Skólablaðið - 01.10.1965, Side 8
ÞAÐ hefur um nokkurt skeið þótt til-
hlýðilegt, að stjórn " Framtíðarinnar "
gerði nokkra grein fyrir framkvæmdum
og áformum sinum þegar 1 l.tbl. Skola-
blaðsins.
Skömmu eftir kosningar 1 vor kom
stjórn félagsins saman til síns fyrsta
fundar. Voru á honum ræddar ýmsar
hugmyndir stjórnarmanna um starfið á
vetri komanda, sem nú, er þetta er rit-
að, eru orðnar að veruleika.
Lög fólagsins hafa verið gefin út í breyttu
formi og framsetningu þeirra að nokkru
raskað.
Kynningarblöðungi var dreift 1 allar
bekkjardeildir skolans þann 4. okt. , en
efni hans var aðallega kynning á félaginu
svo og greint frá nefndarskipun, er drep-
ið verður á síðar.
Á þessum fyrsta fundi stjórnarinnar
var ákveðið, að félagið beitti sér fyrir
útgáfustarfsemi á þeim sviðum, sem
næst standa tilgangi og markmiði felags-
ins, og ákveðnum stjórnarmönnum falið
að annast framkvæmd þess að þvf, er
varðar prentun og aðra undirbúnings-
vinnu, og skyldu þeir leysa hana af hendi
1 sumar.
Bæklingar þeir, sem gefnir hafa verið
út, eru Fundarsköp eftir Braga Hannes-
son, bankastjóra, og erindi, er nefnist
Um ræðumennsku eftir Gunnar Thorodd-
sen. Með tilliti til kostnaðar við útgáfu
þessa þótti skynsamlegast að hafa nefnda
bæklinga í það stóru upplagi, að þeir
nægðu félaginu um nokkurra ára skeið.
Voru þeir þvf unnir i 3000 eintökum hvor
um sig og liðlega 1100 eintökum dreift
endurgjaldslaust innan skólans, en hug-
myndin er, að þeim verði framvegis
dreift meðal nýrra nemenda og með það
fyrir augum að veita þeim tækifæri til
bóklegrar undirstöðu í fundarsköpum og
ræðumennsku.
Málfundastarfsemin er aðalverkefni
félagsins og er ráðgert að halda 10-12
málfundi í vetur, þar af 2-3 fyrir þriðja
bekk einan, sem fulltrúar félagsins í
bekknum munu annast. Stjórnin hefur
skipað tólf manna nefnd til að gera til-
lögur um framsögumenn og umræðuefni
á málfundum félagsins. Hefur nefndin
þegar komið saman og skilað sínum
fyrstu tillögum.
Annar höfuðþátturinn í starfsemi
"Framtíðarinnar" eru erindi flutt af sér-
fróðum mönnum. Hafin er kynning a
stjórnmálaflokkunum, en eigi getur talizt
varlegt, að greina frá öðrum áformum
á þessu sviði starfsins.
Stjórn "Framtiðarinnar" hefur lagt
ríka áherzlu á innbyrðis verkaskiptingu.
Má nefna, að Árni ól. Lárusson, gjald-
keri félagsins, hefur tekið að ser að
annazt spilakvöld félagsins, en þau eru
einn vinsælasti og fjölsóttasti þattur í
starfi þess. Er þegar hafin þriggja
kvölda félagsvistarkeppni með glæsileg-
um heildarverðlaunum.
Málkvöld munu verða nokkur í vetur.
Hlutverk þeirra í skólalífinu getur verið
mikið, sérstaklega er varðar jákvæða og
heilbrigða gagnrýni ásamt raunhæfum
ábendingum á það, sem miður kann að
fara í starfi "Framtúðarinnar" og ann-
arra félaga innan skólans.
Um málsvarnir skírskotast að svo
stöddu til fórnarlundar félagsmanna við
þann þátt félagsstarfsins.
Samkvæmt venju mun arshatið felags-
ins verða haldin upp úr miðjum nóvemb-
er og er undirbúningur hennar hafinn.
Eins og kunnugt er eru fjórar sjálf-
stæðar deildir starfandi innan vébanda
"Framtíðarinnar", Raunvúsindadeild,
Bridgeklúbbur, Ljósmyndaklúbbur og
Jassklúbbur.
Deildir þessar eru fullkomlega sjálf-
ráðar um starfsemi sína, og hafa af-
skipti "Framtí’ðarinnar" af málefnum
þeirra verið svo til eingöngu að styrkja
deildirnar fjárhagslega. ,
Frh. a bls.^3.