Ísfirðingur - 25.05.1990, Blaðsíða 1
/ VESJFJARMKJORMMl
40. árg.
Föstudagur 25. maí 1990
6. tbl.
Framsóknarmenn eru hreinskilnir og raunsæir og segja við ísfirska kjósendur:
Til að tryggja kosningu
Einars Hreinssonar vantar
20-40 atkvæði!
Einar Hreinsson er maður framtíðarinnar. Sjávarút-
vegsmálin eru hans hjartans mál. Það er styrkur
bæjarins að tefla fram slíkum manni við mörkun fisk-
veiðistefnunnar.
Það hefur ekki farið fram hjá (sfirðingum að við Fram-
sóknarmenn teljum afar mikilvægt að hafa fengið Einar
Hreinsson sjávarútvegsfræðing til að skipa annað sæti
listans að þessu sinni.
Einar hefur vakið athygli varðandi mörkun fiskveiði-
stefnunnar.
Með tilvísan til mikilvægis fiskveiða og vinnslu hér á
ísafirði og Vestfjörðum öllum, og frumkvæðishlutverks
Vestfirðinga, er afar nauðsynlegt að bæjarstjórn ísafjarðar
hafi á að skipa hæfu fólki á þessum sviðum.
Einar Hreinsson er valkosturokkar Framsóknarmanna.
Kjósum Einar Hreinsson í bæjarstjórn.
Guðríður Sigurðardóttir nýtur virðingar langt út fyrir
raðir sinna flokksmanna. Hún mun reynast duglegur
varabæjarfulltrúi þeirra Kristins og Einars.
Til að tryggja áframhaldandi forystuhlutverk Guðríðar
Sigurðardóttur í íþrótta- og æskulýðsmálum hér á ísafirði,
er nauðsynlegt að hlutur Framsóknarflokksins verði sem
mestur í komandi kosningum. Með kosningu Einars
Hreinssonar aukast möguleikar Framsóknarflokksins til
að hafa áhrif. Með tvo bæjarfulltrúa í bæjarstjórn fsafjarðar
eru ágætar líkur á því að Guðríður Sigurðardóttir stýri
áfram íþrótta- og æskulýðsráði bæjarins og þá verður vel
séð fyrir þeim málaflokki.
Kjósum Guðríði Sigurðardóttur.
Framsóknarflokkurinn hefur vandað mjög til
frambjóöenda við komandi kosningar.
Látið hann njóta þess í kosningunum 26. maí n.k.