Austri - 29.06.1967, Side 1
ÍJtgefandi:
Framsóknarmanna í
Austurlandskjðrdæml.
12. árgangur. Neskaupstað, 29. júní 1967. 15. tölublað.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Kristján Ingólfsson
Vilhjáhnur Hjálmarsson
Fjármál og auglýsingar:
Björn Stelndórsson,
Neskaupstað.
NESPRENT
Ríhisstjórnin riðaði, en hélt þó velli
Nýhjörnir öinnmenn
Framsóknarflokhsins i
Austurlandskjördcemi
Eysteinn Jónsson,
1. þingmaður Austurlands.
Páil Þorsteinsson,
2. þmgmaður Austurlands.
Vilhjáhúur lljálmarssou,
5. þingmaðyr Austurlands.
Nú eru liðnar tæpar 3 vikur
síðan alþingiskosningar fóru
fram, og má segja, að hugur
manna sé nú tekinn að snúast
mjög um aðra hluti eftir allan
þann spenning, sem geysað hafði
kosningahríðina, og lagt undir sig
flest svið þjóðlífsins.
Eingu að síður er þó ástæða til
að gera sér grein fyrir því hverj-
ar helztu orsakir kosningaúrslit-
anna enu, og hverjar afle'ðingar
þau geta haft.
Áður en lengra er haldið er
bezt að skrá niður meginmálið,
sem sé:
Ríkisstjórnartlokkarnir héldli
velli. Að vísu minnkaði fylgi
þeirra, og hafa þeir nú að baki
sér 53.2% í stað 55.6% áður.
Sameiginlegur þingmannafjöldi
J»eirra er hinsvegar hinn sami.
Sé þetta aðalatriði kosningaúr-
slitanna Skoðað í ljósi yfirlýsinga
flokkanna fyrir kosningar, þá ber
nú þessum flokkum að hafa for-
ustu um þjóðmál okkar þetta
kjörtímabil, og er það von Fram-
sóknarmanna, að þeir sjái að sér,
og hverfi frá villu síns vegar, þar
sem þau orð eiga við. Framsókn-
arfiokkurinn mun halda þeirri
stefnu, að1 styðja góð mál hvaðan
som þau koma, en reynast á hinn
bóginn sem harðastur mótspyrnu-
aðili, þar sem hann telur að
framkvæma eigi vafasama eða
hættulega hluti.
Útkoman úr kosningunum
Framsóknarflokkurinn hefur
enn sem fyrr á bak við sig 28 af
hverjum þeim 100 Islendingum,
er láta sig landsmál skipta með
atkvæðarétti sínum.
Það ber ekki að dylja, að það
olli Framsóknarmönnum von-
brigðum, að um hlutfallslega
aukningu skyldi ekki verða að
ræða. Flokkurinn bætti að vísu
við sig tæpum 2000 atkvæðum,
svo að hér er ekki um nein dauða-
merki að ræða, né uppdráttar-
sýki. Það er eftirtektarvert,
að í kjördæmunum 7 utan Reykja-
víkar er Framsóknarflokkulrinn
stærsti floklturinn. Þar hefur
hann á bak við sig 36.56% kjósi-
enda í stað 36.1% í síðustu kosn-
ingum. Sjálfstæðisflokkurinn er
þar í 2. sæti með 33.53% í stað
34.76% áður.
Úrslitin í Suðurlandskjördæmi
gáfu ríkisstjórninni áframhald-
andi völd. í kosningunum 1963
var það Hannibal Valdimarsson,
sem skrifaði upp á valdavíxil Við-
reisnarinnar í Vestfjarðakjör-
dæmi. I þetta skipti var það Karl
Guðjónsson á Suðuriandi.
Það er vissulega ósigur fyrir
Framsóknarf lokkinn að missa ■
Helga Bergs út af þingi. Helgi erH
hinsvegar ekki a.f þeim málmi
gjör, sem dignar við andspyrn-
Framh. á 3. síðu.
Eftir
Að kosningum loknum hljótum við fra'mbjóðendur Fram-
sóknarflokksins í Austurlandskjördæmi að tjá þakkir öllum
þeim, er sýndu okkur traust mcð því að kjósa B-listann.
Listi okkar hlaut 53.7% gildra atkvæða í kjördæminu, og er
það hærri hlu.tfallstala en nokkur framboðsl;:sti hefur fengið
annars staðar á landinu. Þetta gat ekki orðið nerna með mjög
miklu starfi fyrir kosningar.
Mikill fjöldi kjósenda er jafnan fjarri heimilum sínum á
kjördegi og þarf því að kjósa utan kjörstaðar. Allstór er sá
hópur manna, ,sem að' vísu hefur einhverjar stjórnmálaskoð-
anir, en gerir sér e'kki ljóst hvað mikið getur oltið á einu og
sérhverju atkvæði. Til er og það, að erfitt er að komast á
kjörstað vegna staðhátta, eða af öðrum ástæðum. En megin-
tilgangur kosningavinnu okkar var að greiða fyrir því, að
allir þeir, er styðja vildu B-listann í Austurlandskjördæmi
fengju neitt atkvæðis síns.
Við vitum vel, að á þessu sviði var leyst af höndum gífur-
lega umfangsmikið starf alls staðar í kjördæminu, bæði af
hálfu þeirra, er unnu á kosningaskrifstofunni sem og allra
þeirra mörgu Framsóknarmanna og kvemna og annarra, sem
lögðu fram sinn skerf með ótrauðu áhugastarfi.
. ' :.íb
öllu þessu fólki færum við okkar beztu þakkir.
Til er sú hugsun, að á kjördegi ljúki þátttöku hins almenna
kjósenda í stjórnmálum, þar til er næst verður kjörið.
Þetta er mikill misskilningur. Órofið og náið samband við
fólkið er kjörnum þingmanni jafn mikilvægt og rótfestan
björkinni.
Þingmanna Austurlandskjördæmis bíða tvíþætt viðfangsefni, .
sem þó eru samrýmanleg á bezta máta:
Hið almenna þjóðmálastarf og sérstakur stuðningur og stöð-
og forusta í framfaramálum fjórðungsins.
Hvernig þeim vinnast störfin fer auðvitað öðrum þræði eft-
ir hæfni og manndómi hvers og eins. En snerting við fólkið-,
náin kynning á áhugamálum þess og viðfangsefnum og sú
hvatning er slík kynni veita, er þó sá aflvaki, sem oft ge.tur
ráðið úrslitum.
Um leið og við frambjóðendur Framsóknarflokksins á Áust-
urlandi þökkum traust og frábært starf stuðningsmanna fyrir
kosningar, þ,á viljum við láta í ljósi þá ósk okkar og von, að
á þessu kjörtímabili megi takast heilshugar samvinna um
málefni Austurlands með öllum þeim aðilum, sem þar eiga hlut
að máli.
Haliormsstað, 26. júní 1967.
ViUijálmur Hjálmarsson.