Ísfirðingur


Ísfirðingur - 13.11.1976, Síða 1

Ísfirðingur - 13.11.1976, Síða 1
BíAÐ TRAMSOKNAKMANNA / l/ES TFJARÐAKJORDÆM! 26. árgangur. ísafirði 13. nóvember 1976. 21. tölublað. Sjötugur: EYSTEINH JÓNSSON Látin: Vigdís Steingrímsdóttir Eysteinn, Jónsson, fyrrver- andi ráðherra og alþingismað- ur, er sjötugur í dag. Hann er fæddur á Djúpavogi 13. nóv- ember 1906. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Hans- dóttir, f. Beck og séra Jón Finnsson. Eysteinn lauk námi í Samvinnuskólanum 1927. Næstu árin vann hann í Stjórnarráðinu og á Skatt- stofu Reykjavíkur. Skatt- stjóri í Reykjavík er hann á árunum 1930 til 1934. Fjár- málaráðherra 1934 til 1939 og aftur fjármálaráðherra 1950 til 1958. Viðskiptamálaráð- henra 1939—1942 og mennta- málaráðherra 1947—1949. Prentsmiðjustjóri prentsmiðj- imnar Eddu h.f. 1942—1947. Alþingismaður Suður-Múla- sýslu 1933—1959 og Austur- landskjördæmis 1959—1974. eða þingmaður samtals yfir 40 ár. Formaður Framsóknar- flokksins var Eysteinn í mörg ár og Iengi var hann formaður iþingflokks Fram- sóknarmanna. Hann hefur setið 1 stjóm Sambands ísl. samvinnufélaga frá árinu 1944, iíengi varaformaður og nú formaður stjómarinnar. Hann var mikill unnandi náttúruvemdar og nú for- maður samtakanna um nátt- úruvemd þ.e. Náttúruverndar- ráðs. Hér hefur aðeins verið stiklað á því stærsta í störf- um Eysteins Jónssonar, en fjölda mörgum öðrum mikil- vægum trúnaðarstörfum hefur hann gengt, setið í ýmsum ráðum og nefndum, þ.á.m. mörgum milliþinganefndum. Um stjórnmál hefur Ey- steinn skrifað mikið, bæði í Tímann svo og fjölda rita sem gefin hafa verið út í sér- prentun. Alit frá því að Eysteinn Jónsson hóf afskipti af stjóm- málum, eða í meira en 40 ár, hefur hann verið einn af allra atkvæðamestu stjórnmála- mönnum þjóðarinnar. Enginn annar núlifandi íslenskur stjórnmálamaður hefur unnið Svona er nú fjármálastjórnin Fjármálum ísafjarðarkaupstaðar er nú þann veg komið, að auglýst hefur verið að Vatnsveita ísafjarðar og hafnsögubáturinn, Þytur verði seld á opinberu upp- boði vegna vanskila. Þetta er árangurinn af fjármála- legri forsjón núverandi mieirihluta bæjarstjórnar ísa- fjarðar. Það er árangur loforðanna og fyrirheitanna sem þessir menn, gáfu bæjarbúum þegar þeir voru að falast eftir atkvæðum þeirra í síðustu bæjarstjórnar- kosningum. Vatnið er frumþörf lífsins. Fer það nú ekki að verða nokkurt umhugsunarefni bæjarbúum þegár svo er komið, að Vatnsveita bæjarins er auglýst til uppboðs vegna vanskila þeirra, sem boðist hafa til að stjórna fjármálum kaupstaðarins? þjóð sinni meira og betur en hann og heill og óskiptur hefur hann gengið að þjóð- málastörfum sinum. Hann er mikill málafylgjumaður, framúrskarandi góður ræðu- maður og jafn vígur hvort heldur er í sókn eða vörn. Fáir eða engir þingmenn munu hafa verið Eysteini leiknari í því að draga fram vafninigalaust og leggja áherslu á aðalatriði þess máls sem um var fjallað hverju sinni. Eiginkona Eysteins er Sól- veig Eyjólifsdóttir, múrara í Reykjavík Jónssonar. Um leið og Eysfeini Jóns- syni og fjölskyldu hans er árnað allra heilla í tilefni sjötugs afmælisins, eru hon- um færðar þakkir fyrir mikil og farsæl störf í þágu þjóðar- innar allrar. Jón Á. Jóhannsson Vigdís Steingrímsdóttir, Tjarnargötu 42 Reykjavík, ekkja Hermanns Jónas- sonar, fyrrwrandi forsætis- ráðherra og alþingismanns Vestfjarðakjördæmis, and- aðist 2. þ.m. Hún var fædd 4. októ- ber 1896, dóttir Margrétar Þorláksdóttur og Stein- gríms Guðmundssonar, húsasmíðameistara. Vigdís giftist Hermanni Jónassyni 30. maí 1925. Hún var kona vel menntuð og ágætlega greind. Öllum skyldum sínum gegndi hún svo vel að til fyrirmyndar þótti. Að sjálfsögðu kom það margoft í hennar hlut að taka, ásamt manni sínum, á móti þjóðhöfðingjum og ráðherrum frá öðrum lönd- um. Börn þeirra Vigdísar og Herman.ns eru Steingrímur alþingismaður og Pálína, húsmóðir í Reykjavík. Jarðarför Vigdísar var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík 10. þ.m. Hjálpartækjabanki Nú hefur náðst sá áfangi að starfræksla Hjálpartækja- stofnunar er hafin á vegum Rauða kross íslands og Sjálfs- bjargar landssambands fatl- aðra. Aðdragandinn hefur verið nokkuð langur eða allt frá árinu 1967, þegar hugmynd að hjálpartækjamiðstöð ein- hverskonar kom fram hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands. Eiginiegur undirbúningur að stofnun Hjálpartækjabanka hófst þó nokkru síðar eða siðla árs 1973, fyrir forgöngu Rauða kross íslands sem kall- aði saman fund með ýmsum aðilum, sem á einn eða annan hátt eru tengdir málefnum fatlaðra á sviði hjálpartækja. Árangurinn varð sá að Rauði kross íslands og Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra tóku höndum saman um að koma á fót Hjálpartækjabanka. Hjálpartækjabankinn hefur haft opna afgreiðslu í Nóa- túni 21 frá júlí s.l. en tekur nú formlega til starfa. Nú þegar hefur fjöldi fólks bæði einstaklingar og hópar heim- sótt bankann. Það er sérstakt ánægju- efni hvaða áhuga fólk í heil- brigðisstéttum hefur sýnt Hjálpartækjabankanum. Markmið Hjálpartækjabank. ans er að leigja, lána og selja ýmis hjálpar- og endur- hæfingartæki, auk fræðslu- starfs í framtíðinni. Meðal annars hefur Hjálpartækja- bankinn fyrirliggjandi hjóla- stóla, göngugrindur, göngu- stafi, armstafi og fleira. Forstöðumaður Hjálpar- tækjabankans er Björgúlfur Andrésson. NORRÆNA FÉLAGIÐ Norræna félagið heldur aðalfund n.k. simnudag þ. 14. nóv. kl. 5 í Húsmæðraskól- amnn. Auk venjulegra aðalfundar- starfa verður rætt um breyt- ingar á félagsgjöldum og ýmislegt varðandi réttdndi félagsmanna, í sambandi við fyrirgreiðslur vifð ferðalög ofl. Félagar eru eindregið hvattir til að mæta og taka virkari þátt í félagsistarfinu en verið hefur. Rannveig Hermannsdóttir, Austurvegi 12 ísafirði, átti sextugsafmæli í gær, þann 12. nóvember. Hún er ágætlega starfhæf kona, hefur m.a. unnið mikið að félagsmálum og er nú formaður kvenfélags- ins Ósk. í iiðlega 20 ár hefur hún unnið á skattstofunni á ísafirði og hefur því mikla reynslu og yfirsýn um fram- kvæmd skattamála. Rannveigu er óskað allra heilla í tilefni þessa merkis- afmælis. J. Á. J.

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.