Morgunblaðið - 30.03.2010, Blaðsíða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2010
Sudoku
Frumstig
9 1 7
2 3
3 6 7 8
7 8 5
6
5 9 3 7
2 8
7 5 9 2
3 1
5 9 6
3 2 9
6 3 8 7
2
1
2 8 1 5 7
8 2
9 8
6 1
3 5
8 1
1 7 2
8 6 2
5 7 3
7 2 3 1
3 7
4 1 6
1 5 8 6
3 7 8 2 6 1 5 4 9
9 1 4 3 8 5 6 2 7
2 5 6 9 4 7 8 3 1
8 6 9 4 5 3 7 1 2
7 3 2 1 9 8 4 6 5
5 4 1 7 2 6 9 8 3
6 8 3 5 1 9 2 7 4
1 2 5 6 7 4 3 9 8
4 9 7 8 3 2 1 5 6
9 2 6 8 5 4 7 1 3
5 8 1 7 3 6 2 4 9
3 7 4 1 9 2 8 6 5
1 3 9 4 6 8 5 2 7
7 4 8 3 2 5 1 9 6
2 6 5 9 7 1 3 8 4
6 9 2 5 8 7 4 3 1
4 5 3 2 1 9 6 7 8
8 1 7 6 4 3 9 5 2
4 1 2 3 7 5 8 6 9
9 3 7 8 6 2 1 5 4
8 6 5 9 4 1 2 7 3
7 2 8 1 3 9 6 4 5
3 5 6 4 8 7 9 2 1
1 9 4 5 2 6 7 3 8
2 8 1 6 5 4 3 9 7
6 4 9 7 1 3 5 8 2
5 7 3 2 9 8 4 1 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 30. mars, 89. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik
en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyr-
ir vini sína. (Jh. 15, 13.)
Helgin var erilsöm hjá Víkverjasem rak meðal annars nefið
inn í tvær fermingarveislur. Hann er
ekki frá því að fólk sé að verða hug-
myndaríkara þegar kemur að sam-
komum af því tagi, alltént voru veit-
ingarnar frumlegar í báðum þessum
veislum. Í annarri fékk Víkverji að
gæða sér á forláta gúllassúpu og á
grilluðum hamborgurum með
frönskum í hinni. Á eftir fengu gest-
ir kaffi og kökur. Krásirnar mæltust
afar vel fyrir á báðum stöðum. Ætli
gamla hlaðborðið með kökum, snitt-
um og heitum réttum sé almennt á
undanhaldi?
Eins og gengur og gerist hitti Vík-
verji marga góða menn í veislunum,
þeirra á meðal skeleggan frænda
sinn sem kann að koma orðum að
hlutunum. Spurður hvernig hann
hefði það stóð ekki á svari: „Mér líð-
ur alltaf best þegar mér líður illa!“
Ætli þetta sé útbreitt viðhorf á
þessum síðustu og verstu tímum?
x x x
Æfingalandsleikir eru mein ísparkheimum. Tilgangslausir
í leiðindum sínum. Enginn núlifandi
maður hefur dregið tilgangsleysi
þessara leikja eins vel saman og
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálf-
ari Íslands, í samtali við Morg-
unblaðið eftir jafnteflið við Mexíkó í
síðustu viku. Enda þótt það hafi lík-
lega verið óvart. „Það var svo ótrú-
leg stemning á vellinum að ég var
eiginlega að vona að Mexíkóar
myndu skora mark, sem yrði síðan
dæmt af vegna rangstöðu, bara til
þess að heyra fólkið fagna marki í
smástund.“
Þegar þjálfari annars liðsins er
farinn að vonast til að hitt liðið skori
til að heyra fólkið fagna er ljóst að
leikurinn hefur enga þýðingu.
Hermt er að Englandsmeistarar
Manchester United séu eins manns
lið, Wayne Rooney. Annað kom á
daginn þegar Rooneylausir United-
menn gengu yfir Bolton á útivelli sl.
laugardag, 4:0.
Hermt er að Chelsea sé eins
manns lið, Didier Drogba. Annað
kom á daginn þegar þeir bláu lóguðu
Aston Villa, 7:1, sama dag án Fíla-
beinsstrendingsins. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 geðstirða, 8
kústur, 9 brúkar, 10 spil,
11 rugga, 13 illa, 15
ræman, 18 slaga, 21 bók-
stafur, 22 hvassviðri, 23
yfirhöfnin, 24 taugatitr-
ingur.
Lóðrétt | 2 málmur, 3
hluta, 4 ónar, 5 blundi, 6
hæðir, 7 baun, 12 sefi, 14
borða, 15 hysja, 16
ruddamenni, 17 tekur,
18 undin, 19 voru með
opinn munn, 20 korna.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skart, 4 fátæk, 7 játar, 8 líkar, 9 auk, 11 tonn,
13 kasa, 14 álman, 15 fróð, 17 álka, 20 æla, 22 ljótt, 23
fákum, 24 rýrar, 25 akrar.
Lóðrétt: 1 spjót, 2 aftan, 3 tóra, 4 fólk, 5 tukta, 6 kárna,
10 urmul, 12 náð, 13 kná, 15 fælir, 16 óróar, 18 lokar, 19
armar, 20 ætar, 21 afla.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5 4. c4
Rf6 5. Rc3 e6 6. Rf3 Be7 7. Bd3 O-O
8. O-O Rc6 9. a3 dxc4 10. Bxc4 b6
11. Bg5 Bb7 12. He1 Hc8 13. Ba2
Rd5 14. Bd2 Rxc3 15. Bxc3 Bf6 16.
Dd3 Re7 17. Had1 Rd5 18. Bb1 g6
19. Bd2 Re7 20. Re5 Bg7 21. Dh3
Rf5 22. Bd3 He8 23. Bb4 Dg5 24.
Bb5 Hed8 25. Bd7 Hxd7 26. Rxd7
Rh4 27. Dg3
Staðan kom upp í seinni hluta Ís-
landsmóts skákfélaga sem lauk fyrir
skömmu í Rimaskóla í Reykjavík.
Júlíus Friðjónsson (2167) hafði svart
gegn Sigurbirni Björnssyni (2287).
27… Dd5! 28. Hc1 svartur hefði
einnig staðið til vinnings eftir 28.
Re5 Rxg2. 28… Hd8 29. Hc7 Rxg2
30. Hec1 Rf4! 31. Hxb7 Re2+ og
hvítur gafst upp enda staðan að
hruni komin.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hátt spennustig.
Norður
♠2
♥K1053
♦G874
♣ÁD104
Vestur Austur
♠D876 ♠K54
♥D862 ♥7
♦Á2 ♦D1096
♣K62 ♣G9753
Suður
♠ÁG1093
♥ÁG94
♦K53
♣8
Suður spilar 4♥.
Sveit Frakkans Zimmermans varð
Vanderbilt-meistari á bandarísku vor-
leikunum, lagði lið Fleishers í 64-spila
úrslitaleik með 104 stigum gegn 94. Lít-
ill munur, enda mátti vart á milli sjá
hvor sveitin spilaði verr! Með Zimmerm-
an voru Frakkarnir Multon og Bessis-
bræður, ásamt Norðmönnunum Hel-
gemo og Helness.
Það er sama hver íþróttin er, úrslita-
leikir eru yfirleitt illa spilaðir. Einkum ef
þeir eru stuttir með mörgum hléum. Þá
ná menn ekki að yfirstíga hrollinn og
taugaveiklun keppenda seytlar út í
spilamennskuna. Mikið var af „illa
heppnuðum ákvörðunum“ í þessu leik.
Dæmigert er spilið að ofan, þar sem
Helgemo snargaf 4♥ með ♦Á út. Sagn-
hafi fékk á toppana sína þrjá og sjö slagi
á hjarta með víxltrompun. Hinum megin
kom út lauf, ásinn upp og hægt andlát.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú geislar af sönnu hugrekki, og
það skerpir aðra fína eiginleika sem þú
býrð yfir. Sýndu væntumþykju þína.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Í stað þess að flýja vinnuna skaltu
taka þér fimm mínútur fyrir djúpöndun
eða göngutúr í hádeginu. Sambönd þróast
af sjálfu sér, ekki gera endalausar kröfur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Farðu þér hægt í því að fitja upp
á nýjum hlutum í dag og gakktu frá öllum
lausum endum. Reyndu að auka þekkingu
þína og skilning á framandi hug-
myndafræði og menningu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ákveðnar staðreyndir um þig
gætu spurst út í dag og jafnvel leitt til
rifrildis fyrir opnum tjöldum. Gefðu þér
tíma til að rækta líkama og sál því allt
veltur á jafnvægi þar í milli.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ættir að koma miklu í verk, ekki
síst ef um veigamikið verkefni er að ræða.
Ferðalag gæti reynst handan við hornið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Gættu þess að stökkva ekki upp á
nef þér af minnsta tilefni. Hafðu augu og
eyru opin svo þú missir ekki af neinu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er svo auðvelt að fylgja straumn-
um en erfiðara að standa á sínu. Eitt það
besta við ungt fólk er að það fæddist á allt
öðrum tíma en maður sjálfur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Óvægin skoðun innan fjöl-
skyldunnar leiðir ójafnvægi í ljós. Stjórn-
semi er góð en hún þarf að vera í hófi eins
og annað.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú átt kannski bágt með að
trúa því að metnaðargirnin knýi ekki alla
áfram, en þannig er það. Huggaðu þig við
það að þessi óþægilega tilfinning sem
hrjáir þig ætti að hverfa fljótt.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert mikill hugsuður og fólk
dáist að þér. Slysahætta er meiri í dag.
Vegna hugsjóna þinna langar þig að
leggja ákveðnum málstað lið.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú hugsar mikið um tilgang
lífsins þessa dagana. Láttu það líka eftir
þér að bregða svolítið á leik. Tíminn hefur
unnið með þér svo verkefni reynist auð-
veldara en þú bjóst við.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Alveg upp úr þurru færð þú
óvenjulega hugmynd um hvernig þú getir
skemmt þér og öðrum. Talaðu hreint út
og allt mun ganga vel hjá þér.
Stjörnuspá
Þetta gerðist…
30. mars 1802
Kúabólusetning gegn bólusótt
var lögboðin hér á landi, miklu
fyrr en í flestum öðrum lönd-
um. Lengst af höfðu prestar
bólusetninguna með hendi en
síðar læknar og ljósmæður.
Bólusótt var áður fyrr mikil
landplága og var síðasti far-
aldurinn á Íslandi 1839-40.
30. mars 1816
Hið íslenska bókmenntafélag
var stofnað til að „viðhalda
hinni íslensku tungu og bóka-
skrift og þar með menntun og
heiðri þjóðarinnar“. Félagið
gefur út Skírni, elsta tímarit á
Norðurlöndum, en það hefur
komið út síðan 1827.
30. mars 1934
Eldgos hófst í Grímsvötnum í
Vatnajökli og stóð í tvær vik-
ur. Gosinu fylgdi hlaup í
Skeiðará. Öskufall varð aust-
anlands og eldbjarmar sáust
víða að.
30. mars 1949
Aðild Íslands að Atlantshafs-
bandalaginu var samþykkt á
Alþingi með 37 atkvæðum
gegn 13 en 2 sátu hjá. Miklar
óeirðir urðu við Alþingishúsið
og lögreglan beitti táragasi.
Daginn eftir var fyrirsögn
Morgunblaðsins: „Trylltur
skríll ræðst á Alþingi. Grjót-
kast kommúnista veldur lim-
lestingum.“ Þjóðviljinn sagði:
„Landráðin framin í skjóli of-
beldis og villimannlegra árása
á friðsama alþýðu.“
30. mars 2006
Miklir sinueldar kviknuðu á
Mýrum á Vesturlandi. Þeir
loguðu í þrjá daga á 67 fer-
kílómetra svæði og gróður
skemmdist mikið. „Mestu sinu-
eldar Íslandssögunnar,“ sagði
Fréttablaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
HANDKNATTLEIKSKONAN og Verslunarskóla-
mærin Stella Sigurðardóttir fagnar tvítugsafmæli
sínu í dag. Aðstæður eru harla óvenjulegar enda
er Stella í Lundúnum með landsliði Íslands í hand-
knattleik. Lítið fer því fyrir skemmtanahaldi en
meira fyrir æfingum. Landsliðið mætir því breska
á morgun og aftur í Laugardalshöll á laugardag.
Þó að afmælisdagurinn fari í æfingar er ekki
þar með sagt að Stella láti afmælisfögnuð lönd og
leið þetta árið. Snemma í mánuðinum hélt hún upp
á áfangann ásamt frænku sinni. Buðu þær 60-70
manns til heljarinnar veislu og hitaði
hersingin vel upp áður en haldið var til landvinninga í miðborg
Reykjavíkur. Stella sem segist mikið afmælisbarn er gríðarlega
ánægð með hvernig til tókst.
Miklar annir eru framundan hjá Stellu. Fyrri hluta apríl leikur hún
með liði sínu, Fram, í úrslitakeppninni og lærir á sama tíma undir
stúdentspróf, sem hefjast í lok mánaðar. Gangi allt að óskum stendur
hún því uppi sem Íslandsmeistari og stúdent í vor. Hvað framhaldið
áhrærir er allt óvíst en Stella hyggst íhuga námsval næsta hausts á
sundlaugarbakka á Costa del Sol í útskriftarferð Verzló. andri@mbl.is
Stella Sigurðardóttir er tvítug í dag
Fagnar á landsliðsæfingu
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is