Ísfirðingur - 30.01.1990, Side 1
/ VES TFJARÐAKJORDGMI
40. árg.
Þriðjudaginn 30. janúar 1990
1. tbl.
Hólmavík 100ára
Þann 3. janúar 1890 gaf „Christian hinn Níundi, af guðs
náð Danmerkur konungur, Vinda og Gauta, hertogi í
Sljesvík, Holtsetalandi, Stórmæri, Þjettmerski, Láen-
borg og Aldinborg,“ út lög þess efnis að við „Hólmavík
hjá Skeljavík í Steingrímsfírði“ skyldi „vera löggiltur
verslunarstaður“. Þann 3. janúar sl voru því liðin 100
ár frá þeim gjörningi í Amalíuborg, sem markaði upp-
haf þéttbýlis á Hólmavík.
Fyrir 100 árum var engin
byggð á Hólmavík. Ásgeir
nokkur Snæbjörnsson hafði að
vísu reist bæ fyrir 1880. Hjónin
Sigurður Sigurðsson kirkju-
smiður og Guðrún Jónsdóttir
keyptu húsið af Ásgeiri
nokkrum árum síðar og fluttu
það um set.
Þau bjuggu í húsinu til ársins
1888, en fluttu þá að Kleifum á
Selströnd. Meðal barna þeirra
var Stefán skáld sem síðar
kenndi sig við Hvítadal í Dala-
sýslu. Stefán fæddist í þessu
fyrsta húsi á Hólmavík haustið
1887 og átti þar heima þar til
foreldrar hans fluttu yfir
fjörðinn.
Verslun hófst ekki á Hólma-
vík fyrr en 5 árum eftir laga-
setningu konungs. Árið 1895
reisti Björn Sigurðsson kaup-
maður í Skarðsströnd og síðar
bankastjóri svonefndan Langa-
skúr og hóf þar verslun. Ári
síðar tók Richard Peter Riis við
versluninni, og árið 1897
byggði hann svonefndan Riis-
hús, sem stendur enn.
Upp úr aldamótum tók hús-
um að fjölga smátt og smátt, og
íbúum fjölgaði að sama skapi.
Aldarafmælis verslunarrétt-
inda á Hólmavík var minnst
mað afmælisveislu í grunnskól-
anum að kvöldi afmælisdagsins
3. janúar sl. Þar hélt Brynjólfur
Sæmundsson oddviti hátíðar-
ræðu, kór Hólmavíkurkirkju
söng og Leikfélag Hólmavíkur
sá um skemmtiatriði. Um 300
manns sátu afmælisveisluna og
þáðu veitingar í boði hrepps-
nefndar. Þar var m.a borin
fram geysistór afmælisterta
með merki Hólmavíkurhrepps
og 100 kertum. Bakstursmeist-
ari veislunnar var Guðbjörg
Stefánsdóttir á Hólmavík. I lok
afmælisveislunnar sá Björgun-
arsveitin Dagrenning um flug-
eldasýningu í einmuna veður-
blíðu.
Hreppsnefnd Hólmavíkur-
hrepps hélt hátíðarfund á af-
mælisdaginn. Þar voru sam-
þykktar tvær tillögur, önnur
um útgáfu bókar um Hólmavík
og hin um átak í skógrækt í
Frá Hólmavík
tengslum við Landgræðslu-
skógaátak Skógræktarfélags
íslands.
Bókin sem hreppsnefnd
samþykkti að gefa út, er skrifuð
af Óla E. Björnssyni á Akra-
nesi, en hann ólst upp á Hólma-
vík.í bókinni verða myndir af
öllum húsum á Hólmavík auk
frásagna sem tengjast húsum
og íbúum þeirra fyrr og nú. Óli
hefur varið frístundum sínum í
fjölda ára til að safna efni um
Hólmavík, og leynast í þessu
safni margar fágætar heimildir
um sögu staðarins.
Á síðasta sumri skipaði
hreppsnefnd Hólmavíkur-
hrepps 5 manna nefnd til að sjá
um hátíðahöld í tilefni 100 ára
afmælisins. í nefndinni eiga
sæti Björk Jóhannsdóttir kenn-
ari, Brynjólfur Sæmundsson
héraðsráðunautur, Gunnar
Jóhannsson framkvæmdar-
stjóri, Ragna Þóra Karlsdóttir
þroskaþjálfi og Sigrún Björk
Karlsdóttir skólastjóri. For-
maður nefdarinnar er Björk
Karlsdóttir. Örn Ingi mynd-
listamaður á Akureyri, hefur
verið ráðin sérlegur aðstoð-
armaður nefndarinnar, en
hann er þjóðkunnur fyrir ýmis
óvænt uppátæki.
Næsta sumar verður 100 ára
afmælis Hólmavíkur minnst
með fjölbreyttri sumarhátíð
síðustu helgina í júlí, þ.e. dag-
ana 27.-29. júlí. Margt hefur
verið bollalagt um dagskrá
Ljósm.: Eyþór Hauksson
hátíðarinnar, en fátt látið
uppskátt. Enn mega menn því
bíða í hálft ár eftir því að hul-
unni verði svipt af leyndardóm-
um afmælisnefdarinnar.
Búist er við miklu fjölmenni
á afmælishátiðina í sumar,
enda öllum velkomið að heim-
sækja afmælisbarnið. Þrátt
fyrir aldurinn er afmælisbarnið
hresst þessa dagana. Á nýliðnu
ári fjölgaði íbúum Hólmavík-
urhrepps um tæp 3% og fyrsti
Vestfirðingurinn sem fæddist á
nýja árinu er einmitt búsettur
á Hólmavík. Hann er sonur
Haralds V.A. Jónssonar, húsa-
smiðs og Hrafnhildar Guð-
björnsdóttur, leiðbeinenda og
hreppsnefndarmanns.
Stefán Gíslason.
Myndin ber merki óveðursins, en svo virtist sem skipin stæðu í sköflunum.
Nú er hann
enn á norðan...
Það hefur ekki farið fram
hjá mörgum að þrálát norðan-
átt hefur verið ríkjandi að
undanförnu. Hefur kyngt niður
snjó á Vestfjörðum norðan-
verðum og snjóflóð hafa fallið
á Flateyri, úr Eyrarfjalli, á
Óshlíð og Súðavíkurhlíð.
Á laugardagsmorgunn 27.
þ.m. hreif snjóflóð með sér
snjóruðningsbíl á Hnífsdals-
vegi. Hann valt rúmar tvær
veltur og hafnaði úti í sjó. Bif-
reiðastjóranum, Jakobi Þor-
steinssyni tókst með einstöku
harðfylgi að komast út úr
bílnum, í land og ganga á móti
óveðrinu út í Hraðfrystihúsið í
Hnífsdal, þar sem maður var
við vinnu og gat veitt honum
aðstoð.
Sem betur fer er ekki vitað
um fleiri slys af völdum þessa
veðurs, en hátt í tveir tugir húsa
voru rýmd um tíma vegna
snjóflóðahættu.
Myndin hérna við hliðina var
tekin á ísafirði síðastliðið laug-
ardagskvöld, en þá hafði snjó-
að og skafið dögum saman.