Skólablaðið - 01.10.1965, Side 23
- 23 -
NÚ í vetur eru átta ár liðin síðan
Raunvásindadeild Framtiðarinnar var stofn-
uð af nokkrum áhugamönnum um raun-
vásindi. Tilgangur deildarinnar er að efla
áhuga á raunvísindum meðal nemenda.
í þvá skyni hafa verið haldnir allmargir
fyrirlestrar, sýndar kvikmyndir, gefið ut
blaðið De rerum natura svo og gengizt
fyrir starfskynningum. Starfsemi deildar-
innar hefur þo verið æði misjöfn ár frá
ári, og hefur áhugaleysi nemenda einkum
valdið þvi. Til að mynda voru aðeins
sjö felagar annað árið, en þeim hefur Jió
farið ört vaxandi, og það, sem af er nu,
hafa 411 nemendur innritað sig í deildina
í vetur. Lofar það góðu um, að takast
megi að halda uppi öflugri starfsemi
flestum til skemmtunar og fróðleiks.
Það er leitt, hve mjög máladeildar-
nemendur hafa sýnt deildinni lítinn sóma,
og talið það fyrir neðan sína virðingu að
innrita sig í deildina. Þrátt fyrir þeirra
hámaniska áhuga, er þeim efalaust hollt
að hafa örlitla innsýn 1 þann heim, er
tilvera okkar byggist á. Það er hverjum
manni nauðsynlegt - hvort sem hann er
í mála- eða stærðfræðideild - að kunna
einhver skil á ríki náttúrunnar, sem er
undirstaða alls, og þvú engum óviðkom-
andi.
Sakir súaukinnar verðbólgu hefur kostn-
aður við De rerum natura farið ört vax-
andi. Þess vegna hefur nú verið akveðið
að hækka árgjald í kr. 50, 00. Framtíð-
in hefur ávallt styrkt deildina af mikilli
rausn, og ber að þakka það, sem vel er
gert. Þá hefur~ rektor, Einar Magnús-
son, sýnt þá velvild að veita styrk úr
skólasjóði, verði halli á útgáfu blaðsins,
og kunnum við honum beztu þakkir.
Ráðgert er að efna til íyrirlestra í
vetur um margvisleg efni, og mun
dr. Sigurður Þórarinsson flytja þann
fyrsta um Surtsey og sýna jafnframt lit-
skuggamyndir. Kvikmyndasýningar munu
verða öðru hvoru, og verður vandað til
þeirra eftir föngum. Þá verða gefin
a. m. k. út tvö blöð af De rerum natura,
er flytja mun fræðandi greinar ur heimi
raunvúsinda og sitthvað fleira til gagns
og gamans. Starfskynning verður síðari
hluta vetrar, og eru nemendur hvattir
til að notfæra sór þá aðstoð, er þar
býð st.
Að lokum vil ég eindregið hvetja nem-
endur til að taka virkan þátt í starfsemi
Raunvisindadeildar og sýna henni nú
meiri áhuga en áður.
F. h. stjórnar Raunvísindadeildar
Framtúðarinnar
Ágúst H. Bjarnason
FRÁ FRAMTlÐINNI, iRh._a_f_bls_._8_.
Felagið mun ekki horfa í það fó, sem
það lætur deildunum í té, vegna þess
hve hlutverk deilda félagsins er mikil-
vægt hvað varðar aukna fjölbreytni í fé-
lagslífinu.
Hér hefur verið getið nokkurra þátta
úr starfi "Framtiðarinnar", en ekki er
unnt að gera þeim öllum skil sem skyldi
og ef til vill ekki æskilegt að svo stöddu.
Stjórnin mun gera það sem i hennar
valdi stendur til að starf félagsins verði
sem blómlegast á sem flestum sviðum, en
máttur hennar er hverfandi lítill ef ekki
fylgir mikill og rammur áhugi félags-
manna á vexti og viðgangi félags sms.
Ármann Sveinsson