SunnudagsMogginn - 07.11.2010, Side 13
7. nóvember 2010 13
Þ
að er nú einfaldlega þann-
ig að ég skil ekki þessa
umræðu um hvort Egill
„Gillz“ Einarsson eigi að fá
að skreyta þessa blessuðu símaskrá
eður ei. Fyrir mér er þetta bara nú-
tíminn í allri sinni mynd. Það er jú
komið árið 2010 og 2011 að detta
inn hvort sem mönnum líkar betur
eða verr. Ef við viljum fara aftur í
torfkofana þá geta þeir valið að gera
það sem vilja en við hin sem viljum
lifa í nútímanum og framtíðinni
veljum frjálsræði, tjáningarfrelsi og
ritfrelsi. Þetta er mín skoðun og ef-
laust setja einhverjir út á þetta hjá
mér og það er allt í lagi. Það væri
nú meira ef allir væru sömu skoð-
unar í hinum ýmsu málefnum. Rík-
isstjórn Íslands vill kannski að allir
séu sömu skoðunar og hún, enda er
þessi blessaða stjórn að slá gras alla
daga. Þetta mál hins vegar með
Gillz og símaskrána er að mínu mati
af þeim toga að þetta særir víst ein-
hverja sem ég skil ekki alveg. Ég
þekki Egil „Gillz“ Einarsson ágæt-
lega og hann er hinn vænsti dreng-
ur. Ég tel að þeir aðilar sem hafa
látið hæst gegn honum í þessu
„símaskrármáli“ þekki pilt ekki
neitt og er reyndar þess fullviss að
svo sé. Maður á ekki að dæma aðra
út frá orðspori eða hvað aðrir segja.
Ef einhver segir við mig að hann
þoli ekki hinn og þennan og eitt-
hvað slíkt þá spyr ég ávallt hvort
viðkomandi þekki þann aðila. Yf-
irleitt er svarið nei. Því legg ég til
að þetta ágæta fólk, sem ekki þekk-
ir Gillz og er svona mikið á móti
honum, einsetji sér að kynnast
honum og tjá sig síðan. Áfram Ís-
land.
MEÐ
Valtýr Björn
Valtýsson
íþróttafréttamaður
Er Gillzenegger rétti maðurinn
til að skreyta símaskrána?
Ég þekki Egil „Gillz“
Einarsson ágætlega
og hann er hinn
vænsti drengur.
S
vokallaður Gillzenegger hefur
löngu sýnt að hann er fínasta
ljóðskáld, hann hefur mjög gott
vald á íslenskri tungu og ég hef
oft hlegið upphátt að því sem hann skrifar
í pistlum.
Það breytir því ekki að ummæli hans
opinberlega á netinu um vissa aðila, sem
lýsa mikilli kvenfyrirlitningu og jafnvel
hvetja til ofbeldis undir formerkjum
húmors, dæma hann úr leik sem trúverð-
ugan einstakling.
Svo er afgangurinn mjög einfaldur:
Símaskráin er hálfopinbert plagg – hálf-
gerð þjóðareign. Og Já.is leggur blessun
sína yfir þann mann sem Gillzenegger
geymir og skoðanir hans með því að fá
hann til að taka þátt í verkefninu.
Þetta væri í sjálfu sér allt í lagi ef téður
Gillzenegger hefði sýnt einhvern vott af
iðrun eða eftirsjá gagnvart þessum um-
mælum, sem hann hefur ekki gert og oft-
ast þvert á móti – hann heldur orðræðunni
áfram.
Mér finnst að Síminn eigi að sýna þroska
og játa á sig þau mistök að hafa tekið þessa
ákvörðun. Ef Síminn myndi í fúlustu alvöru
skoða rætin ummæli þar sem Gillz talar um
að „tittlinga“ tilteknar stjórnmálakonur eða
„senda tvo“ á þær, þá tæki Síminn auðvitað
ákvörðun um að hætta við þetta. En Síminn
virðist því miður ætla að láta eins og ekkert
sé.
Svo er ekkert nýtt að talað sé um húmors-
leysi kvenna og femínista í þessu samhengi.
Það er líka notað til dæmis á vinnustöðum
gagnvart kynferðislegri áreitni. Orðræðan er
nákvæmlega sú sama: Þegar karlkyns yf-
irmaður beitir konu kynferðislegri áreitni og
hún bregst illa við er hún iðullega sökuð um
húmorsleysi. Þetta er einfaldlega elsta og
lúalegasta trikkið í bókinni því það slær öll
vopn úr höndum þess sem er áreittur og
firrir hinn aðilann allri ábyrgð.
MÓTI
Davíð
Stefánsson
bókmenntafræðingur
Og Já.is leggur bless-
un sína yfir þann
mann sem Gillzeneg-
ger geymir og skoð-
anir hans
Erlent Viðskipti Íþróttir
- V I L T U V I T A M E I R A ?
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/M
O
R
51
87
2
11
/1
0