SunnudagsMogginn - 07.11.2010, Blaðsíða 8
8 7. nóvember 2010
N
ý ævisaga um Karl Gústaf XVI. Svía-
konung hefur verið rifin úr hillum
bókabúða. Í bókinni, sem heitir Carl
XVI Gustaf – den motvillige monarken,
eru sagðar sögur af villtum veislum og sam-
böndum við ungar konur. Karl Gústaf flýgur í dag,
sunnudag, til Kína ásamt sendinefnd úr sænsku
viðskiptalífi og hefur beðið fjömiðla um að láta sig
í friði. Hann var hins vegar berskjaldaður á blaða-
mannafundi, sem hann hélt þegar hann kom af
elgsveiðum í Hunneberg í suðurhluta Svíþjóðar á
fimmtudag. Hefð er fyrir þessari veiðiferð og fundi
með blaðamönnum að henni lokinni. Venjulega
mæta 15 blaðamenn, en að þessu sinni voru þeir
60. „Bara svo að þið skiljið það, þá hef ég ekki náð
að lesa bókina,“ sagði hann. „Við fengum hana
mjög seint síðdegis í gær. Allan daginn, eða í það
minnsta hálfan daginn var ég að vinna við annað.
Ég hef reyndar ekki tíma til að sitja og lesa bækur
um miðjan dag eins og þið gerið kannski.“ Síðar
bætti hann við að hann gæti ekki „veitt umsögn
um bók, sem ég hef ekki lesið, þið hljótið að skilja
það“.
Karl Gústaf kvaðst hins vegar geta getið sér til
um efni bókarinnar af fjölda fyrirsagna, sem hann
hefði séð. „Með þessar fyrirsagnir í huga hef ég að
sjálfsögðu talað bæði við fjölskylduna og drottn-
inguna. Og við snúum nú við blaðinu líkt og þið
gerið í blöðunum ykkar og horfum fram á við. Og
eftir því sem mér skilst, samkvæmt bókinni, eru
þetta hlutir langt, langt aftur í fortíðinni. Við horf-
um fram á við. Þetta verður í lagi.“
Sænska blaðið Aftonbladet taldi greinilega ekki
ljóst hvað kóngurinn hefði sagt og kallaði því til
sérfræðing, Elaine Bergqvist, til að greina mál-
flutning hans. Hún greinir ýmsar mótsagnir hjá
honum. Konungurinn segist ekki hafa lesið bók-
ina, en þó heyri það, sem þar komi fram, fortíð-
inni til og fjölskyldan virðist hafa fyrirgefið hon-
um. Þess utan veki hann ákveðnar væntingar um
að hann muni tjá sig um bókina þegar hann hafi
lesið hana, en segi um leið að hann sé að fara til
Kína og hafi engan tíma til fyrir þetta mál. „Kóng-
urinn virðist vona að málið verði að engu,“ segir
Bergkvist.
Í bókinni segir að Karl Gústaf hafi ítrekað verið
konu sinni, Silvíu, ótrúr. Í bókinni er nefnd Ca-
milla Henemark, söngvari hljómsveitarinnar
Army of Lovers, og sagt að hún hafi verið í tygjum
við kónginn um nokkurra ára skeið í lok síðasta
áratugar. „Þetta er liðin tíð,“ sagði Henemark í
viðtali við blaðið Expressen og vildi ekki tjá sig
meira utan það að hún hygðist ekki lesa bókina.
Því er einnig haldið fram að kóngurinn hafi eytt
10 þúsund krónum á nektarklúbbi í Atlanta þegar
Ólympíuleikarnir voru haldnir þar 1996. Sænska
konungshirðin hafði áður vísað þessu á bug með
þeim orðum að kóngurinn hafi aldrei komið í
þennan tiltekna klúbb.
Í bókinni stígur veitingahúsaeigandi í Stokk-
hólmi fram og lýsir því að kóngurinn hafi margoft
verið gestur sinn ásamt æskuvinum sínum. Sam-
kvæmt bókinni voru ungar stúlkur einnig með í
för og var þeim lofað að draumar þeirra um að
verða ljósmyndafyrirsætur eða söngkonur myndu
brátt rætast. Segir að kóngur hafi komið í veit-
ingahúsið á hverjum mánudegi og það hafi þá ver-
ið lokað öðrum gestum. Ekki bætti úr skák að
veitingahússeigandinn er dæmdur glæpamaður og
mun kóngurinn hafa lagt sig í hættu við að sækja
stað hans og aðra næturklúbba.
Því má svo bæta við að á seint á fimmtudag kom
fram að sænska hirðin hyggst ekki fara í mál út af
bókinni.
Villtar veislur og
ungar konur
Ný ævisaga um Svíakonung
vekur umtal og athygli
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Karl Gústaf Svíakonungur ræðir við blaðamenn eftir
elgsveiðarnar á fimmtudag.
Karl Gústav XVI. er 63 ára gamall. Hann varð konungur árið 1973 og var
þá 27 ára gamall. Árið 1976 gekk hann að eiga Silvíu Sommerlath frá
Þýskalandi, sem nú er 66 ára gömul. Þau eiga þrjú börn.
Bókin um Karl Gústaf ber undirtitilinn Den motvillige monarken, eða
Kóngur gegn vilja sínum. Sænskir fjölmiðlar fjalla yfirleitt um kónginn og
fjölskyldu hans með jákvæðum hætti, en með bókinni hafa allar stíflur
brostið. Slúðurblöðin hafa velt sér upp úr bókinni og höfundar hennar,
Thomas Sjöberg og meðhöfundar hans, Deanne Rauscher og Tove
Meyer, ýja að því að þeir hafi ekki birt safaríkustu molana – að sinni. Þau
hafi reynt að sýna kónginn eins og hann birtist sínum nánustu.
Kóngur gegn vilja sínum
Reuters
Fyrsta upplag bókarinnar um Karl
Gústav Svíakonung var 20 þúsund
eintök og seldist upp á fyrsta degi.
Ákveðið hefur verið að prenta 30
þúsund til viðbótar. Í sænska
blaðinu Expressen segir að Thom-
as Sjöberg, höfundur bókarinnar,
hafi fengið 250 þúsund sænskar
krónur (rúmar fjórar milljónir ís-
lenskar krónur) greiddar fyrirfram.
Samkvæmt samningi fær hann
einnig 30% af 120 sænskra króna
(um 2.000 íslensra króna) heild-
söluverði bókarinnar. Sjöberg var
því 720 þúsund sænskum krónum
(12 milljón íslenskum krónum) rík-
ari einum degi eftir að bókin kom í
búðir.
Þessi mikli áhugi á bókinni er
ekki í samræmi við skoð-
anakönnun, sem stofnunin Sifo
gerði á þriðjudag og miðvikudag.
Samkvæmt henni er helmingur
Svía þeirrar hyggju að kóngurinn
eigi að hafa sitt einkalíf í friði.
Fjórðungur Svía telur hins vegar að
það sé í lagi að blaðamenn róti í lífi
konungs í leit að hneykslum.
Sænskum konum er meira í nöp
við slíka blaðamennsku en körl-
um. Aðeins 15% sænskra kvenna
litu hana velþóknunaraugum.
Bókin rokselst
Thomas Sjöberg með bókina.
Þegar Viktoría krónprinsessa af
Svíþjóð gekk að eiga Daniel West-
ling í sumar héldu Svíar margra
daga veislu og gerðu landið að
eins konar sýningarbás hamingj-
unnar gagnvart umheiminum.
Blettur féll á veisluna þegar í ljós
kom að brúðhjónin höfðu farið í
brúðkaupsferð sína í flugvél í eigu
auðkýfings og síðan dvalið í húsi
hans.
Í ágúst lögðu þrír Svíar fram
kæru á hendur hjónunum og sök-
uðu þau um að hafa þegið mútur.
Að þeirra hyggju tengist Viktoría
auðkýfingnum vegna þess að hún
hefur verið í framlínunni þegar
verðlaun hafa verið veitt úr góð-
gerðasjóði hans. Fyrir vikið teljist
hann hafa mútað þeim þegar hann
lagði þeim til flugvél og hús. Prins-
essan sé opinber persóna og megi
því ekki taka á móti gjöfum af
þessu tagi.
Viktoría krónprinsessa og Daníel maður hennar á brúðkaupsdaginn.
Sjaldan er ein báran stök
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn
8. nóvember, kl. 18 í
Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
Muggur
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
Verkin verða sýnd:
sunnudag kl. 12–17 og mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is