Ísfirðingur - 19.04.1983, Síða 2
2_
f
ÍSFIRÐINGUR
SlAD IRAMSÓKNAQMANNA Í Í/ES7FJARDAKJÖRDÆMI
Utgefandi:
Kjördæmissamb. Framsóknarmanna í Vestfjarðakjördæmi.
Blaðstjórn:
Halldór Kristjánsson og Magnús Reynir Guömundsson
ritstjórar, Björn Teitsson, Guðmundur Ingi Kristjánsson,
Guðmundur Sveinsson, ábm., Ingibjörg Marinósdóttír og
Jens Valdimarsson. Pósthólf 253 ísafjörður.
V
Viljum við flokkaglundroða
eða stjórnfestu?
Nú er komið að kosningum til Alþingis, og má helst
telja það til sérkenna þessara kosninga, að í flestum
kjördæmum landsins eru í framboði sex listar. Mikill
meirihluti þjóðarinnar getur þannig valið á milli
óvenju margra kosta að þessu sinni. Á meðan barátt-
an er háð bíða efnahagsmálin úrlausnar, og það sem
merkilegra er: Sjálfstæðisflokkur, Alþýðubandalag og
Alþýðuflokkur virðast hafa fullan hug á að efna
þegar í sumar eða haust til nýrra kosninga og láta
þjóðarskútuna vera sem stjórnlausasta á meðan. Eftir
síðari kosningarnar má vænta, ef að vanda lætur, að
tvo mánuði taki að mynda stjórn.
Öllum skynsamlega hugsandi mönnum ætti að vera
ljóst að íslenska þjóðin, sem að undanförnu hefur
lifað nokkuð um efni fram og á nú við ýmislega
efnahagsörðugleika að etja, má ekki við stjórnleysi
fram á næsta haust eða vetur. Alþingi því sem kjörið
verður nú hinn 23. apríl ber siðferðisleg skylda til að
koma sér saman um myndun starfhæfrar ríkisstjórnar
hið fyrsta.
Eðlilegt er að spurt sé, hvernig stjórn verði eigin-
Iega unnt að mynda. Þessu er ekki fljótsvarað.
Stjórnir á íslandi hafa yfirleitt verið tveggja flokka
stjórnir eða þriggja flokka stjórnir. Vafalaust er að
hinar fyrr töldu, tveggja flokka stjórnirnar, hafa
yfirleitt reynst samstæðari og starfhæfari en þriggja
flokka stjórnirnar, þó að þessi regla sé ekki algild.
Augljóst er hvernig á þessu stendur. I stjórnarsam-
starfi flokkanna þurfa alltaf öðru hvoru að fara fram
málamiðlanir, og samkomulag næst yfirleitt fyrr og
það endist betur, ef samningsaðilar eru fáir, helst
aðeins tveir. Þessu er vert að veita athygli. Hér skal
engu spáð um það, hvernig stjórn verði næst mynduð
á f slandi. Flokkafjöldinn, sem fyrr var á minnst, gefur
fremur óheillavænlegar vísbendingar. Vilmundar-
flokkur, kvennalistar og önnur klofningsframboð
hafa ekki komið upp vegna þess að neinir hafi verið
reknir úr hinum eldri flokkum, og ekki virðist mikið
fara fyrir málefnalegum ágreiningi hinna nýju aðila
við eldri flokkana. Ágreiningurinn virðist í fljótu
bragði séð aðallega snúast um persónur. Konur gætu
haslað sér völl innan hinna venjulegu flokka og náð
þar verulegum völdum, ef þær stæðu saman um slíkt.
Vilmundur tapaði naumlega í varaformannskjöri í
Alþýðuflokknum, og þá móðaðist hann og fór. Sigur-
laug fór í sérframboð á Vestfjörðum vegna þess að
gamli flokkurinn hennar hélt ekki prófkjör. í öllum
þessum tilvikum ráða stefnur í efnahagsmálum, sem
eru mál málanna á íslandi nú, engu um klofninginn,
heldur kemur til margskonar persónuleg óánægja og
sundurlyndi.
Þýska Weimar-lýðveldið var frægt á sínum tíma
fyrir geigvænlegan flokkafjölda og stjórnmálaglund-
roða, sem lauk með valdatöku Hitlers. Frakkar voru
að sínu leyti heppnari þegar 4. lýðveldi þeirra, sem
einkennst hafði af svipuðum flokkafjölda, lauk með
valdatöku deGaulle, sem var hæfur stjórnandi. Von-
andi er að hinum íslenska flokkaglundroða, sem við
virðumst standa frammi fyrir á sama tíma og taka
þarf efnahagsmálunum ærlegt tak, ljúki ekki með
hliðstæðum hætti og gerðist í þessum löndum. Þing-
ræðið hefur gefist vel á Norðurlöndum, í Bretlandi og
miklu víðar. Framkvæmd þess er þó að miklu leyti
bundin því skilyrði að flokkar séu ekki margir.
Framsóknarmenn leggja eindregið til að þegar að
Eflum hlut dreifbýlis... hraniluiltl af Itls. I
anum. f þessum málum
hafa orðið miklar framfarir
undanfarin ár með endur-
bótum á flugvöllum og
bættum skipakosti og betra
skipulagi Skipaútgerðar rík-
isins. Eru nú miklar vonir
tengdar við hið nýja strand-
ferðaskip, sem væntanlegt er
í sumar, svo og við Breiða-
fjarðarferju.
Hvað samgöngur varðar
milli byggða hér á Vest-
fjörðum, hlýtur eina raun-
hæfa lausnin til frambúðar
að vera gerð jarðganga í
staðinn fyrir erfiðustu fjall-
vegina, svo og aukin brúar-
gerð.
Einangrun byggðarlag-
anna verður að rjúfa til að
auka mannleg samskipti og
auðvelda íbúunum þátttöku
í því félags-, menningar- og
athafnalífi, sem hér dafnar.
Fjölskyldan.
Það hefur alltaf verið
sjónarmið Framsóknar-
manna, að meta beri mann-
gildið meira en auðgildið.
Þess vegna verður, jafnhliða
baráttunni fyrir auknum
hagvexti, að huga vel að
stöðu einstaklingsins og (jöl-
skyldunnar, því að hvað
gagnast okkur allur hag-
vöxtur ef við missum sjónar
á öðrum lífsgildum?
Það er í samræmi við
þessi sjónarmið að Fram-
sóknarflokkurinn hefur beitt
sér fyrir aukinni umræðu
um málefni fjölskyldunnar
og stöðu hennar í þjóðfélag-
inu. Tveir þingmenn Fram-
sóknarflokksins hafa lagt
fram þingsályktunartillögu
um fjölskyldupólitík. Það er
lagt til að mótuð verði
ákveðin stefna, sem feli í sér
það meginmarkmið að sköp-
uð verði góð skilyrði fyrir
uppeldi bama og unglinga
og félagslegt öryggi fjöl-
skyldunnar verði tryggt.
M.a. þarf vinnumarkaður-
inn að viðurkenna foreldra-
hlutverkið, þannig að
vinnutími verði sveigjanleg-
ur eftir því sem verður við
komið. Stuðla þarf að eðli-
legri verkaskiptingu karla og
kvenna utan og innan heim-
ilis og endurmeta til launa
hefðbundin kvennastörf.
Tryggja þarf öllum konum
sömu greiðslu fæðingaror-
lofs, án tillits til atvinnu-
þátttöku. Tryggja verður
vellíðan og öryggi bama á
meðan foreldrar vinna úti,
og sjá þarf um að ungt fjöl-
skyldufólk búi við öryggi í
húsnæðismálum hvað varð-
ar leigu og lánskjör.
Nauðsynlegt er að viður-
kenna að fjölskyldan sé
gmnneining þjóðfélagsins,
þrátt fyrir breytta þjóðfé-
lagshætti. Mikilvægur þátt-
ur í fjölskylduvemd er ein-
mitt að stuðlað verði að því
að allir hafí jafna aðstöðu,
án tillits til kynferðis, stöðu,
efnahags eða búsetu.
Góðir Vestfírðingar! Við
Framsóknarmenn boðum
hvorki neyðaráætlun né
leiftursókn heldur þjóðará-
tak til efnahagslegs jafnvæg-
is og framfara. Við munum
ætíð berjast fyrir því að hér
verði gott þjóðlíf í góðu
landi.
Hvað hefur
áunnist...
Framhald af hls. 6
ið keypt, og öðru var hleypt
af stokkunum fyrir nokkrum
dögum. Það skip, ný Esja, er
með þeim fullkomnustu,
sem þekkjast. Eitt vel búið
leiguskip, sem er í notkun
nú, verður væntanlega
keypt. Gömlu skipin, Esja
og Hekla, verða þannig
bæði leyst af hólmi af skip-
um, sem útbúin eru fyrir
nýjustu flutningatækni.
Allt þetta gjörbreytir
möguleikum Ríkisskipa til
þess að þjóna dreifbýlinu,
og þessar breytingar eru
þegar að nokkru komnar til
framkvæmda.
!
Nýjasta Esjan sjósett.
„Hvað samgöngur varðar hér á Vestfjörðum, hlýtur eina raun-
hæfa lausnin til frambúðar að vera gerð jarðganga". Frá Óshlíð.
loknum kosningum 23. apríl snúi þingmenn sér að því
að mynda starfhæfa ríkisstjórn, sem hafi kjark til að
takast á við efnahagsvandann í alvöru. Stjórnmálin
eru — og þá má vísa í frummerkingu orðsins pólitík
— þau mál sem alla samfélagsþegnana varða. Þess
verður að krefjast að um þau sé fjallað með ábyrgð og
festu að leiðarljósi. Reynslan sýnir að einkenni Fram-
sóknarflokksins eru m.a. að hann vill halda landinu
öllu í byggð og sýna festu í efnahagsmálum. Því
verðskuldar hann öflugan stuðning kjósenda.
b.
4. Flugmál.
I flugmálunum hefur
jafnt og þétt miðað fram á
veg. Einkum hefur áhersla
verið lögð á aukið öryggi,
t.d. með aðflugstækjum og
lýsingarbúnaði. Vafalaust
mun hinn nýi flugmálastjóri
vinna vel að framkvæmdum
á sviði flugsins um land allt,
ekki síður en hinn ágæti
fyrirrennari hans gerði.