafa til að stjórna
fjármálum kaupstaðarins?
þjóð sinni meira og betur en
hann og heill og óskiptur
hefur hann gengið að þjóð-
málastörfum sinum. Hann er
mikill málafylgjumaður,
framúrskarandi góður ræðu-
maður og jafn vígur hvort
heldur er í sókn eða vörn.
Fáir eða engir þingmenn
munu hafa verið Eysteini
leiknari í því að draga fram
vafninigalaust og leggja
áherslu á aðalatriði þess máls
sem um var fjallað hverju
sinni.
Eiginkona Eysteins er Sól-
veig Eyjólifsdóttir, múrara í
Reykjavík Jónssonar.
Um leið og Eysfeini Jóns-
syni og fjölskyldu hans er
árnað allra heilla í tilefni
sjötugs afmælisins, eru hon-
um færðar þakkir fyrir mikil
og farsæl störf í þágu þjóðar-
innar allrar.
Jón Á. Jóhannsson
Vigdís Steingrímsdóttir,
Tjarnargötu 42 Reykjavík,
ekkja Hermanns Jónas-
sonar, fyrrwrandi forsætis-
ráðherra og alþingismanns
Vestfjarðakjördæmis, and-
aðist 2. þ.m.
Hún var fædd 4. októ-
ber 1896, dóttir Margrétar
Þorláksdóttur og Stein-
gríms Guðmundssonar,
húsasmíðameistara. Vigdís
giftist Hermanni Jónassyni
30. maí 1925. Hún var kona
vel menntuð og ágætlega
greind. Öllum skyldum
sínum gegndi hún svo vel
að til fyrirmyndar þótti.
Að sjálfsögðu kom það
margoft í hennar hlut að
taka, ásamt manni sínum,
á móti þjóðhöfðingjum og
ráðherrum frá öðrum lönd-
um.
Börn þeirra Vigdísar og
Herman.ns eru Steingrímur
alþingismaður og Pálína,
húsmóðir í Reykjavík.
Jarðarför Vigdísar var
gerð frá Dómkirkjunni í
Reykjavík 10. þ.m.
Hjálpartækjabanki
Nú hefur náðst sá áfangi
að starfræksla Hjálpartækja-
stofnunar er hafin á vegum
Rauða kross íslands og Sjálfs-
bjargar landssambands fatl-
aðra.
Aðdragandinn hefur verið
nokkuð langur eða allt frá
árinu 1967, þegar hugmynd
að hjálpartækjamiðstöð ein-
hverskonar kom fram hjá
Reykjavíkurdeild Rauða kross
íslands.
Eiginiegur undirbúningur
að stofnun Hjálpartækjabanka
hófst þó nokkru síðar eða
siðla árs 1973, fyrir forgöngu
Rauða kross íslands sem kall-
aði saman fund með ýmsum
aðilum, sem á einn eða annan
hátt eru tengdir málefnum
fatlaðra á sviði hjálpartækja.
Árangurinn varð sá að Rauði
kross íslands og Sjálfsbjörg
landssamband fatlaðra tóku
höndum saman um að koma
á fót Hjálpartækjabanka.
Hjálpartækjabankinn hefur
haft opna afgreiðslu í Nóa-
túni 21 frá júlí s.l. en tekur
nú formlega til starfa. Nú
þegar hefur fjöldi fólks bæði
einstaklingar og hópar heim-
sótt bankann.
Það er sérstakt ánægju-
efni hvaða áhuga fólk í heil-
brigðisstéttum hefur sýnt
Hjálpartækjabankanum.
Markmið Hjálpartækjabank.
ans er að leigja, lána og
selja ýmis hjálpar- og endur-
hæfingartæki, auk fræðslu-
starfs í framtíðinni. Meðal
annars hefur Hjálpartækja-
bankinn fyrirliggjandi hjóla-
stóla, göngugrindur, göngu-
stafi, armstafi og fleira.
Forstöðumaður Hjálpar-
tækjabankans er Björgúlfur
Andrésson.
NORRÆNA
FÉLAGIÐ
Norræna félagið heldur
aðalfund n.k. simnudag þ. 14.
nóv. kl. 5 í Húsmæðraskól-
amnn.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verður rætt um breyt-
ingar á félagsgjöldum og
ýmislegt varðandi réttdndi
félagsmanna, í sambandi við
fyrirgreiðslur vifð ferðalög ofl.
Félagar eru eindregið
hvattir til að mæta og taka
virkari þátt í félagsistarfinu
en verið hefur.
Rannveig Hermannsdóttir,
Austurvegi 12 ísafirði, átti
sextugsafmæli í gær, þann 12.
nóvember. Hún er ágætlega
starfhæf kona, hefur m.a.
unnið mikið að félagsmálum
og er nú formaður kvenfélags-
ins Ósk. í iiðlega 20 ár hefur
hún unnið á skattstofunni á
ísafirði og hefur því mikla
reynslu og yfirsýn um fram-
kvæmd skattamála.
Rannveigu er óskað allra
heilla í tilefni þessa merkis-
afmælis. J. Á. J.