SunnudagsMogginn - 07.11.2010, Side 19
7. nóvember 2010 19
60 íslenskir rithöfundar á ÍNN
Í kvöld kl 21 verður frumsýndur á ÍNN fyrsti þátturinn um
íslenska bókamarkaðinn, sem sýnfur verður
öll sunnudagskvöld fram til jóla.
Sigurður G Tómasson, fjölmiðlamaðurinn landskunni býður
til sín íslenskum rithöfundum og skáldum, 8 í hvern þátt, þar
sem gestir segja í stuttu máli frá verki sínu og lesa stutta kafla.
Þættirnir verða endurfluttir kl. 11 og 17 á mánudögum og
koma svo strax inn á heimasíðu inntv.is
Þriðji hver Íslendingur horfir nú á ÍNN í viku hverri samkvæmt
Capacent könnun í októberlok og ÍNN býður alla hina
hjartanlega velkomna.
– Tvö orð: Græðgi og siðblinda …
„… eru tvö helstu krabbamein íslensks
samfélags?“ spyr Óskar Hrafn og lýkur við
tilvitnunina í eigin sögu.
– Ertu að gagnrýna tíðarandann með
þessum orðum – halda spegli að þjóðinni?
„Ég stíg ekki í predikunarstól til að
þruma yfir fólki, en ég held að öll rök
hnígi að því, að þetta tvennt hafi haldist í
hendur hjá þeim sem voru hvað mest
áberandi í íslensku samfélagi undanfarin
ár.
Að einhverju leyti sjáum við það á þeim
málum, sem koma upp í tengslum við
eignarhald á bönkum og fleira, að þeir
fengu aldrei nóg – það þurfti alltaf að ná
stærri díl, græða meiri peninga og ekkert
var heilagt. Ég trúi því ekki, að þegar
menn horfa sjálfir yfir atburðarásina, þá
botni þeir í henni. Þeir voru kannski búnir
að veðsetja hluti í sautján félögum með
kauprétti út og suður og það er ekki glæta
að þeir hafi gert sér nokkra grein fyrir
hvað þeir áttu á hverjum tíma – ég held að
menn hafi verið hættir að sjá núið. Þeir
voru svo uppteknir af því að græða meira
og verða stærri að þeir voru aldrei í núinu,
heldur alltaf einu, tveimur, þremur skref-
um á undan sjálfum sér.
Svo náttúrlega horfðum við upp á það í
lokin, þegar allt var að fara til andskotans,
að þá voru menn tilbúnir að ganga helvíti
langt til að bjarga eigin skinni. Ég held að
það, hvernig menn umgengust bankana
sem þeir áttu, hlutafélögin sem þeir
stjórnuðu og fleira, hafi ekki verið neitt
annað en siðblinda. Er það ólöglegt? Nei,
sennilega ekki, það er ekki lögbrot að vera
siðblindur.
En blasir ekki við, að það er siðblinda að
vera með fyrirtæki og segja bara: Heyrðu,
ég keypti það af þér á fjóra milljarða, en ég
ætla að meta það á fimmtán milljarða
núna og við setjum það í félag upp á tutt-
ugu milljarða; þú slærð lán upp á fjóra
milljarða og ég upp á sex, við skoðum
aldrei bókhaldið eða neitt, heldur klárum
dílinn, skrifum 10 milljarða í við-
skiptavild, og þá stendur félagið helvíti
vel! Það er ekki eins og þeir hafi verið einir
í þessum félögum, þetta voru ekki einka-
hlutafélög, heldur voru þar tíu þúsund
aðrir hluthafar sem höfðu lagt í þau sitt
sparifé. Menn umgengust þessar eignir af
algjöru virðingarleysi og hugsuðu aðeins
um að græða meira – það var græðgi og
klárlega siðblinda.
Í bókinni eru þessir menn tilbúnir að
gera allt til að viðhalda ríkidæminu, til að
viðhalda lífsstílnum, til að viðhalda sínum
sessi í samfélaginu. Og ég held að það hafi
líka verið þannig í raunveruleikanum.“
Björgólfur Thor og Lady Gaga
– Ertu farinn að leggja drög að næstu bók?
„Ég veit ekki hvað verður. Það mun að
einhverju leyti snúast um viðtökur á bók-
inni. Ég hef sagt það áður, að ég ætla ekki
að fara að skrifa fyrir mig og konuna mína
og þrjá ættingja. Þessi 25 eintök sem ég fæ
gefins fer ég bara með til mæðrastyrks-
nefndar; það þarf að vera einhver raun-
verulegur áhugi fyrir því hjá fólki að lesa
bókina. Þetta er hins vegar eitt það
skemmtilegasta sem til er fyrir vinnandi
mann – að skrifa bók. En það er mjög
tímafrekt og ef maður ætlar að vanda til
verka þarf mikla rannsóknarvinnu. Eins
og staðan er núna með álaginu á Frétta-
tímanum, þá sé ég ekki alveg hvar tími
gefst. Nema ég hætti að sofa!“
Hann íhugar það eitt augnablik.
„Sem er kannski ekki góður kostur. Eða
leggja allar helgar undir það. Þannig að ég
veit það ekki. Verður maður ekki bara að
láta það ráðast – njóta þess að bókin komi
út og sjá hvort áhugi er fyrir henni? Ef það
er stemning fyrir henni, þá er það æð-
islegt, ef ekki, þá er þetta bara eins og
maður hafi átt lélegan leik í vörninni hjá
KR – og maður heldur áfram. En ég er
með fullt af hugmyndum að öðrum bók-
um!“
– Svo stendurðu í ströngu á blaðamark-
aði!
„Já, við erum þrjú í fullu starfi á Frétta-
tímanum og svo fáum við fólk til að skrifa,
þannig að maður fjallar um allt frá Lady
Gaga til sæstrengs. Það er mjög fínt. Og
ákveðið frelsi að skrifa um Lady Gaga á la-
texnærbuxum á milli þess sem maður
djöflast í Björgólfi Thor [Björgólfssyni] eða
Jóni Ásgeiri [Jóhannessyni] eða sinnir
öðrum leiðindafréttum. Svo gæti ég allt
eins nefnt Kim Kardashian, Tobbu Mar-
inós eða Gilzenegger. Við göngum í allt,
erum lítil ritstjórn, menn bara mæta á
morgnana og skrifa það sem þarf að
skrifa.“
– Hver er sylla blaðsins?
„Ætli við séum ekki einhvers staðar á
milli DV og Fréttablaðsins, töluvert nær
Fréttablaðinu. En ég held að menn hafi
ákveðið rými fyrir blað sem er með meira
lesefni en helgarblað Fréttablaðsins, ætli
það megi ekki líkja því við Sunnudags-
moggann eða helgarblað DV, en þetta er
frítt og fer inn á hvert heimili. Við höfum
ekki heyrt annað en að fólk kunni að meta
að fá einhver þrjú viðtöl og aðeins lengri
greinar.“
Hann verður einbeittur á svip.
„En þannig er því alltaf farið með frí-
blöð, að þetta snýst bara um eitt, auglýs-
ingar. Það eru engar aðrar tekjur. Og
hingað til hafa viðtökur verið framar
björtustu vonum, umfram áætlanir. En
prófsteinninn verður í janúar, febrúar,
mars, þegar deyfð kemst yfir auglýs-
ingamarkaðinn. Og þá mun þetta líklega
snúast um það hvort einhver er að lesa
okkur. Við höfum ekki ennþá komist í
mælingu.“
Morgunblaðið/RAX
’
Þeir voru
svo upp-
teknir af
því að græða
meira og verða
stærri að þeir
voru aldrei í
núinu, heldur
alltaf einu,
tveimur, þremur
skrefum á undan
sjálfum sér.