Ísfirðingur


Ísfirðingur - 13.05.1978, Page 1

Ísfirðingur - 13.05.1978, Page 1
28. árgangur. isafjörður, 13. maí 1978 13. tölublað Guðm. Sveinsson: Kristinn J. Jónsson: Hvers vegna svona vinnubrögð ? Gera þarf átak í fegrun bæjarins Undanfarin þrjú ár hefur verið unnið við Seljalands- veginn inn fyrir Stakkanes, og er búið að skipta um lagnir í honum. Fyrst voru aðalalgnir lagðar og mokað vandlega yfir. Næsta ár var veginum aftur lokað, því nú þurfti að tengja lagnir hús- anna við veginn við aðalæð- arnar. Vitanlega var þetta margfalt dýrara, að viðhafa svona vinnubrögð, en að láta vinna allt verkið jafn- hliða. í fyrrasumar var svo sett olíumöl á þennan spotta, sem reynst hefur sæmilega, þrátt fyrir óþarfa vatnselg á veginum. Að minnsta kosti hefur það reynst mun betur en malbikið á Hafnarstræti, sem Miðfell h.f. lagði þar, og er nú að verða uppurið. í Vesturlandi, sem út kom 21, apríl s.l., er grein eftir G.H.Í. sem hann nefnir „Uppgjör-Kosningar“. I grein þessari kemur fram svo gífurleg sjálfsánægja með stjórn bæjarins s.l. 7 ár, að það liggur við að manni ofbjóði, þar sem raunin er allt annað en góð stjórn á svo mörgum sviðum bæjar- mála, að mér finnst. Þar sem G.H.I. býður í grein sinni hvaða bæjarbúa sem er til viðræðna um bæj- armál, hvar og hvenær sem er, ætla ég að leggja fyrir hann nokkrar spurningar: 1. Finnst þér G.H.Í. það góð stjórn, að nú skuli svo hörmulega komið í Slipp- málum Isafjarðar, að nú er ekki hægt að taka á land hvorki stóran né smáan bát Og hvaða áhrif eða tillög- ur hefur bæjarstjórn haft á þessi mál til úrbóta ? Það hlýtur að varða bæjarfélagið miklu, að þessi mál komist sem fyrst í gott lag. En það hefur gleymst við Seljalandsveginn að snyrta og laga kantana, þar er allt ófrágengið og ekki áætlað fé til þess. Hörmulegast er að sjá hvernig farið er með Blóma- garðinn, þennan fagra reit, 2. Finnst þér það góð stjórn, að ennþá þurfa alltof margir bæjarbúar að vaða aur og drullu fyrir framan hús sín ef regnskúr kemur úr lofti, og það eftir það góðæri sem hér hefur verið undan- farin 7 ár ? 3. Er það gott eða boð- legt, að ekki skuli vera til eitt einasta almenningssal- erni í bænum, eða snyrtiað- staða fyrir ferðamenn og aðra ? sem hjónin Karlinna og Jón klæðskeri vörðu frístundum sínum til að rækta og prýða. Aur og möl frá bökkum Seljalandsvegar rennur inn i garðinn, svo og að 50 ára gömlum steinsteyptum vegg meðfram garðinum. Svo mikið er fyllt upp að veggn- um, að hann er á góðri leið með að velta inn í garðinn. Það hefur margoft verið minnt á það í bæjarráði og bæjarstjórn að láta moka frá veggnum, en alltaf talað fyr- ir daufum eyrum. Þannig er nú farið með frístunda- og fegrunarstarf þeirra sem fluttir eru frá okkur. Hver vill nú hefja upp merkið, sem þau Karlinna og Jón fluttu frá af heilsufarsástæð- um ? Við bíðum og sjáum. G.Sv. 4. Er það rétt, að númer eitt í hafnarmálum á ísa- firði sé flotbryggja fyrir sportbáta ? 5. Er það rétt, að Lands- bankanum hafi verið út- hlutuð lóð við Miðtún, sem væntanlega yrði nr. 17, án þess að nokkrum öðrum hafi verið gefinn kostur á lóð- inni, og að jafnvel aldrei hafi átt að byggja þar ? Ekki hef ég spurningarn- ar fleiri, þó óneitanlega væri gaman að spyrja margs ann- ars og fá svör við. Vonandi á margt eftir að koma frá bæjarfulltrúum og væntan- legum bæjarfulltrúum fram að kosningum, sem fróðlegt verður að fylgjast með. Vissulega er gott að geta státað af flottum og rúm- góðum bæjarskrifstofum og góðri starfsaðstöðu starfs- fólks, sérstaklega ef bærinn ætti húsnæðið. Mér dettur í hug skipstjóri sem færi að skrifa hól um skip sitt og Framhald 4 2. afðu Ef ræða á málefni bæjar- ins er af mörgu að taka og verður ekki gert til hlítar í stuttri blaðagrein. Örfá at- riði ætla ég að nefna, aðal- lega þau, er varða útlit bæj- arins. Krafa íbúa um bundið slitlag á götur og gangstíga er eðlileg og þjónar tvenn- um tilgangi, annars vegar er sú hlið sem að bílaumferð snýr, og hins vegar breytir ekkert útliti á einu bæjarfé- lagi eins mikið og vel lagðar götur og snyrtilegar gang- þrautir. Verður því að setja gatnagerð ofarlega á fram- kvæmdalistann. Gera verð- ur og fjármagna áætlun um að leggja bundið slitlag á allar götur og þau bílastæði sem bærinn á og sér um. Gangbrautir verða að sjálf- sögðu að fylgja með í þessari áætlun, sem helst má ekki taka lengri tíma en 3 til 4 ár. Til þess að fjármagn nýt- ist sem best þarf að kanna hvaða verkþætti borgar sig að bjóða út til verktaka og hvað þarf að endurnýja af tækjakosti bæjarins, svo eins vel sé að verki staðið og frekast er unnt. Eitt af þeim verkefnum sem fjármagna þarf á næsta ári er tenging vegarins inn með sjónum og inn á Stakkanes. Ef vel ætti að vera þyrfti að vinna hluta af þessu verki í haust, en ekkert fé er á áætlun bæjarins til þessa verks í ár. Vegagerð ríkisins áætlar hins vegar að gera sinn hluta akfæran næsta sumar og æskilegt væri að bærinn lyki sínum hluta um svipað leyti. Þegar ekið er um bæinn blasa víða við skúraræksni í niðurníðslu, bílhræ og jafn- vel hálfbrunnin hús. Þá hef- ur bæjarbryggjan lokið sínu hlutverki. Bæjaryfirvöld verða að vinna markvisst að því að þau mannvirki, sem til lýta eru, séu annaðhvort fjarlægð eða eigendum þeirra gert skylt að hressa upp á útlit þeirra. Mörg opin svæði bæjarins eru til lítillar fyrirmyndar og má þar nefna sjúkrahústúnið sem í áföngum væri hægt að gera að skrúðgarði á fáein- um árum. Fleiri svæði má nefna, en ég læt þetta nægja að sinni. Nýráðinn garðyrkjumann bæjarins býð ég velkominn, hans býður mikið starf. Ég óttast þó að fjárhagsáætlun bæjarins geri ekki ráð fyrir því fjármagni honum til handa, sem þarf til þess að umtalsverður árangur náist, í fegrun opinna svæða í bænum. Þá er lausaganga búfjár, aðallega hesta og sauðfjár,í bænum eitt af því, sem verður að koma í veg fyrir. Girðingar þær sem loka áttu miðhluta bæjarins eru í reynd gagnslausar, eins og sést hefur undanfarin sumur þar sem hestar og sauðfé eru á beit í hópum dag eftir dag á stöðum eins og Sjúkrahús- túninu og Menntaskólalóð- inni. Um nætur er þessi sami fénaður í blómabeðum og í ruslatunnum bæjarbúa. Sú aðferð að smala eitt bæjarhverfið og reka fénað- inn yfir í það næsta er ekki lausn og verður ekki við un- að til lengdar, því forsenda þess að fólk leggi í kostnað við lagfæringu og fegrun lóða sinna er sú von, að það fái frið með viðkvæman gróður fyrir ágangi þessa annars ágæta fénaðar. Krlstlnn J. Jónsson Sigurjón Hallgrímsson: Sjósókn og fiskvinnsla er undirstaðan

x

Ísfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.