Ísfirðingur - 22.10.1990, Page 1
VESTFJARÐAUORDÆMI
40. árg.
Mánudagur 22. október 1990
9. tbl.
Guðni Ásmundsson
r
r
Islenskt fyrir Islendinga
Ágæti lesandi:
Hver er þessi Guðni Ás-
mundsson sem myndin er af hér
að ofan? Jú, hann hefur lifað
og hrærst á Vestfjörðum s.l. 33
ár. Má því nánast telja hann
Vestfirðing, þó ættaðan sé úr
Breiðafjarðareyjum og af
Austfjörðum.
í gegn um árin hefur hann
unnið að margvíslegum félags-
málum, stjórnmálum sem
öðrum. Reyndar má segja með
nokkrum rétti, að störf að fél-
agsmálum séu jú stjórnmál.
Konan sagði stundum áður
fyrr, að tíminn sem færi í þetta
væri mikill, rétt var það, sér-
staklega meðan börnin voru
ung. Nú telur hann sig hafa
aðeins frjálsari tíma, búinn
ásamt konunni að koma fimm
börnum til manns og ekki nema
52 ára gamall.
Það var snemma hjá honum,
sem mörgum öðrum, að hugur-
inn beindist að stjórnmálum,
ekki síst eftir þær sviftingar sem
áttu sér stað í landinu frá 1955-
60. Á þeim árum hófust kynni
hans af Framsóknarflokknum.
Af þeirri manngildishugsjón
sem þar er ávallt í fyrirrúmi
heillaðist hann.
Hvað er hann að gera í fram-
boð til Alþingis?
Auðvitað gerir hann sér þess
ljósa grein að með þátttöku í
forvali er hann ekki kominn á
þing. Það virðist blasa við, að
fólkið hér í kjördæminu verður
Guðni Ásmundsson.
að taka frekari þátt í stefnu-
mörkun flokkanna, svo hags-
munir okkar Vestfirðinga verði
ekki látnir sitja á hakanum.
Þess vegna m.a. fer hann í
framboð.
Við Vestfirðingar!
Búum vissulega í harðbýlu
héraði til lands og sjávar. Sam-
göngumál vega því þungt að
hans mati. Fagna ber því sem
áunnist hefur, s.s. Dýrafjarðar-
brú, fyrirhugaðri jarðganga-
gerð undir Breiðadals- og
Botnsheiðar og síðast en ekki
síst lagning bundins slitlags á
flugvelli og vegi í auknum
mæli. Ekki má þó sofna á verð-
inum, heldur sækja sífellt fram
á við.
Ekki þarf hann að segja
ykkur Vestfirðingum hversu
gífurlega þýðingu sjúkraflugið
hefur, sérstaklega fyrir þennan
landsfjórðung. Telur hann því
rétt að lögð verði sérstök
áhersla á þennan þátt öryggis-
mála í fjórðungnum. Höfum
við um árabil notið þjónustu
heimamanna hvað þetta
varðar. Það verður að tryggja
áframhaldandi rekstur þess.
Atvinnumálin og þá sérstak-
lega landbúnaðarmálin hljóta
að vera honum hugstæð. Jú,
vissulega, hann vonar að Is-
lendingar muni að lokum ná
áttum í því gjörningaveðri sem
þyrlað hefur verið upp af
forystu alþýðuflokksmanna
o.fl. vegna framleiðslu búvara
í landinu. Virðist ekki hirt um
að ræða þau mál nema frá einu
sjónarhorni á þeim bæ. Auðvit-
að verður að vera einhver
stjórnun á framleiðslumálum,
það er augljóst. Langt er þó
þar frá til hömlulauss innflutn-
ings. Hafa menn hugleitt
hversu margir landar okkar
hafa beina og óbeina atvinnu af
því að í landinu sé stundaður
landbúnaður?
Hvað um alla þá vinnu er
vinnsla og dreifing kallar á?
Guðmundur B. Hagalínsson:
Snúumvörn ísókn!
Guðmundur B. Hagalínsson.
Ágætu Vestfirðingar. Senn
líður að kosningum. Kosninga-
undirbúningur er í fullum
gangi. Menn og málefni setja
svip sinn á þann undirbúning.
Það sem mestan svip setur á
kosningarnar nú í vestfirskum
byggðum, er sú gífurlega
byggðaröskun sem við nú
stöndum frammi fyrir. Þrátt
fyrir allar þær efnahagsráðstaf-
anir sem gerðar hafa verið að
undanförnu í anda þjóðarsátt-
ar, og sem ekki skal gert lítið
úr hér, þá heldur fólksflóttinn
á Vestfjörðum áfram suður.
Um þennan tlótta hefur engin
þjóðarsátt verið gerð og verður
aldrei gerð. Þvert á móti stefnir
þess vegna í mjög hörð átök
milli landsbyggðar og þéttbýlis-
ins á suðvesturhorni landsins,
ef fram heldur sem horfir. T.d.
munu stóriðjuframkvæmdir á
Keilisnesi auka mjög á fólks-
flóttann af landsbyggðinni á
næstu árum.
Stóriðja Vestfirðinga hefur
til þessa verið veiðar og fisk-
vinnsla. Engin teikn eru á lofti
að á því verði nein breyting í
náinni framtíð. Vestfirðir eru
raunar eini landshlutinn þar
sem fiskveiðar og fiskvinnsla
verða höfuðþættirnir í atvinnu
og byggð. Þess vegna á það að
verða ófrávíkjanleg krafa Vest-
firðinga og þingmanna þeirra
hverju sinni, að vegna sérstöðu
Vestfirðinga að þessu leyti
komi aukinn fiskkvóti í þeirra
hlut. Því línuritið milli þeirrar
miklu fólksfækkunar og minnk-
andi aflahlutar á Vestfjörðum
undanfarin ár segja allt sem
segja þarf um þessa byggða-
röskun. Þar er orsakanna að
leita númer eitt tvö og þrjú.
Götin í gegn um fjöllin og
brýrnar yfir firðina eru góðra
gjalda verð, en koma ekki að
tilætluðum notum, nema
óheillaþróuninni sem við
höfum búið við síðustu ár verði
snúið við.
Ágætu framsóknarmenn. í
skoðanakönnun þéirri sem
fram fer á vegum Framsóknar-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi
dagana 27. til 31. okt. n.k. hef
ég ákveðið að gefa kost á mér.
Gefist mér tækifæri til að ná
það langt að hafa áhrif á gang
mála í Vestfjarðakjördæmi
næstu ár mun ég leggja áherslu
á eftirfarandi:
1. Aukinn aflakvóti komi í
hlut Vestfirðinga strax við upp-
Kynning frambjóðenda
Eins og auglýst var í síðasta
blaði og einnig í þessu blaði
mun fara fram skoðanakönnun
um röðun manna á framboðs-
lista framsóknarmanna til
næstu alþingiskosninga.
Könnunin verður gerð dagana
27.-31. október n.k. og mun
stjórn hvers flokksfélags sjá um
framkvæmd hennar hver á sín-
um stað.
Tíu manns hafa gefið kost á
sér í þessa skoðanakönnun. 1
blaðinu núna eru birtar stuttar
greinar um stjórnmál frá þeim
öllum.
Frambjóðendurnir eru
þessir, taldir upp í stafrófsröð:
Guðni Ásmundsson fæddur
1938, húsasmíðameistari,
Fjarðarstræti 19, ísafirði.
Guðmundur B. Hagalínsson,
fæddur 1934, bóndi, Hrauni
Ingjaldssandi.
Katrín Marísdóttir, fædd 1959,
skrifstofumaður, Lækjartúni
10, Hólmavík.
Kristinn Halldórsson, fæddur
1955, útgerðartæknir, Reykja-
vík.
Magdalena Sigurðardóttir,
fædd 1934, ritari, Seljalands-
vegi 38, Isafirði.
Magnús Björnsson, fæddur
1954, skrifstofustjóri, Dalbraut
11, Bíldudal.
Olafur Þ. Þórðarson, fæddur
1940, alþingismaður, Vilmund-
arstöðum, Reykholtsdal.
Pétur Bjarnason, fæddur 1941,
fræðslustjóri, Árholti 5, ísa-
firði.
Ragnar Guðmundsson, fæddur
1935, bóndi, Brjánslæk, Barða-
strönd.
Sveinn Bernódusson, fæddur
1953, járnsmiður, Skólastíg 7,
Bolungarvík.
Á að flytja inn í landið þá
vinnu með því að leggja land-
búnaðinn niður?
Hann segir nei: Hvað ef
ófriður brýst út í heiminum?
Eigum við þá að vera háð inn-
flutningi matvæla e.t.v. frá ófr-
iðarsvæðum? Hann bara spyr?
Ekki er annað að heyra en
allir í þessu landi stynji undan
þeim olíuverðshækkunum sem
orðið hafa vegna „væntan-
legra“ hernaðarátaka við
Persaflóa. Vonandi kemur
aldrei upp sú staða hvað varðar
matvæli.
Hann segir: „Fjöregg okkar
er frelsið. - Lítum okkur
nær, búum að okkar, þó með
framleiðslustjórnun sé.
Islenskt fyrir íslendinga.
byggingu stóriðju á Keilisnesi,
sem og annarra landshluta sem
halloka hafa farið í byggða-
þróun. Aldrei verði fleiri en 50
togveiðiskip á Vestfjarðamið-
um hverju sinni, og þar hafi
Vestfirðingar forgang. Strax
verði hugað að möguleikum á
því að koma á fót fiskmarkaði
á Vestfjörðum.
2. Skattatekjur ríkissjóðs af
stóriðju renni til Byggðastofn-
unar til eflingar atvinnulífsins
á landsbyggðinni.
3. Við gerð nýrra búvöru-
samninga og búvörustjórnunar
verði það skýlaus krafa að
hagsmunir vestfirskra bænda
verði ekki fyrir borð bornir,
þannig að ekki komi til meiri
samdráttar en þegar er orðið. í
þessu sambandi má benda á að
beitarþol á Vestfjörðum er
langtum meira en þörf er á í
dag.
4. Fagna ber þeim áföngum
sem þegar hafa náðst í sam-
göngumálum á Vestfjörðum að
undanförnu, og þeim áætlun-
um sem gerðar hafa verið.
Samt eru margir mikilvægir
þættir óunnir,.svo sem tenging
norðuf- og suðurfjarða. Ekki
verður hægt að tala um Vest-
firði sem eina atvinnu- og
félagslega heild fyrr en sú teng-
ing hefur farið fram. Þess vegnai
er nauðsynlegt við endur-
skoðun vegalaga í haust að
þessi mikilvægi samgönguþátt-
ur okkar Vestfirðinga komist í
vegaáætlun.
5. í komandi kosningum verða
svokölluð Evrópumál í brenni-
depli og þar með spurningin
hvort ísland skuli gerast aðili
að stórþjóðabandalaginu EB.
Full ástæða er til að vara við
öllum slíkum vangaveltum,
því slík aðild myndi ekki bara
þýða hrun undirstöðuatvinnu-
veganna, heldur myndi smá-
þjóð eins og íslendingar hverfa
í mannhaf stórþjóðanna og
glata sjálfsforræði sínu og
menningarlegum verðmætum.
Þess vegna kemur aðild íslands
að Evrópubandalaginu ekki til
greina.
Framsóknarmenn. Ótal
margt fleira mætti nefna þegar
hagsmunamál Vestfirðinga eru
annars vegar. Þetta verður hins
vegar látið nægja að sinni. Ég
mun sætta mig við niðurstöður
skoðanakönnunarinnar hver
sem hún verður, og vinna
ótrauður að framgangi Fram-
sóknarflokksins í þessum kosn-
ingum.