Skólablaðið - 01.10.1965, Blaðsíða 22
22 -
hlaupa með tréhrifuna vantandi þrjá tinda
og það tvo saman og varð að hafa það að
vera vettlingalaus þótt hann yrði líklega
að raka ræpurnar allt fram að kaffi og
vel það og hafði þó dreymt alls konar
fmirí’ alla nóttina og vel það.
4.
Skurðurinn gapti tómur nema þá að-
eins lögg í botninum í stað girðingar við
slægjuna og hnausarnir döggvaðir vaxnir
torkennilegum gróðri og þó grastoppur á
milli en flugur virtust ekki komnar á
kreik og var það vel og sá langt yfir
móana og skurði og sums staðar grjót
og sand og yfirgefin hreiður eða uppgjafa
kindabein 1 algjörri óvissu og sem hann
stráktippið hafði þetta fyrir augunum
varð honum og er varla að undra vegna
mjólkurþambsins ( barninu á kvöldin mál
að miga og sneri sér frá bænum og
setti hrífuna niður með tindana upp af
þvú að hann vildi endilega fara að fá
rigningu svo ekki yrði svona leiðinlega
mikið að raka og passaði að láta helvít-
is husmanninn ekki sjá en sprændi út
yfir þúfuna rótt við skurðbakkann og sem
hann pissar þarna óburðuglega i morgun-
golunni og starir 1 verkleysu á pýramfda-
gröftinn hins vegar skurðarins og uggir
ekki að sér heldur lætur hugann staðna
dettur það upp 1 honum svo snögglega að
hann fær ekkert við ráðið en heldur að hann
skilji alla vitundina og þar með óvissuna
og allt en gleymir sér aldeilis og stendur
sem pissandi en þó löngu hættur er hann
skilur eða honum áskotnast sá skilningur
eða vissa að alveg eins og hann hafði súna
eigin ástkæru foreldra pabba og mömmu
og tvo afa eina lifandi ömmu og eina dauða
og eina dauða langömmu sem honum hafði
verið sagt frá og sýndar myndir af 1 æsku
og lika systkini svo sem bróður sinn litla
og systur sínar allar og líka þá giftu þá á
þetta helvíti húsmaðurinn foreldra ömmur
og þó líklegast allar dauðar og afa og
systkini og guð veit hvað mörg og hefur
einu sinni verið lítill og þetta uppgötvast
honum fyrst núna og það alveg að óvör-
um og hundslöppin átti mömmutík og
hund og hann veit ekki hvað og þetta eiga
allir.
YER er Búddha ? Hvað er
Búddha ?
Hér fylgja svör nokkurra
Zen meistara við þessari
spurningu.
- Eitthvað úr leir með gylltu laufi á.
- Þessi þarna inni i forstofunni.
- Hann er ekki Búddha.
- Sjáðu þrúfætta asnann þarna.
- Fjöllin fljúga yfir hafið.
- Þurr skítur.
- Munnurinn er inngangur ógæfunnar.
- Bezti málari getur ekki málað hann.
- Bambuslundurinn bak við húsið.
Undrandi munkur sagði einu sinni við
Fuketsu :
- Af orðum þínum að dæma er hægt
að segja sannleikann án þess að tala,
og án þess að þegja. Hvernig fær þetta
staðizt ?
Fuketsu svaraði :
- Þegar ég var drengur 1 Suður-
Kína, ó, hve fuglarnir sungu þá á meðal
blomanna.
FRÁ IÞÖKU - frh. af bls. 15.
Reynt verður að hafa safnið opið nokkuð
oftar og lengur en tíðkazt hefur undan-
farin ár eða 4 daga í hverri viku :
mánudaga og fimmtudaga kl. 20-23 og
þriðjudaga og föstudaga kl. 14-16.
Vænti ég þess, að nemendur sæki
safnið vel á komandi vetri og færi sér í
nyt fróðleik þann, sem þar er að finna
og vfkki með þvf sjóndeildarhring sinn,
enda hefur sá verið tilgangur safnsins
frá upphafi.
Ritað í lok sumars 1965.
Hans Kr. Guðmundsson