Skólablaðið - 01.10.1965, Síða 5
BJARNI HELGASON f. 12.11.1948 d. 4.10.1965
"Og við,
sem eygðum ei kvöldið
í öryggi hins sólhvíta dags,
sátum hljóðir og undrandi
andspænis svörtum vegg,
sem við komumst ei yfir,
það var nóttin. "
( St. St. )
Það var um áramótin 60-61, sem Bjarni Helgason bættist \ hóp okkar 1.
bekkinga í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði.
Broshýr, hæglátur og yfirlætislaus, mætti hann forvitnisaugum okkar hinna
og þannig reyndist hann okkur bekkjarsystkinunum hvort heldur var i leik
eða starfi þá fjóra vetur, 3 í Flensborgarskóla og 1 hér í Menntaskólan-
um, er við nútum samvista við hann.
Ekkert okkar vissi fyrr en að honum látnum, að á þessu tímabili barðist
Bjarni við þann sjúkdóm, er dró hann til dauða á þessu hausti.
Hversu mikill hefur styrkur hans verið þessi ár fram yfir okkur hin, sem
sátum heilbrigð við hlið hans og áttum þó oft fullt í fangi með verkefnin.
Við sem erum ung eigum bágt með að sættast við dauðan. Þegar við
missum góðan vin, neitum við jafnvel að trúa að slíkt óréttlæti hafi átt
sér stað. Og þvá sárari er söknuður okkar.
Við skólasystkinin þökkum Bjarna Helgasyni samverustundirnar allar.
Foreldrum hans og ástvinum öðrum vottum við innilega samúð okkar.
jóhann Bjarni Kristjánsson