Morgunblaðið - 22.03.2010, Blaðsíða 10
Eftir Ingibjörgu Rósu Björnsdóttur
ingibjorgrosa@mbl.is
LÖGREGLAN á Hvolsvelli var með
vakt við Skóga og á Hvolsvelli í nótt
og verður aðgerðum á svæðinu
áfram stýrt úr húsi Flugbjörg-
unarsveitarinnar á Hellu. Þá er
Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð
áfram virk og stöðug vakt á Veð-
urstofunni til að fylgjast með fram-
vindu eldgossins. Suðurlandsvegur
og vegurinn upp í Fljótshlíð voru
opnaðir á ný seinnipartinn í gær og
rýmingu aflétt af bæjum á hættu-
svæði að hluta. Vegurinn upp á
Fimmvörðuháls er lokaður og öll
umferð um gossvæðið bönnuð.
Áframhaldandi rýming
Fjórtán bæir í Austur-Eyjafjalla-
hreppi, Landeyjum og Fljótshlíð
voru áfram rýmdir í nótt en þeir eru
allir norðan þjóðvegar 1 og fengu
íbúar ekki að snúa til síns heima
nema til að sinna nauðsynlegustu
gegningum. Talið er að á þessum
bæjum hafi íbúar ekki nægan tíma
til að komast í öruggt skjól ef til
skyndilegs vatnsflóðs kæmi í kjölfar
goss í Eyjafjallajökli. Mikil óvissa
ríkir þó um þróun gossins og þótt
lögregla hafi opnað fyrir bílaumferð
er fólk latt til að vera á ferðinni að
nauðsynjalausu og þá ekki nema á
vel búnum bílum þar sem veður er
leiðinlegt á svæðinu. Fjöldahjálp-
arstöðvum Rauða krossins í Vík, á
Hvolsvelli og Hellu var lokað um
kaffileytið í gær en þær höfðu verið
starfræktar frá því að hættustigi
var lýst yfir, skömmu eftir miðnætti
á laugardagskvöld.
Ekki lokað að óþörfu
Að sögn Odds Árnasonar, yfirlög-
regluþjóns á Selfossi, er eðlilegt að
loka vegum þegar gripið er til rým-
ingar til að koma í veg fyrir umferð-
artafir hjá þeim sem sinna aðgerð-
um og því fólki sem þarf að yfirgefa
heimili sín. Meðan óvissuástand og
ringulreið ríki sé farsælast að tak-
marka umferð til að koma í veg fyrir
möguleg slys. Innanlandsflug lá
Enn hættustig og
Mikil óvissa um hegðun eldgossins á Fimmvörðuhálsi Íbúar 14 bæja í Rang-
árvallasýslu fá ekki að snúa til síns heima Vandlega fylgst með Kötlu
ATBURÐARÁSIN
» 23:34 Gos hefst (skv. vökt-unarmyndavél).
» 23:52 Hringt í 112 fráMúlakoti og tilkynnt um
bjarma frá eldgosi. Neyðar-
línan lætur lögreglu á Selfossi
og Hvolsvelli vita, haft er sam-
band við Veðurstofu Íslands.
» 23:58 Almannavarnir fátilkynningu frá lögreglu
um eldgos í Eyjafjallajökli.
» 00:10 Allsherjarútkall fráAlmannavörnum.
» 00:34 Björgunarsveitir fátilkynningu um mögulegt
eldgos.
» 00:37 Björgunarsveitir fástaðfestingu um eldgos og
rýmingaráætlun er virkjuð.
» 00:56 Rýming hefst.» 01:00 Flugstoðir bannaflug í 120 sjómílna radíus
frá gosinu, þar með lendingu
og flugtak í Keflavík.
» 01:08 Hjálparsími Rauðakrossins virkjaður og
fjöldahjálparstöðvar opnaðar
á Hellu og Hvolsvelli.
» 01:28 Fjöldahjálparstöðopnuð í Vík.
» 03:12 Rýmingu lokið íFljótshlíð, Landeyjum og
Eyjafjallahreppum.
» 08:30 Flugstoðir fella úrgildi 120 sjómílna flug-
bann og Akureyrarflugvöllur
fær flugheimild.
» 12:00 Lögreglan á Helluopnar fyrir umferð milli
Hellu og Víkur.
» 14:02 Flugstoðir leyfaflugtak og lendingu í
Keflavík og flug yfir landinu
nema undir 5.000 feta hæð á
afmörkuðu svæði yfir gosstöð-
inni.
» 16:00 Rýmingarsvæðiminnkað, opnað fyrir um-
ferð og fjöldahjálparstöðvum
lokað.
10
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2010
Vín óskast
Mikil eftirspurn eftir vínum
frá Bordeaux, Bourgogne,
Champagne, Ítalíu og Spáni.
Vinsamlegast hafið samband
vegna mats og afhendingar við
víndeild í síma +45 8818 1205
eða vin@bruun-rasmussen.dk
Baltikavej 10
DK-2100 Kbh Ø
Sími +45 8818 1111
bruun-rasmussen.dk
Eldgos á Fimmvörðuhálsi
Eldgos verða á Íslandi
að meðaltali þriðja
hvert ár og stór hluti af
öllu hrauni sem runnið
hefur á jörðinni á sögu-
legum tíma kom úr eld-
fjöllum hér á landi.
Geysimikið gos varð í
Lakagígum 1783-1785.
Afleiðingar gossins voru
skelfilegar, tímabilið var
nefnt Móðuharðindin.
Um 80% af öllu sauðfé
og helmingur nautgripa
og hesta féll vegna
flúoreitrunar. Mun
minnst fimmti hver Ís-
lendingur, um 10.000 manns, hafa dáið af völdum
hungurs.
Gosaskan barst til Evrópu og annarra heimsálfa og
mistrið olli því að sólin varð rauð á himni, þúsundir
manna dóu úr eitrun af völdum öskunnar í Bretlandi.
Loftslag kólnaði og olli það víða hungursneyð, m.a. í
Frakklandi. Ýttu Lakagígar þannig undir byltinguna
miklu 1789.
Lakagígar ýttu undir
byltinguna í Frakklandi
Fylgst er náið með neysluvatni í Vestmannaeyjum en
vatnslind eyjabúa er í Stóru-Mörk, rétt fyrir innan
Seljalandsfoss.
Að sögn Sigurjóns Inga Ingasonar, svæðisstjóra HS
orku í Vestmannaeyjum, er talið hugsanlegt að eld-
gosið gæti spillt vatninu; óæskileg efni komist í það
eins og flúor, lindin þornað upp eða stíflast. Þá væri
hugsanlegt ef flóð yrðu að þau skemmdu vatnsleiðslur
til Eyja.
„Vatnið verður mælt bæði í landi og hér úti í Eyjum
að minnsta kosti tvisvar til þrisvar á dag meðan á gos-
inu stendur. Það er ekki hægt að taka neina áhættu
hvað þetta varðar,“ segir Sigurjón. Vatnið var mælt í
gærmorgun og gærkvöldi og reyndist í góðu lagi.
Vatnsból Vestmanna-
eyja gætu verið í hættu