Ísfirðingur - 28.06.1983, Page 4
Minning:
Jóhannes Davíðsson
frá Nedri-Hjardardal
Jóhannes Davíðsson, frá
Neðri-Hjarðardal í Dýra-
firði, andaðist á Blönduósi
21. apríl s.l. Jarðarför hans
var gerð að Mýrum í Dýra-
firði 29. sama mánaðar.
Hann var fæddur að Álfadal
á Ingjaldssandi í Vestur-
Isafjarðarsýslu 23. septem-
ber 1893. Voru foreldrar
hans hjónin Jóhanna Jóns-
dóttir og Davíð Davíðsson
er ráku bú að Álfadal. Voru
þau hjónin þekkt að myndar-
skap og dugnaði við bú-
reksturinn. Þau voru mjög
áhugasöm um uppeldi
barna sinna. Öll reyndust
börn þeirra hjóna mjög nýt-
ir og liðtækir þjóðfélags-
þegnar.
Eftir þeirrar tíðar hætti
naut Jóhannes staðgóðrar
barnafræðslu og síðar stund-
aði hann nám í Núpsskólan-
um hjá hinum landskunna
skólamanni séra Sigtryggi
Guðlaugssyni. Að því námi
loknu lagði hann stund á
búfræðinám á Hvanneyri og
lauk þaðan prófi 1914. Á
árinu 1917 hóf hann búskap
í Neðri-Hjarðardal í Dýra-
firði í félagi við Kristján
bróður sinn. Þar bjuggu þeir
bræður hinu mesta myndar-
búi þar til Kristján andað-
ist, en þá tók sonur Krist-
jáns við rekstri búsins. I um
það bil 10 ár, eða liðlega
það, hafði Jóhannes ekki
stundað búrekstur. Það
munu nú vera um 2 ár síðan
Jóhannes flutti frá
Hjarðardal til Valgerðar
Kristjánsdóttur, bróðurdóttur
sinnar, sem á heima á
Blönduósi. Þar hafði hann
góða aðbúð síðustu árin. Jó-
hannes kvæntist ekki og átti
ekki börn.
Jóhannes Davíðsson var
ágætlega vel gefinn og
minnugur. Hann var ó-
venjulega mikill félagsmála-
maður og lagði fram gífur-
Jóhannes Davíðsson
lega mikla vinnu í þeim efn-
um í áratugi. Hann var einn
af stofnendum Kaupfélags
Dýrfírðinga, lenti í stjórn
þess og formaður um skeið.
Hann var lengi sýslunefnd-
armaður í V-ísafjarðarsýslu
og um árabil í skólanefnd
Núpsskólans. I stjórn Bún-
aðarsambands Vestfjarða
var hann í áratugi svo og
fulltrúi á Búnaðarþingi.
Hann var lengi í stjórn
Ræktunarfélags sýslunnar. í
stjórn Sparisjóðs Mýra-
hrepps átti hann sæti árum
saman og hann var einn af
stofnendum sjóðsins og lengi
annar starfsmanna hans.
Fulltrúi á fundum Stéttar-
sambands bænda var hann
árum saman. Formaður
fasteignamatsnefndar Vest-
ur-ísafjarðarsýslu var hann
um skeið. Hann var heiðurs-
félagi Ungmennafélags
Mýrahrepps og Héraðssam-
bands V- Isfirðinga. Ýmsum
öðrum trúnaðarstörfum
gengdi hann fyrir sveit sína
og sýslu um lengri eða
skemmri tíma.
Að málefnum Framsókn-
arflokksins starfaði Jóhannes
vel og lengi. Hann var lengi
formaður Framsóknarfélags
sýslunnar og í miðstjórn
Framsóknarflokksins. Eftir
að blaðið IsFirðingur var
stofnað varð Jóhannes einn
af áhugasömustu og bestu
stuðningsmönnum þess.
Hann var mjög áhugasamur
um málefni Kjördæmissam-
bands Framsóknarmanna í
Vestfjarðakjördæmi og sótti
flest þing þess.
Það gefur auga leið að
framantalin og fleiri félags-
málastörf Jóhannesar hafa
verið tímafrek. En hugsjón
hans var að verða sem flest-
um góðum málum að liði.
Jóhannes var hafsjór af
fróðleik um mannlíf og at-
vinnuhætti á Vestfjörðum.
Hann ritaði fjölda greina í
blöð og flutti oft fróðleg er-
indi m.a. í útvarp, um þau
efni. Hann bjó yfir ágætum
frásagnarhæfileika.
Með Jóhannesi er geng-
inn heilsteyptur og velviljað-
ur maður.
Undirritaður vottar að-
standendum hans einlæga
samúð.
Jón Á. Jóhannsson
Bolvíkingar sýna Deleríum búbónis
Leiklistarlífið hefur staðið
með prýðilegum blóma á
Vestfjörðum í vetur. Auk
sýninga Litla leikklúbbsins
á ísafirði hafa Bílddælingar,
Flateyringar og Bolvíkingar
sett upp leikrit. Leikfélag
Flateyrar fór með sitt leikrit,
sem nefndist Húsið á klett-
inum, til sýningar á ísafirði,
Bolungarvík og víðar.
Um hvítasunnuna frum-
sýndi Leikfélag Bolungar-
víkur leikritið „Deleríum
Bubonis“ eftir bræðurna
Jónas og Jón Múla Árna-
syni. Leikritið hefur síðan
verið sýnt nokkrum sinnum
við góðar undirtektir víða
um Vestfirði, nú síðast á
ísafirði 23. júní.
Leikritið „Delerium Bu-
bonis“ var fyrst sýnt af Leik-
félagi Reykjavíkur 1959,
þannig að það er 24 ára
gamalt. Á þeim tíma, sem
liðinn er frá samningu leik-
ritsins hefur boðskapur þess
ekkert úrelst. Þetta er ósvik-
inn gamanleikur með ágæt-
um söngvum, sem skjótt
urðu landfleygir og eru nú
sumir komnir inn í allar
nauðsynlegustu vasasöng-
bækur þjóðarinnar.
Ástæðan fyrir því hve
auðvelt er að skemmta sér
vel á gamanleikjum Jónasar
Árnasonar og þeirra bræðra
er líklega sú að fyndnin er
sérlega markviss og atburða-
rásin kostuleg án þess þó að
vera fáránlega ósennileg.
Bolvíkingum tókst að
þessu sinni vel upp. Aðal-
hlutverkið lék Gunnar
Hallsson, og tókst honum að
túlka persónu Ægis Ó. Ægis
Framhald á 3. siðu
Hópurinn sem sýndl Deleríum búbónis.
í stuttu máli
17. júnífannst ekki
Á ísafirði hafði flogið fyrir að þetta árið ættu að
vera vegleg hátíðahöld 17. júní. f dagskrá, sem birtist í
Vestfirska fréttablaðinu 16. júní og var sama kvöld
borin í hús fjölrituð, var lofað útihátíð kl. 14:00 á
sjúkrahústúninu með fjölbreyttri dagskrá, en um
kvöldið átti að dansa í tjaldi.
Tíðindamaður ísfirðings hugðist veita hátíðahöld-
unum athygli og segja frá þeim í blaðinu. Kl. 14:00
var hann kominn á sjúkrahústúnið, og var þar talsvert
af prúðbúnum bæjarbúum á ferð, enda veður óvenju
gott, úrkomulaust, logn og 8-9 stiga hiti.
En pallurinn sem reistur hafði verið, stóð auður.
Orðrómur var uppi um að hátiðin hefði verið færð til
Hnífsdals. Ýmsir trúðu því varlega og litu inn í
Alþýðuhúsið, en þar var ekki hátíð. Um kvöldið fóru
einnig margir að tjaldinu sem reist hafði verið við hlið
Vefstofubúðarinnar, en það var þá mannlaust. ísfirð-
ingar fundu ekjd'"l 7. júní.
ReyndarJór víst fram fótboltaleikur, og dansað var
í Hnífsdál um kvöldið. Breytingar á dagskrá munu
hafa"verið auglýstar lítillega í hádegisútvarpi sama
dag.
Bœjarstjórn skipi 17. júní nefnd
Hátíðahöldin 17. júní á ísafirði heppnuðust vel í
fyrra, en þá sáu skátarnir um þau. Nú fór allt á aðra
leið, og virðist m.a. hafa gleymst að tala með eðlileg-
um fyrirvara við ýmsa sem koma áttu fram sam-
kvæmt dagskránni.
Þau mistök sem hér áttu sér stað mega helst ekki
endurtaka sig. í mörgum öðrum bæjarfélögum er
með góðum fyrirvara skipuð af bæjarstjórn sérstök 17.
júní nefnd ábyrgra borgara, sem annast hátíðahöldin.
Þetta þýðir að nefndin er háð umsjá bæjarstjórnar-
innar. Eðlilegt virðist að taka þetta fyrirkomulag upp
hér.
Umskipti í álmáli
Um likt leyti og Hjörleifur Guttormsson lét af
störfum sem iðnaðar- og orkumálaráðherra á íslandi,
stórhækkaði verð á áli á heimsmarkaði.
Ýmsir hafa velt því fyrir sér undanfarið, hvort
eitthvert beint samband hafi verið á milli þessara
tveggja atburða. Eitt virðist víst, og það er að forráða-
menn svissneskra álhringsins telja horfur á að þeir nái
samningum við ný íslensk stjórnvöld, enda virðast þeir
fáanlegir til að hækka greiðslur til íslenskra aðila.
Þakkir
Þingmenn og varaþingmenn Framsóknar-
flokksins á Vestfjörðum þakka hinum mörgu, sem
með baráttu sinni tryggðu flokknum betri árang-
ur hér á Vestfjörðum en annars staðar í Alþingis-
kosningunum nú í apríl. Sá mótbyr sem flokkur-
inn hlaut í kosningabaráttunni reyndi á þrek
margra, en það sannaðist að vestfirskir Framsókn-
armenn eru færir um að sigla á móti vindinum.
Orslit kosninganna sýna að Framsóknarflokkur-
inn á harðari kjarna stuðningsmanna á Vestfjörð-
um en aðrir stjórnmálaflokkar.
Nú þarf allt þjóðhollt fólk að standa saman og
vinna að framför landsins alls. Eflum vestfirskar
byggðir!
Steingrímur Hermannsson
Ólafur Þ. Þórðarson
Magnús Reynir Guðmundsson
Magdalena Sigurðardóttir