Ísfirðingur


Ísfirðingur - 14.01.1978, Síða 1

Ísfirðingur - 14.01.1978, Síða 1
28. árgangur. fsafjörður, 14. janúar 1978 2. tölublað. Halldór Kristjánsson: Áramót 1977-1978 Árið 1977 hefur verið ís- lendingum gott ár. At- vinnulíf hefur verið með blóma og utanríkisviðskipti hagstæð. Þó hafa ýmsir þungar áhyggjur af þjóðar- búskap. Og fréttir þær sem mest umtal hafa vakið að undanförnu eru margar fjarri því að vera uppör- vandi. Kvíðvænleg ótíðindi. Tvenn eru þau ótíðindi sem mestan óhugnað vekja. Annars vegar eru slysafrétt- ir, einkum úr umferðinni. Hitt eru tiðindi af ýmis kon- ar misferli i fjármálum. Þó að sumt af þessu sé af ó- skyldum rótum runnið kem- ur það þó að nokkru saman. Ókærni og virðingarleysi fyrir annarra rétti segir til sín í umferðinni svo sem í fjármálum. Og stundum er drykkjuskapur orsökin. Hér verður ekki fjölyrt um þá ógæfumenn sem við þessi ótíðindi koma. Þar eru meðal annarra hæfileika- menn sem tekið hafa góðar gáfur að erfðum, unnið sér álit og- verið syndur ýmis konar trúnaður, - stundum mikill. En ekki er hægt að ganga þegjandi framhjá þar sem svo hörmuleg tiðindi gerast. Drykkfelld þjóð sem lifir um efni fram hlýtur að eiga sér mörg fórnarlömb af þessu tagi. Hagfræði verð- bólgunnar, þar sem ráðið til að auðgast er að kaupa í skuld og borga ekki nema að litlu leyti, en menn tapa á því að leggja fyrir fé, er ekki til þess fallin að styrkja gamalt og gott siðferði. Annars verður ekki rætt hér að neinu ráði um hinar dýpri orsakir auðnuleysis og óvöndunar í mannfélaginu íslenska. Kjarabarátta - kauphækkanir. Almennar kauphækkanir á liðnu ári voru um það bil 60%. Hins vegar hefur það ekki skapað kyrrð á vinnu- markaði. Verkalýðsfélög á Vestfjörðum gátu sagt upp samningum með saman- burði við hækkun við opin- bera starfsmenn. Verslunarmenn hafa mælst til þess að sínir samn- ingar séu endurskoðaðir vegna þess hve vel sé gert við opinbera starfsmenn. Hins vegar verða þeir að bíða þar til samningar renna út. Meðal opinberra starfs- manna gætir sums staðar vanmáttarkenndar vegna þess að þeir séu reynslulaus- ir og vankunnandi í verk- föllum en annars staðar ber þó á glöðu stolti yfir því, að þeir séu nú loksins byrjaðir að stunda þá íþrótt og þetta standi allt til bóta. Hitt er annað mál áð kjarabætur þykja ekki í réttu hlutfalli við kaup- hækkanir. Þess eru dæmi að þeir sem studdu tvö verkföll á árinu og þótti árangur þeirra alltof lítill hafa talað eins og þeir teldu ástæðu- laust að fjárlög hækkuðu og ríkissjóði væri aflað meiri tekna en áður. Þó munu þessir sömu aðilar ekki verða neinir eftirbátar í því, að heimta að ríkistjórnin sjái ráð til þess að atvinnu- vegirnir verði reknir með fullum afköstum. Viðurkennum vald sféttanna og setjum þeim sjálfdæmi. Þetta sem nú var rakið á sér ýmsar hliðstæður með öðrum þjóðum. í deilum um skiptagjörðina hugsar hver og einn um sinn hóp, að hann haldi sinu hlutfalli og verði ekki afskiptur. Hvergi liggur fyrir neitt við- urkennt mat eða dómur um það, hvaða hlutfall eigi að gilda. Hóparnir ógna með verkfallsvopninu. I því fellst ógnun um stöðvun og eyði- leggingu. Fulltrúar atvinnu- rekenda og ríkisvalds eru næsta máttvana gegn þessu. Hvað geta þeir látið eyði- leggja? Mörgum er ljóst að þessi mál verður að taka öðrum tökum. En hverjum? Lítið hefur borið á tillögum um það. Þó hefur verið vikið að því í þessu blaði, að koma þurfi á samvinnu og samn- ingum milli stéttanna. Lát- um launþega hafa sjálf- dæmi um kauptaxta. En látum þá ákveða í einu launakjör verkamanna, iðn- aðarmanna, sjómanna, verslunarmanna og opin- berra starfsmanna. Það verður auðvitað að fylgja þessari tilhögun að launþegasamtökin beri á- byrgð á og stjórni marktækT um fyrirtækjum, svo sem t.d. Bæjarútgerð Reykjavík- ur, fiskiðjuveri, vélsmiðju, verslun o.s.frv. Rökin fyrir þessu eru þau að sfettarfélögin eru nú jaeg- ar nálægt því að hafa sjálf- dæmi í reynd en er hins vegar haldið í innbyrðis samkeppni. Hins vegar er það almenningur sem launabyrðin lendir á að lok- um. Utgerðarmenn og stjórnendur iðjustöðva beina kröfum sínum til rík- isvaldsins. Hvenær hefur stjórnarandstaðan brugðist þeim í því að heimta lausn frá ríkisstjórninni? Úrræði og úrræðaleysi. Það hefur sýnt sig að með því lagi sem verið hefur á stjórn efnahagsmála og kjaramála eru ríkisstjórnir næsta vanmáttugar. Saman- burður á núverandi stjórn og vinstri stjórninni sem var á undan henni er mjög lærdómsríkur að því leyti. Hér er um það að ræða sem engin ríkisstjórn ræður við. Sumar hrópa um sterka stjórn. Þó veit enginn hvað þeir eiga við og síst þeir sjálfir. Fáir munu hafa trú á því, að stjórnað verði með lögregluvaldi og harðstjórn svo að betur fari. Vandinn er einkum sá að tengja sam- an raunverulegt vald og á- byrgð. Þá næst fram það sem best er í mönnum í frjálsu samstarfi og samn- ingagerð. Kosningaár. Komandi ár er kosninga- ár. Gagnlaust er að hafa uppi kosningaspár og' skal ekki gert. En ekki er því að leyna, að það er býsna ör- lagaríkt hvernig þær kosn- ingar fara. Því hljóta hugs- andi menn að leiða hugann að því, hvers sé að vænta af stjórnmálaflokkunum og hvað myndi gerast ef áhrif þeirra hvers og eins væru aukin. Framhald á 2. síðu Glæsilegt fiskiskip Laugardaginn 7. þ.m. af- henti Guðmundur Marsell- íusson, forstjóri, f.h. M. Bernharðsson skipasmíða- stöð hf. á ísafirði, Völusteini hf. í Bolungarvík nýsmiðað og glæsilegt fiskiskip, Heið- rúnu Is-4. Guðfinnur Einarsson, framkvæmda- stjóri, tók við skipinu fh. Völusteins hf. Heiðrún er 397 brúttó- lestir, lengd skipsins er 40,98 m og mesta breidd 8,61 m. Skipatækni hf. teiknaði skipið, en aðalhönnuður þess er Bárður Hafsteinsson, skipaverkfræðingur. Skipið er stálskip, byggt sem skut- togari en er einnig útbúið til línu- og nótaveiða.Aðalvél skipsins er Alpha Diesel 1450 ha. og er hún gerð fyrir brennslu svartolíu. Skrúfa skipsins er fjögurra blaða skiptiskrúfa. Hjálparvél er af Bauduuin gerð 323 ha. Stýrisvélin er Tjenford, raf- stýrð. Togvinduútbúnaður skipsins er allur hinn full- komnasti og fiottrollsvindan er vökvadrifin frá aðalvél. Fiskilestar eru 340 rúmm. Heiðrún er búin öllum nýj- ustu og fullkomnustu fiski- Framhald á 3. síðu

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.