SunnudagsMogginn - 07.11.2010, Page 27
7. nóvember 2010 27
S
igríður Svanlaug Heiðberg fæddist á heimili sínu
við Laufásveg í Reykjavík 30. mars 1938, þá
fimmta barn hjónanna Þóreyjar Eyþórsdóttur og
Jóns Heiðbergs heildsala. Fljótlega kom í ljós áhugi
hennar á dýrum og hefur hann fylgt henni æ síðan. Árið
1990 fór stjórn Kattavinafélags Íslands þess á leit við hana
að hún tæki við formennsku félagsins þar sem til stóð að
Kattholt, athvarf óskilakatta, yrði opnað fljótlega eftir ára-
langa fjáröflun margra félaga. Hún féllst á að taka að sér
hlutverkið og hefur helgað starfinu líf sitt, með það efst í
huga að bæta aðbúnað katta á Íslandi. Kattholt var form-
lega opnað í júlílok 1991 og hefur starfað alla tíð síðan undir
handleiðslu Sigríðar. Sigríður giftist Einari Jónssyni frá
Garðsauka í Hvolhreppi 1983. Hann er verktaki í Reykja-
vík. Sonur hans er Daníel Orri Einarsson. Áhugamál Sigríð-
ar eru mörg og hefur hún m.a. setið í stjórn félagasamtak-
anna Verndar síðan 1984. Sigríður á tíkina Mússu og eru
þær sem ein í lífi og starfi. Fjöldi þeirra katta sem hún hefur
átt og sinnt hleypur á mörgum tugum.
Með litlu frænkuna Lilju Sól í kjöltunni.
Í saumaklúbb með Árnýju skólasystur.
Í sveitinni í Austur-Húnavatnssýslu með mömmu og fleiri ættingjum.
Sigríður og Einar maðurinn hennar á góðri stundu.
Á sýningu með Ingibjörgu Tönsberg, fyrsta formanni Kattavinafélagsins.
Saumaklúbburinn ásamt mökum á ferðalagi í Færeyjum í tilefni 50 ára afmælis klúbbsins.
Hálfgert
kattarlíf
Myndaalbúmið
Sigríður Heiðberg er sannkall-
aður dýravinur og er oftast
kennd við Kattholt.
Marteinn formaður Kynjakatta og Sigríður
með sjálfan Emil í Kattholti.
Markús Örn Antonsson þáverandi borg-
arstjóri var viðstaddur opnun Kattholts.
Með Ragnari Davíð í göngutúr.
Stjúpsonurinn Daníel og köttur sem fannst
í Garðabæ en endaði í Bandaríkjunum.