Morgunblaðið - 30.03.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2010
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
ENGAR kvartanir vegna mistaka í
afgreiðslu apóteka á dýralyfjum
hafa borist Lyfjastofnun, segir
Rannveig Gunnarsdóttir forstjóri.
Hins vegar hafi bændur kvartað
undan því að dýralæknar selji lyf
yfir því hámarksverði sem lyfja-
greiðslunefnd ákvarði.
Spurð um þá fullyrðingu for-
manns Dýralæknafélags Íslands að
lyfjafræðingar séu mjög illa að sér
um dýralyf veltir Rannveig því fyr-
ir sér hvort það sé vegna þess að
dýralæknar vilji halda sölu lyfjanna
fyrir sig og fáir bændur versli því
við apótek. „Lyfjafræðingar eru
lögbundin starfsstétt. Að afhenda
lyf er þeirra starf og sé þeim
treystandi til að afhenda lyf til
manna ætti þeim þá ekki líka að
vera treystandi til að afhenda lyf til
dýra?“ Rannveig segir að það geti
orðið hagsmunaárekstrar þegar
dýralæknar hafi ávinning af því að
selja lyf. „Endurskoða þarf löggjöf-
ina og setja skýrari reglur frá því
sem er í dag.“
Í Morgunblaðinu 26. mars sagði
formaður dýralækna, Guðbjörg
Þorvarðardóttir, þá hafa lent í því
að lyfsalar í apótekum afhendi ekki
rétt lyf eða gefi með þeim rangar
skýringar. Þar sem dýralæknar
beri meiri ábyrgð en læknar þegar
þeir ávísi lyfjum, því stór hluti
dýralyfja sé án markaðsleyfa, hafni
sumir þeirra beiðnum um að af-
henda lyfseðla sem leystir séu út
annars staðar en hjá þeim.
Skoða álagningu
í nágrannalöndum
Álagning á dýralyf er mest 58,5%
á lyfjum sem kosta undir 2.500
krónum úr heildsölu en 53% og
137,5 krónur á dýrari lyf, sam-
kvæmt reglum Lyfjagreiðslunefnd-
ar. Á því eru þó undantekningar því
orma- og bólusetningarlyf bera t.d.
hæst 39% álagningu.
„Við höfum reynt að fara í allar
þær aðgerðir sem hægt hefur verið
til þess að reyna að ná niður lyfja-
kostnaði ríkisins. Því hafa dýralyfin
ekki verið sett í forgang hingað til,“
svarar Rúna Hauksdóttir, formaður
Lyfjagreiðslunefndar ríkisins,
spurð um ástæður þess að álagning
dýralyfja sé mun hærri en al-
mennra lyfja. Hún segir að árið
2008 hafi verið ákveðið að skoða af-
leiðingar þess að sömu aðilar seldu
lyfin og ávísuðu þeim. „Þá hefur
einnig verið rætt um að hafa frjálsa
álagningu væru dýralyf í meira
mæli eða eingöngu seld í apótek-
um,“ segir hún. Þannig sé í lönd-
unum í kring. „Sú leið að gefa
álagninguna frjálsa hefur ekki verið
farin hér, meðal annars vegna þess
að dýralæknar selja lyfin og samn-
ingasstaða kaupandans er mjög
slök. Þetta er eitt af því sem þyrfti
að breyta.“
Í síðustu viku sagði Morgunblað-
ið frá því að dæmi væri um bændur
sem hefðu ekki fengið lyfseðla hjá
dýralæknum sínum til að kaupa lyf
hjá Apóteki Vesturlands. Páll
Gunnar Pálsson, forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins, segir bændur
ekki hafa leitað til eftirlitsins. Hann
hvetur
þá þó til að hafa samband telji
þeir samkeppnislög brotin. „Dýra-
læknar eru ekki undanþegnir sam-
keppni.“
Fagmenn í lyfjum
Enginn hefur kvartað undan mistökum við afgreiðslu apó-
teka á dýralyfjum Enginn tilkynnt brot á samkeppnislögum
Í HNOTSKURN
»Lyfjagreiðslunefnd hafðiekki forsendur til að bera
saman verð dýralyfja við verð
í nágrannalöndum fyrr en
danska lyfjastofnunin, Læge-
middelstyrelsen, hóf að birta
verð á dýralyfjum nýverið.
»Verðbirtingin í Danmörkunær þó aðeins yfir heild-
söluverð og vinnur því nefndin
að því að afla upplýsinga um
smásöluálagningu þar.
Morgunblaðið/Friðrik
Rétt lesið á? Sumir dýralæknar treysta öðrum lítt til afgreiðslu dýralyfja.
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
SIFFONBOLIRNIR
KOMNIR AFTUR
litir: svart og hvítt
str. 36-58
Kr. 5.900
Str. 38-56
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Fallegur
fatnaður við
öll tækifæri
GALLAFATNAÐUR-
FERÐAFATNAÐUR
– MIKIÐ ÚRVAL
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Laugavegi 53, s. 552 1555
NÝT
T
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-16
Yfirhafnir - peysur
- klútar og hálsfestar
TÍSKUVAL
Háþrýstidælur
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
K 6.91 M Plus
Þrýstingur: 20-150 bör max
Vatnsmagn: 550 ltr/klst
Túrbóstútur + 50%
Lengd slöngu: 9 m
Sápuskammtari
Stillanlegur úði
K 7.80 M Plus
Þrýstingur
20-160 bör max
Stillanlegur úði
Sápuskammtari
K 7.85 M Plus
Þrýstingur:
20-160 bör max
Vatnsmagn:
600 ltr/klst
Stillanlegur úði
Sápuskammtari
Túrbóstútur + 50%
12 m slönguhjól
Vatnsmagn: 600 ltr/klst
Túrbóstútur + 50%
Lengd slöngu: 9 m
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
K 5.91 M Plus
Þrýstingur:
20-140 bör max
Vatnsmagn:
490 ltr/klst
Lengd slöngu: 7,5 m
Stillanlegur úði
Túrbóstútur + 50%
Sápuskammtari
Ýmsir aukahlutir
Snúningsdiskur