Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 1

Skólablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 1
Desember 1985 J- tbl./61. árg. Árangurs að Skytdu þessir menn vera haldnir Áunninni ofsahrœðslu? Aunnin ofsahræðsla í M.R. 1 kjölfar mikillar umræðu um kyn- sjúkdóma, sem hófst í tilefni árshátíð- ar Skólafélagsins, hefur rannsókn og greining kynsjúkdóma aukist gífur- lega. Nú telja sumir vísindamenn Náttúrufræðideildar að þeir hafi ein- angrað nýja veiru. Raunvísindastofnun Háskóla íslands hefur veiruna enn til rannsóknar og vill ekkert segja um hana, af ótta við að vekja tálvonir hjá þeim sem þegar hafa sýkst. Segjast þeir enn of stutt komnir í rannsóknum sínum, en hafa bent blaðamönnum á að snúa sér til Veirumarkað- arins, Aidstorgi. Þar hefur einnig verið fátt um svör og þeir bent á Happdrætti Háskóla ís- lands. Þar var bent á Hræðslubandalagið, en þeir á Tom Robinson. Af því tilefni sneri blaðið sér í hring. Náttúrufræðideildarmenn, sögðust kalla sjúkdóminn Áunna ofsahræðslu (skammstaf- aða Á.O.), en hans hefði einkum orðið vart meðal fjöllyndra karlmanna. Töldu þeir að sjutcdomur þessi gæti haft víðtæk þjóðfélagsleg áhrif og bentu á, að þess væri nú þegar farið að gæta í efnahagslífinu. Smokkasala hefði aukist um 69.000% og mikil aukning hefði verið í sölu á sérhönnuðum stútum, sem ætlaðir eru til þess að nota við blástursaðferðina, án þess að um eiginlega varasnertingu sé að ræða. Sögðu þeir að unglingar hefðu komist að því, að nota mætti búnað þennan til svokallaðrar „osculat- ionar“, eða munnvatsskipta. Samstarfsnefnd á vegum Rauða Krossins, Lögreglustjóra og Barnaverndarnefndar hefur að kröfu dóms- málaráðherra haft mál þetta til umfjöllunar, en hann telur þessa misnotkun stangast á við anda þann sem ríkir í áfengislöggjöfinni. Nú þegar munu tíu karlmenn liggja þungt haldnir af Á.O., en um eitthundrað hafa greinst með forstigseinkenni. Telja Náttúrufræðideild- armenn um það bil allan skólann vera smitbera og hafa óskað eftir því að starfsmenn Strætis- vagna Reykjavíkur sótthreinsi allan skólann og túnið fyrir framan hann. Þá hafa þeir hvatt til þess að styttan þar á túninu verði flutt, þannig að hún verði beint fyrir framan skólann, en þeir telja að hún sé sem sniðinn til þess „að rífa menn upp á . . “ óæðri endanum, þar sem að í myndrænu formi hennar felist ótvíræð við- vörun. Náttúrufræðideildarmenn sögðust að lokum vilja hvetja fólk til skírlífis, þar sem það reynd- ust fleiri vera Guðjón inn við beinið, en margur héldi. Leiðtogafundurinn: vænta Ásbjörn Olsen, fréttar. Skbl. í Washington: Mikil bjartsýni ríkir nú meðal ráða- manna í kjölfar vel heppnaðs leiðtoga- fundar forseta stórveldanna. Reagan forseti sagði skömmu eftir fundinn, að vel hefði farið á með þeim og að mjög gagnleg skoðanaskipti hefðu átt sér stað. Birgir Ármannsson tók í sama streng. Til þess að treysta enn vináttu- bönd þjóðanna, þá Reagan boð Birgis um að koma í opinbera heimsókn í kjallara Casae Novae á næsta ári. Blaðafulltrúi Birgis forseta sagði á fundi í gærkvöldi, að fundurinn hefði farið fram úr vonum bjartsýnustu manna. Kristján Hrafnsson, öryggis- málaráðgjafi tók undir þetta og sagði að sér hefði komið á óvart hversu vel koll- egi sinn, Robert McFarlane, hefði tekið ráðleggingum sínum. Sagði hann einnig að skilningur æðstu manna á sjónar- miðum hvors annars, stuðlaði meir að heimsfriði, en öll afvopnun. Er talið að með þessu hafi Kristján sneitt að samn- ingatilraunum VÍ. Blaðamaður Skóla- blaðsins átti örstutt viðtal við Birgi á flötinni fyrir framan Hvíta húsið í gær- morgun. Birgir og Reagan höfðu ný- Iokið morgunverði og skiptust á gaman- sögum, meðan þess var beðið að blaða- mannafundur hæfist, en þar gáfu þeir stutta sameiginlega yfirlýsingu. Birgir sagði að fundur þeirra Reagans hefði verið mjög ánægjulegur. Þeir væru sam- mála í nær öllum aðalatriðum, en þó hefði hann þurft að leiðrétta nokkrar skoðanir starfsbróður síns. Sagði hann að Reagan hefði tekið vel í þær tillögur og benti á að Reagan hefði, fyrir hönd Bandaríkjastjórnar, undirritað kaup- samning á 26.350 eintökum af ensk-ís- lenskum orðabókum. Taldi Birgir þetta bera vott um hlýhug Reagans í garð ís- lendinga. Birgir sagði að þeir forsetarnir hefðu orðið sammála um að beita MR viðskiptaþvingunum, til þess að knýja á um bragarbót í mannúðarmálum. Hyggjast stjórnir Bandaríkjanna og Framtíðarinnar standa saman að þeim og mun rektor ekki fá að kaupa neinar orðabækur, fyrr en nemendum verður hlíft við járnspælingum hans. í lok yfir- lýsingar leiðtoganna kom fram að Reag- an hyggst koma í kjallara Casae Novae, á næsta ári, í boði Birgis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.