Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.10.1965, Page 4

Skólablaðið - 01.10.1965, Page 4
- 4 - knattspyrnu til dæmis þyrftu Danir að sigra okkur með markamun, sem skipti tugum til þess að viðurkennt yrði her á landi. Su tilfinning, að allar viðureignir vor- ar við erlenda aðila eru fyrirfram unnar, er mjög þægileg og ometanlegt veganesti þeim sem þær heyja. Fullvissa kepp- anda um sigur sinn án tillits til þess hvar hann verður i röðinni eykur styrk hans, andlegan og líkamlegan. Annar kostur, eðlislægur 1 öllum Ts- lendingum er réttlætistilfinning. Mat okk- ar á ráttu og röngu er skýrt og utjaðrar réttlætis greinilega afmarkaðir. Enginn efast t. d. um sekt þess, sem brotizt hef- ur inn i verzlun að næturlagi og haft á brott með sér fimm þusund krónur. Glæpurinn er augljós, nafn mannsins birt og þjóðin fitjar upp á trýnið af vanþókn- un. Hins vegar leikur meiri vafi á hvern- ig meðhöndla skuli þann, sem með lipurð og lagni hefur komizt yfir fimm milljón- ir úr sjóði atvinnurekenda síns. Það er nefnilega dálítill vandi að stela fimm milljónum án þess að nokkur taki eftir þvá. t sumum tilvikum er afbrotið reynd- ar opinbert og þjóðin fylgist með af á- huga og dáist að hæfileikum sakbornings. Hitt er þó algengara, að slík störf séu innt af hendi 1 kyrrþey, þvi enn eru til einstaklingar (þær eftirlegukindur týna þó stöðugt tölunni ), sem finnst þetta at- hæfi ámælisvert og ekki fallið til eftir- breytni. En er mál af þessu tagi kemur til dóms (eftir hálfs til fimm ára athugun) er það æði oft fyrnt eða þá beinlínis að almennt er álitið, að svo slyngan fjár- málajöfur megi ekki loka inni á letigarði og honum greiddar bætur fyrir meint óþægindi varðandi málið. "Með lögum skal land byggja en með ólögum eyða. 11 18. okt. 1965 Jóhannes Björnsson |Wj]| ÚSUND árum eftir dauða Buddha kom indverski munkurinn Bodhidharma til Kína og flutti með sér afbrigði það af Buddisma, er kallast Zen. Zen barst frá Kína til Japan og hefur siðan haft mikil áhrif á menningarlíf Japana. Zen er kennt með gátum eða sögum þeim er kallast koan. Koan er gáta eða saga án nokkurs rökrétts svars, enda er einn aðaltilgangur Zen sá, að leysa menn úr fjötrum raka og rökfræði, til þess að gera þá færa um að sjá inn í heim hins eilifa, Mikla Tóms, sem var til áður en okkar heimur myndaðist og mun verða til eftir endalok hans. Við erum öll hluti þessa Mikla Tóms og við erum öll hluti af hvert öðru. Eftirfarandi sögur eru úr annálum Zen - sögur af löngu liðnum meisturum og patrúörkum; dæmisögur notaðar til kennslu og koan ætluð til þess að leysa hugann úr böndum raka og rökfræði : Wakuan stóð fyrir framan mynd af Bodhidharma, þar sem Bodhidharma hafði sitt skegg. - Hvers vegna hefur maðurinn ekkert skegg? spurði Wakuan. Kokushi kallaði á þjón sinn: - Oshin. Oshin svaraði : - Já. Kokushi kallaði : - Oshin. Oshin svaraði : - já. Kokushi kallaði enn : - Oshin. Oshin svaraði enn : - Já. Kokushi sagði : - Fyrirgefðu að ég skuli vera að kalla svona upp nafnið þitt. En í rauninni ert það þú, sem átt að biðja mig fyrirgefningar. Kyogen sagði við nemendur sína: - Zen er maður, sem hangir í tre yfir djúpu gili. Hann hangir á tönnunum í einni af greinun- um. Hendur hans og fætur eru honum ónýt- ar. Uppi á brúninni er maður, er kallar til hans : - Hvers vegna kom Bodhidharma frá Indlandi til Kína? Ef hann svarar ekki er hann glataður.Ef hann svarar deyr hann. Hvað á hann að gera?

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.