Austri - 02.02.1967, Blaðsíða 1
Otgefandi:
Kjördæmlssamband
Framsóknarmanna í
Austurlandskjördæml.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Kristján Ingólfsson
Vilhjálmur Hjálmarsson
Fjármál og auglýsingar:
Björn Steindórsson,
Neskaupstað.
NESPRENT
Fundur um raforkumál
Hið nýstofnaða samband sveit-
arfélaga á Austurlandi efndi til
fulltrúafundar um raforkumál
fjórðungsins á Egilsstöðum á
þriðjudaginn í síðustu viku.
Fundinn sóttu 36 fulltrúar frá
24 sveitarfélögum. En nær öll
sveitarfélög á Austurlandi hafa
þegar gerzt aðilar að samtökun-
um.
Raforkumálastjóri, Jakob Gísla-
son, og rafveitustjóri ríkisins sátu
fundinn og fluttu yfirlitserindi.
Allir fiirnm alþingismenn kjör-
dæmisins voru mættir og tóku
þjátt í umræðum. Fjölmargir gest-
ir af Héraði og næstu fjörðum
sátu og fund þennan sem haldinn
var í Héraðsheimilinu Valaskjálf.
Formaður samtakanna, Sveinn
Jónsson á Egilsstöðum, setti
fundinn og stýrði honum, en rit-
ari sambandsins, Hrólfur Ingólfs-
son, Seyoisfirði, bókaði gerðir
hans.
—o—
Raforkumálastjóri, Jakob Gísla>-
son, gaf yfirlit um raforkuvinnslu
og notkun á Austurlandi og um
athuganir þær, er gerðar hafa
verið varðandi næstu aðgerðir á
svæði Austurlandsrafveitunnar.
Hvergi á landinu lrefur notkun
raforku vaxið eins ört og á Aust-
urlandi. Með virkjun Grímsár
tvöfaldaðist orkunotkunin á fjór-
um árum. Og með aukningu síld-
veiða og síldariðnaðar varð aftur
100% aukning á svipuðum tíima.
I töflunni hér á eftir er sýnt í
1. dálki framleidd raforka á
veitusvæði Austurlands 1956—
1966 í millj. kwst., í 2. dálki er
sýnd notkuð fiskiðnaðarins í
sömu einingu frá 1961—66 og
loks í 3. dálki hundraðshluti
vatnsafls í heildarorkuvinnslunni
frá 1959—66.
1956 4.5
1957 4.6
1958 6.2
1959 7.8
1960 8.4
1961 9.7
1962 10.7
1963 13.1
1964 15.6
1965 19
1966 24.5
»-• u. \ I I- »• . - 'v •-
Þannig hefur hundraðshluti
vatnsorku í heildarorkufram-
leiðslunni stöðugt farið minnk-
andi. Af framleiddri vatnsorku
hefur Grímsá skilao 90% og nýt-
ing orkuversins þar stöðugt farið
vaxandi með auknu álagi.
Árið 1961 samþykkti Alþingi á-
lyktun uim1 heildaratliugun á raf-
orkumálum Austurlands.
Varðandi orkuöflun var í
fyrstu gerður samanburður á
virkjunarstöðum austanlands,
einkum Lagarfossi og Fjarðará í
Seyðisfirði svo línu frá Laxá.
Framkvæmdar hafa verið1 vatna-
mælingar, jarðvegsrannsóknir og
boranir. Fljótlega varð þó ljóst,
að Lagarfoss einn gat gefið full-
nægjandi orku. Var því hafizt
handa að kortleggja vatnasvæði
Lagarfoss og dýptarmæla Löginn.
Frá 1965 liefur sérstakur
vinnuhópur verið starfandi á Raf-
orkumálaskrifstofunni vegna þess-
ara athugana allra. Skyldi m. a.
gera „orkuspár" fyrir veitu-
svæðið og fullnaðaráætlanir um
virkjanir í Lagarfossi allt frá 6.3
mw, upp í fullvirkjun fossins, sem
talin er skila 20—25 mw.
Skv. áætlunum, sem þegar eru
fyrir hendi, kostar 6.3 m w.
virkjun með línu til Egilsstaða
100 millj. króna, en lína frá
Laxá með 16 þ. kw. flutnings-
getu uim 60 millj. kr.
Sl. vor óskaði stjórn Laxár-
virkjunar aðstoðar ríkisstjórnar-
innar við útvegun lánsfjár og
ríkisábyrgða vegna stækkunar
orkuversins. Stjórnskipuð nefnd
athugar í heild orkuþörf Norður-
lands og Austurlands.
Samtenging veitusvæða gefur
möguleika til stærri og ódýrari
virkjana.
Valgavð Thoroddsen gaf ýmsar
upplýsingar um rafmagnsveitur
ríkisins á Austurlandi, línulagnir
um sveitir o. fl.
Fjárfesting hefur orðið sem
hér segir: Vatnsaflsstöðvar 65
millj. kr., dísilstöðvar 63 millj.,
aðalorkuveitur 43 millj. og dreifi-
kerfi 67 imillj., alls 238 millj. kr.
Er það um 20% af fjárfestingu
ríkisins til raforkuframkvæmda.
Ath. blaðsins: Stærstu orkuver
landsins eru ekki ríkiseign nema
að hluta).
Um rekstursafkomu ríkisveit-
anna gaf rafveitustjóri þessar
upplýsingar:
Gjöld Tekj. Halli
m.kr. m.kr. m.kr,
Suðvesturland 49 51 2
S næfellsnes - og
Dalasýsla 10 7 3
Vestfirðir 19 10 9
Norðurland 31 25 6
Austurland 36 20 16
Afkoman er því lökust á Aust-
urlandi, enda hluti dísilorku í
framleið'slu hvergi meiri og
byggðin strjálli þar en annars
istaðar og dreifikerfi því dýrt.
Sé miðað við landið allt er
fjöldi þeirra, er rafmagns njóta,
á milli 90 og 100%. En ef litið
er á dreifingu rafmagns frá sam-
veitum um sveitirnar þá verður
annað uppi á teningnum.
I þrem sýslum hafa nær öll
sveitabýli fengið rafimagn, þ. e.
í Gullbringdu- og Kjósarsýslu,
Rangárvallasýslu og í Eyjafirði.
Sé litið á landfjórðungana stendi-
ur dæmið þannig:
Suðurland 84%
Vesturland 48%
Norðurland 67 %
Austurland 34%
Mikið strjálbýli veldu mestu
um hversu skammt er komið
dreifingu um sveitir á Austur-
landi.
Eystenn Jónsson gat um sam-
starf þingmanna af Austurlandi í
raforkumálunum, athuganir sér-
Mesta
Allmikil umsvif hafa verið í
félagslífi í fjórðungnum nú í
skammdeginu og færð verið all-
góð eftir áramótin, a. m. k. í
byggðum. Mikil svellalög hindr-
uðu þó um tíma umferð um Stað-
arskarð og ófært var til Borgar-
fjarðar um tíma. Oddsskarð hef-
ur einnig lokazt öðru hvoru og
Fjarðarheiði aðeins farin á snjó-
fcíl, þó var ekið þar um tíma í
frosinni ýtuslóð á léttum bílum,
bæði jeppum og fóiksbílum.
Leikféiög Fáskrúðsfjarðar og
Neskaupstaðar hafa komið á sýn-
ingum á leikritum sínum og far-
ið á milli fjarða, stundum með
aðstoð varðskipa. Á Héraði var
haldin mjög fjölsótt menningar-
vaka í Valaskjálf fyrir jól og nú i
fræðinga og viðbrögð1 stjórnar-
valda.
Þá ræddi hann nokkuð orku-
skortinn og þau vandræði er
hlotizt hafa af truflunum í rekstri
dísilstöðvanna í sumar.
Áætlanir sérfræðinga sýna að
virkjun í Lagarfossi er út af fyr-
ir sig mjög hagkvæm. Með hlið-
sjón af stórfelldum atvinnu-
rekstri í fjórðungnum er eðlilegt
að myndarlegt vatnsorkuver
verði reist hér, því flutningur raf-
orku um fjöll og firnindi veitir
aldrei sama öryggi. Auk þess ó-
eðlilegt að eiga orkuöflunina
undir samningUi'n við hálfgert
einkafyrirtæki í öðrum lands-
fjórðungi.
Dreifing rafmagnsins um
sveitirnar hefur gengið allt of
seint, fjárveitingar rýrna stöð-
ugt vegna verðþenslunnar. Gera
þarf heildaráætlun nú þegar og
hraða framkvæmdum.
Frumvarp Jónasar Péturssonar
er flutt án samráðs við aðra
þingmenn af Austurlandi. Þarf
að skoðast vandlega, en það imun
■ naumast flýta fyrir lausn þessara
mála að hefja deilur um það nú.
Eg beiti mér ekki fyrir þessari
lausn mála nema í fullu samráði
við ykkur, sveitarstjórnarmenn á
Austurlandi, og eftir ósk frá ykk-
ur.
Lúðvík Jósepsson talaði í líkum
dúr og Eysteinn, mælti sterklega
með virkjun fossins, áréttaði að
sérfræðingar teldu hana hag-
Framh. á 2. síðu.
furða
geisa þar þorrablót eins og raun-
ar víðar, þar sem sá gamli siður
er í heiðri hafður.
Stjórnrmálaflokkarnir undirbúa
nú framboð sín í Austurlands-
kjördæmi við allmikla erfiðleika,
landfræðilega, og vafalaust einnig
af öðrum rótum runna, en ekki
er vitað um niðurstöður þegar
þetta er skrifað.
Samband sveitarféiaga á Aust-
urlandi hefur efnt til stórfundar
um raforkumál eins og nánar
greinir á öðrum stað.
Það imá því segja að furðu
gegni hversu tekizt hefur til um
mannamót á þessum árstíma eins
og 'Samgöngum er annars háttað
í fjórðungnum, strandsiglingar í
molum og vegakerfið ófullkcimið.
93%
98—
3.1 97—
4 88—
5.1 81—
6.9 86—
9.1 69—
13.7 57—
J