Ísfirðingur - 25.01.1983, Qupperneq 4
FYRIRLIGGJANDI
Flestar tegundir af tógi
frá Hampiðjunni h/f Reykjavík
Netagerð Vestfjarða h/f Grœnagarði
Við aramot
Vestfirðingum óska ég árs
og friðar og þakka hið liðna.
Áramót eru tímabil upp-
gjöra og gjarnan horfa
menn bæði yfir liðna tíð og
fram á veginn. Af hinu liðna
ber að læra, til að auðvelda
viðureignina við vandamál
framtiðarinnar. I saman-
burði við aðrar þjóðir fer
það ekki á milli mála, að
fslendingar hafa það gott og
mega þakka guði fyrir, að
það böl, sem mest þjakar
mannkynið, stryjaldirnar,
þekkjum við aðeins af af-
spurn. Þannig opnuðu ís-
lendingar sína jólapakka án
ótta við að í þeim fælust
sprengjur.
Hungurdauða eða drep-
sóttir þekkja flestir fslend-
ingar einnig af afspurn. Það
eru þó ekki liðin 100 ár
síðan menn dóu hungur-
dauða í þessu landi og
spánska veikin geisaði á
þessari öld. Sumir segja, að
Þar sem nú ríður húsum víða um land, draugur
af suðvesturhorni landsins er nefnist „Atkvæðajafn-
vægi“ og í því sambandi veittst mjög að Vestfjarða-
kjördæmi, þá þykir ekki óeðlilegt að af fornum
fjölkyngissvæðum kjördæmisins komi nokkur send-
ing á móti er kalla mætti ,,aðstöðujöfnuð“. í því
sambandi komu fram eftirfarandi hugrenningar:
Um atkvæðajafnvægi ýmsir
í hofmóði skrafa,
en aðtöðujöfnuð með
þaggandi tunguslátt hafa.
Útkjálkalýður skal
afglapa sinna njóta
og útskúfun menningar-
straumanna bótalaust hljóta.
Alþingi mætti að ósekju
flytjast í norður.
Á fsafirði það gæti vel
„hannast í skorður,
og kjördæmið sleppti þá
þorra af þingmönnum sínum
því þar yrði efalaust
grúi af stofnunum fínum.
Þá væri okkur borgið
með samgöngur sólarhring allan
og sæi alls enginn
rómaða dreifbýlisgallann.
þægilegt væri að
reika í Ráðuneytin
og rétta sinn hlut
er beindust að manni skeytin.
Og búsetu hefði þar
obbinn af alþingismönnum,
og efalaust lýsti af
stóriðjurafhnöttum sönnum.
Höfuðborgin hlyti þá
uppbótasætin
Hugsið þið bara hve
þar yrði dillandi kætin.
Cr Vestfjarðakjördæmi
kæmi á Suðurnesin
kappar á Alþing,
já þá yrði gleðibæn lesin
fyrir þá úrlausn
er þegnarnir þarna fengju.
Þakkirnar yrðu sjálfsagt
á 12 álna lengju.
6. des. 1982
fngimundur á Svanshóli
kynslóðabilið á íslandi mið-
ist við það hverjir eru fæddir
fyrir heimsstyrjöldina síðari
og hverjir eftir. Samt er það
svo, að hver kynslóð hefur
við sín vandamál að glíma
og þeir, sem eldri eru,
gleyma því gjarnan, að
vandamál hins unga og
eignalausa getur verið stórt í
þeirri veröld efnishyggju,
sem við lifum í og margir
æskumenn bugast og láta
lífsflótta ná tökum á sér.
Olafur Þ. Þórðarson
Þeir velja sér veröld í vímu
og gleyma því, að mesti auð-
ur hvers manns er óeydd
ævi.
STÉTTARÁTÖK
Merkilegt er það, að í
kreppunni eftir 1930, þegar
séttarátök voru hvað hörð-
ust, voru sjúkrahúsin höfð
sem griðlönd og ekki talið
sæmandi að deila svo hart
um kaup og kjör, að lífi
sjúklinga stafaði hætta af.
Nú virðast stéttardeilur á
íslandi vera að komast á það
stig, að engin griðlönd eru
eftir. Með þessu er ekki ver-
ið að deila á einstakar stétt-
ir, en verkfallsvopnið getur
verið mishættulegt eftir því
hvaða störf menn vinna.
Svo virðist sem foringjasveit-
ir í séttarátökum telji, að
einstaklingurinn skuldi
hvorki guði sínum né fóstur-
jörð æðsta trúnað, heldur
stéttarfélagi sínu. Satt best
að segja stendur mér meiri
ógn af þessu fyrirbrigði í
íslensku þjóðlífi en flestu
öðru. Þetta miskunnarleysi
kemur fram á fleiri sviðum,
m.a. i busavígslum fram-
haldsskólanna. Það birtist
jafnvel þegar menn fagna
námsáföngum í þessum
Framlmlcl cí hl.s. 3
Munið þorramatinn Fyrir einn mann verð 120.-
og þorrabakkana Fyrir tvo menn verð 230,-
ALLTÍ LOFTTÆMDUM UMBÚÐUM
# KAINbAC ÍSFIKDIAIGA
I stuttu máli
Jónas Eyjólfsson, formaöur Lögreglufélags Vestfjarða,
afhendir Herði Guðmundssyni flugmanni viðurkenning-
arskjalið. DV-mynd: Valur Jónatansson.
Jónas í felum
Stjórn Lögreglufélags
Vestfjarða aflienti í fyrra
mánuði Flugfélaginu
Ernir h/f og Herði Guð-
mundssyni, flugmanni,
viðurkenningu fyrir frá-
bær störf í sjúkraflugi s.I.
14 ár. Segja má að Hörð-
ur hefði fyrir löngu átt að
fá þessa sæmd.
Það sem athygli vekur
er, hve fáir voru viðstadd-
ir frá fjölmiðlum, þegar
þessi afhending fór fram.
Orsakanna er skammt að
leita, því formaður Lög-
reglufélags Vestfjarða, hr.
Jónas Eyjólfsson, rann-
sóknarlögreglumaður á
ísafirði, fer öfugt að við
hið ötula starf Harðar í
sjúkraflugi. Hefur Jónas
harðneitað að aðstoða við
sjúkraflutninga á landi.
Lái honum hver sem
er, þótt hann vilji láta
lítið á þessu bera.
G.S.
Mannamatur á ný
Rosafrétt ársins kom
frá yfirnefnd um fiskverð,
sem hefur ákveðið að
borga meira fyrir góðan
fisk en lélegan.
I fyrra var ákveðið að
borga hærra verð fyrir
lélegan fisk og áhrifin létu
ekki á sér standa. Hundr-
uð tonna af saltfiski og
skreið hafa verið send til
baka sem óæt vara. Það
virðist sem það gleymist,
að menn eru með mat-
væli undir höndum.
Barnabörnin borga
Hin nýja aukning á or-
lofi mun kosta ríkissjóð
271 stöðugildi. Efnaðir
menn íslendingar og
flottir, þótt allt gangi fyr-
ir útlendum lánum, einn-
ig þessi nýju frí. En þeir
sem eftir koma skulu
borga, það er stefnan í
dag.
Skoðanakönnun í
V estfj arð akj ördæmi
Dagana 29. og 30. janúar n.k. efnir kjördæmisráð
framsóknarfélagana í vestfjarðakjördæmi til skoðana-
könnunar um val manna í 4 efstu sæti framboðslistans í
komandi alþingiskosningum.
Atkvæðisrétt hafa allir íbúar vestfjarðakjördæmis sem
fæddir eru fyrir 1. janúar 1966, eru ekki félagar í öðrum
stjórnmálaflokkum og skrifa undir stuðningsyfirlýsingu
við stefnu Framsóknarflokksins.
Atkvæðagreiðsla utan kjörstaða hefst laugardaginn
22. janúar og sjá framsóknarfélögin hvert á sínu svæði
um framkvæmdina.
í Reykjavík verður hægt að greiða atkvæði á skrifstofu
Framsóknarflokksins Rauðarárstíg 18, dagana 24.-28.
janúar frá kl. 9:00 — 17:00.
Á ísafirði verður hægt að greiða atkvæði á skrifstofu
féllagsins að Hafnarstræti 8 sem hér segir.
22. janúar, kl. 15 -18.
23. janúar kl. 15 -18.
24-28. janúarkl. 20 - 22.
29. janúar kl. 15 -18.
30. janúar kl. 13-19.