Austri - 15.03.1967, Qupperneq 1
Ctgefandi:
Kjördæmlssamband
Framsóknarmanna I
Austurlandskjördæml.
/lastrl
12. árgangur. Neskaupstað, 15. marz 1967. 6. tölublað.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Kristján Ingólfsson
Vilhjálmur Hjábnarsson
Fjármál og auglýsingar:
Björn Steindórsson, ;
Neskaupstað.
NSSPRBNT
Eysteinn Jónsson,
alþingismaður, Reykjavík.
Páll Þorsteinsson,
aþingismaður, Hnappavöllum.
Víglundur Pálsson,
bóndi, Refsstað.
Vilhjálmur Hjálmarsson,
bóndi, Brekku.
Guðmundur Magnússon,
oddviti, Egilsstöðum.
Tómas Árnason,
hæstaréttarlögmaður, Kópavogi.
Ásgrímur Halldórsson,
kaupfélagsstjóri, Hornafirði.
Framsóknarmenn á Austurlandi
ætla sér stóran hlut í kosningun-
um að vanda. Vinni þeir þing-
sæti nægir það eitt til að hnekkja
meirihluta stjórnarflokkanna. Efl-
ing Framsóknarflokksins í kjör-
dæminu, þótt ekki ynnist þing-
sæti, getur einnig orðið örlaga-
rík. I í
Framsóknarmenn munu í þess-
Uiu kosningum leggja meginþunga
á breytta stjórnarstefnu í verð-
lags- og atvinnumálum og á jafn-
vægi byggðanna í fjárhagslegum
efnum og í menningarmálum.
Aðstaðan er góð málefnalega.
Víða um land virðist straumurinn
liggja til Framsóknarflokksins.
Sigurhorfur eru því vænlegar ef
vel verður unnið og enginn dreg-
ur sig í hlé.
—o—
Hér fara á eftir örfáar upplýs-
ingar ui.n frambjóðendur Fram-
sóknarflokksins hér í kjördæm-
inu.
1. Eysteinn Jónsson, f. 13. nóv.
1906 á Djúpavogi, alþingismaður
frá 1933, ráðherra frá 1934—’42,
1947—’49 og frá 1950—1958.
Kona hans er Sólveig Eyjólfs-
dóttir úr Reykjavík.
2. Páll Þorsteinsson, f. 22. okt.
1909 á Hnappavöllum í Öræfum,
bóndi og kennari, alþingismaður
frá 1942. I !
Framh. á 2. síðu.
Sveinn Giuðmundsson, Hjalti Gunnarsson,
kennari, Hrafnabjörgum. útgerðarmaður, Reyðarfirði.