Austri - 19.04.1967, Side 1
Ctgefandi:
Kjördæmlssamband
Framsóknarmanna í
Austurlandskjordæml.
/(usfr!
12. árgangur. Neskaupstað, 19. apríl 1967. 8. tölublað.
Kitstjórar og ábyrgðarmenn:
Kristján Ingólfsson
Vilhjálmur Hjálmarsson
Fjármál og auglýsingar:
Björn Steindórsson,
Neskaupstað.
NEBPRENT
Metafli — Lánsfjárkreppa — Hallarekstur atvinmiveganna — Gjaldeyrisha'li við útlönd — stór-
gróði heildsalanna — Gjaldeyriseyðsla í tertubotna og rusl — Fjárfertingarlán í þarflausar verzl-
unarhallir við Suðurlandsbraut og Laugaveg.
Árið 1960 var víst hvorki rík-
ara né fátækara hvað listir og
bókmenntir snerti hér á landi, en
gengur og gerist. Þó mun lengi í
minnum höfð bók nokkur er þá
kom út og náði meiri útbreiðslu
en algengt er um bækur enda var
henni dreift inn á hvert heimili í
landinu ókeypis. Innihald hennar
og ágæti skyldi þó sannarlega
ekki fara fram hjá nokkru lands-
ins barni. Hún skyldi vera þeim
hinn algilda opinberun í verald-
legum, sem andlegum efnum. Þar
skyldi þó landsmönnum einu sinni
gert kleyft að sjá sannleikann,
þó í samanþjöppuðu formi væri,
sannleikann og ekkert annað.
Hún skyldi jafnframt vísa veginn
framundan, ekki þyrnum stráðan,
heldur blómum. Hér voru þó
sannarlega vaknaðir til lífsins
þeir menn, sem kunnáttu höfðu
til að rækta blómin á eilífðarengi
þjóðmálanna. Hjá þeim þurfti
ekki að óttast að akurinn hlypi í
neina framsóknarórækt.
Kápa þessarar merku bókar var
hvít. Framan á henni var skjaldar-
merki íslenzka lýðveldisins, eins
og til að minna á hver borga
ætti útgáfuna. Það skyldi sam-
eiginlegur sjóður landsmanna
gera, minna mátti ekki gagn gera
enda kannski ekki á öðru von,
þegar um var að ræða hina nýju
bók bókanna, bókina VIÐREISN.
Kosninga-
skrifstofa
;: K jördæmissamband Fram-
sóknarmanna í Austurlands-
j: kjördæmi hefur opnað kosn-
;! ingaskrifstofu á Egilsstöðum.
j í húsi Guðmundar Magnus-
j; sonar, jarðhæð.
,j Páll Lárusson veitir skrif-
; stofunni forstöðu. :j
yM^^WW^^ww^wwvwwwvwwwvv<
„Hún fölnaði, bliknaði fagra
rósin mín.“
Já, hún var full af fyrirheitum:
Heilbrigður grundvöllur var
fundinn. .Bótakerfið skyldi af-
numið. .ráðstafanir gerðar til að
koma á jafnvægi í penifigamálum
og þar fram eftir götunum.
Já, Viðreisnarstefnan leit sann-
arlega út fyrir að vera fögur rós
í árdaga, en sé nú í dag horft
yfir feril hennar getur enginn
lokað augum sínum svo fast, að
ekki sjái hann blöð hennar, föln-
uð og fúin, sem hún hefur misst
og liggja sölnuð við rætur henn-
ar.
Viðreisnarstefnan er löngu
strönduð á fjörum okkar Íslend-
inga. Sú skúta er bæði orðin
feyskin og fúin. Hún verður aldrei
gerð út framar.
Hverjir hafa ráðið?
Það er sagnfræðileg staðreynd,
að Sjálfstæðisflokkurinn er
tryggingarfélag peningamanna.
Það voru fyrst og fremst kaup-
menn sem stofnuðu hann. þeir
hafa jafnan staðið þar nálægt
stýri, og þá einkum þeir, sem
gramsa í innflutningi lands-
manna. Á dögum Ólafs heitins
Thors flykktust einnig fjölda-
margir útgerðarmenn og heil-
brigðir atvinnurekendur undir
merki flokksins svo og fjöldi al-
mennra borgara. Ólafur Thors
var fágætur persónuleiki. Hann
hafði hæfileika til að halda saman
þessu sérkennilega og sundur-
lausa safni. Hann var persónu-
gerfingur safnaðarins og virkaði
eins og teygjuband utan um
hjörðina. En Ölafur Thors var
farinn og alþjóð er sammála um
að fráfall hans hafi verið þjóðar-
skaði, hvað sem pólitískum skoð-
unum viðvíkur. Ólafur er horfinn
og horfinn úr íslenzkri pólitík,
sama þó Sjálfstæðisflokkurinn
auglýsi fundi, þar sem spilaðar
eru af plötum ræður, sem hann
hélt í lifanda Hfi. Sama þótt hann
verði steyptur í eir. Hann er
horfinn.
Og hvað hefur komið í staðinn?
Bjarni er kominn í staðinn,
maður með kosti og galla, eins og
fólk yfirleitt, maður sem leikur
bæði stjórnvitring og landsföður,
en því miður hvorugtveggja illa.
Maður sem hefur staðið við stýri
þjóðarskútunnar um árabil, en
aldrei lært að stýra og skilur nú
við fleyið í fjörunni strandað,
þegar líður að þeim kosningum
sem í hönd fara.
Ólafur Thors kunni til verka,
þegar aga þurfti Sjálfstæðisflokk-
inn. Hann hrósaði og gaf kinn-
hest til skiptis. Hann vildi hafa
heimilisfrið. Sjúkustu peninga-
hrókarnir í flokknum þorðu ekki
að láta undan dýpstu fýsnum sín-
um. Og þó þeir tækju eins drjúg
skref og þeir þorðu, þá tóku þeir
fyrst undir sig stökk til að
hremma allan gróða, sem hugsan-
lega var unnt að krækja í, þegar
Tröllið
Róstursamt hefur verið á heim-
ili Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík síðustu daga. Hannibal Valdi-
marsson hefur lauslega greint
frá atburðunum í útvarpsumræð-
um, enda mundu steinarnir tala
þótt ég þegði, sagði Hannibal.
Það hafði gengið seint að
ákveða framboð Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík. Annars stað-
ar á landinu hafði þeim málum
verið ráðið til lykta, að því er
virtist með allgóðu samkomulagi
þeirra afla, sem togast hafa á
innan bandalagsins. — Þegar því
var lokið létu kommúnistarnir í
Sósíalistafélaginu í Reykjavík til
skarar skríða og röðuðu á fram-
boðslista Alþýðubandalagsins í
Reykjavík eftir sínu höfði, án
minnsta tillits til annarra aðila
þessara ,,stjórnmálasapataka.“
Þessar ákvarðanir, gerðaf með
Ólafs missti við og Bjarni Bene-
diktsson gerðist formaður Sjálf-
stæðisflokksins og síðan forsætis-
ráðherra.
Það er meginmál íslenzkra
stjórnmála í dag, að það eru
heildsalar og spákaupmenn Sjálf-
stæðisflokksins, sem ráða þróun
Viðreisnarinnar. Það eru þeir
sem réðu því að samið er við
erlendan auðhring um ál-
verksmiðju við Hafnarfjörð. Þeir
spurðu ekki að því hvort það
stökk samræmdist velferð ís-
lenzkra efnahagsmála. Nei, þeir
sjálfir sáu fram á eigin gróða-
mjöguleika og einnig það, að enn
rnundi við þetta Verðbólgan auk-
ast.
Danskir tertubotnar og alþjóð-
legt kexrusl skreytir nú búðar-
hillur, keypt fyrir gjaldeyri þann,
sem íslenzkir sjómenn og erfiðis-
fólk aflar í sveita sínum, þjóð-
inni til handa.
Þessi krumla spákaupmennsk-
unnar er alls staðar og ofan í öllu.
Innflutningurinn er taumlaus, en
um leið fyrirhyggjulaus. Alls-
konar einskis nýtt rusl er á boð-
stólum, þó um leið sé skortur á
nauðsynlegustu hlutum, er við
koma lífs nauðsynlegum atvinnu-
rekstri landsmanna. Jafnvel í inn-
flutningi á lyfjum eru allskyns
kaupahéðnar að vasast, sem allt
vit skortir í þeim efnum. Læknar
fá ekki nauðsynleg lyf, en ýmis-
legt gums frá vafasömum verk-
Framh. á 2. síðu.
glotiir
miklu brauki og bramli, að sögn
hlutaðeiganda sjálfra, hafa vakið
mikla athygli um allt land, og
raunar margra, sem ekki höfðu
gert sér grein fyrir vinnubrögð-
um kommúnista.
Ljóst er, að þeir hafa að yfir-
lögðu ráði látið bíða að beita
meirihlutavaldi í Reykjavík , þar
til búið var að ákveða framboðin
annarsstaðar. Síðan láta þeir
höggið ríða.
Þessir síðustu atburðir hljótá
að vera lærdómsríkir fyrir þá,
sem í góðri trú-hafa unnið að því
árum saman að gera Alþýðu-
bandalagið að vinstrisinnuðum
verkalýðsflokki, óháðan erlend-
um stjórnmálastefnum. En þeir
eru líka að sjálfsögðu vatn á
myllu ríkisstjórnarinnar og
stuðningsmanna hennar. — Tröll-
jð glottir.