Skólablaðið - 01.12.1985, Qupperneq 1
Desember 1985
J- tbl./61. árg.
Árangurs að
Skytdu þessir menn vera haldnir Áunninni ofsahrœðslu?
Aunnin ofsahræðsla í M.R.
1 kjölfar mikillar umræðu um kyn-
sjúkdóma, sem hófst í tilefni árshátíð-
ar Skólafélagsins, hefur rannsókn og
greining kynsjúkdóma aukist gífur-
lega. Nú telja sumir vísindamenn
Náttúrufræðideildar að þeir hafi ein-
angrað nýja veiru.
Raunvísindastofnun Háskóla íslands hefur
veiruna enn til rannsóknar og vill ekkert segja
um hana, af ótta við að vekja tálvonir hjá þeim
sem þegar hafa sýkst. Segjast þeir enn of stutt
komnir í rannsóknum sínum, en hafa bent
blaðamönnum á að snúa sér til Veirumarkað-
arins, Aidstorgi. Þar hefur einnig verið fátt um
svör og þeir bent á Happdrætti Háskóla ís-
lands. Þar var bent á Hræðslubandalagið, en
þeir á Tom Robinson. Af því tilefni sneri blaðið
sér í hring.
Náttúrufræðideildarmenn, sögðust kalla
sjúkdóminn Áunna ofsahræðslu (skammstaf-
aða Á.O.), en hans hefði einkum orðið vart
meðal fjöllyndra karlmanna. Töldu þeir að
sjutcdomur þessi gæti haft víðtæk þjóðfélagsleg
áhrif og bentu á, að þess væri nú þegar farið að
gæta í efnahagslífinu. Smokkasala hefði aukist
um 69.000% og mikil aukning hefði verið í sölu
á sérhönnuðum stútum, sem ætlaðir eru til þess
að nota við blástursaðferðina, án þess að um
eiginlega varasnertingu sé að ræða. Sögðu þeir
að unglingar hefðu komist að því, að nota
mætti búnað þennan til svokallaðrar „osculat-
ionar“, eða munnvatsskipta. Samstarfsnefnd á
vegum Rauða Krossins, Lögreglustjóra og
Barnaverndarnefndar hefur að kröfu dóms-
málaráðherra haft mál þetta til umfjöllunar, en
hann telur þessa misnotkun stangast á við anda
þann sem ríkir í áfengislöggjöfinni.
Nú þegar munu tíu karlmenn liggja þungt
haldnir af Á.O., en um eitthundrað hafa greinst
með forstigseinkenni. Telja Náttúrufræðideild-
armenn um það bil allan skólann vera smitbera
og hafa óskað eftir því að starfsmenn Strætis-
vagna Reykjavíkur sótthreinsi allan skólann og
túnið fyrir framan hann. Þá hafa þeir hvatt til
þess að styttan þar á túninu verði flutt, þannig
að hún verði beint fyrir framan skólann, en þeir
telja að hún sé sem sniðinn til þess „að rífa
menn upp á . . “ óæðri endanum, þar sem að í
myndrænu formi hennar felist ótvíræð við-
vörun.
Náttúrufræðideildarmenn sögðust að lokum
vilja hvetja fólk til skírlífis, þar sem það reynd-
ust fleiri vera Guðjón inn við beinið, en margur
héldi.
Leiðtogafundurinn:
vænta
Ásbjörn Olsen, fréttar. Skbl. í Washington:
Mikil bjartsýni ríkir nú meðal ráða-
manna í kjölfar vel heppnaðs leiðtoga-
fundar forseta stórveldanna. Reagan
forseti sagði skömmu eftir fundinn, að
vel hefði farið á með þeim og að mjög
gagnleg skoðanaskipti hefðu átt sér
stað. Birgir Ármannsson tók í sama
streng. Til þess að treysta enn vináttu-
bönd þjóðanna, þá Reagan boð Birgis
um að koma í opinbera heimsókn í
kjallara Casae Novae á næsta ári.
Blaðafulltrúi Birgis forseta sagði á
fundi í gærkvöldi, að fundurinn hefði
farið fram úr vonum bjartsýnustu
manna. Kristján Hrafnsson, öryggis-
málaráðgjafi tók undir þetta og sagði að
sér hefði komið á óvart hversu vel koll-
egi sinn, Robert McFarlane, hefði tekið
ráðleggingum sínum. Sagði hann einnig
að skilningur æðstu manna á sjónar-
miðum hvors annars, stuðlaði meir að
heimsfriði, en öll afvopnun. Er talið að
með þessu hafi Kristján sneitt að samn-
ingatilraunum VÍ. Blaðamaður Skóla-
blaðsins átti örstutt viðtal við Birgi á
flötinni fyrir framan Hvíta húsið í gær-
morgun. Birgir og Reagan höfðu ný-
Iokið morgunverði og skiptust á gaman-
sögum, meðan þess var beðið að blaða-
mannafundur hæfist, en þar gáfu þeir
stutta sameiginlega yfirlýsingu. Birgir
sagði að fundur þeirra Reagans hefði
verið mjög ánægjulegur. Þeir væru sam-
mála í nær öllum aðalatriðum, en þó
hefði hann þurft að leiðrétta nokkrar
skoðanir starfsbróður síns. Sagði hann
að Reagan hefði tekið vel í þær tillögur
og benti á að Reagan hefði, fyrir hönd
Bandaríkjastjórnar, undirritað kaup-
samning á 26.350 eintökum af ensk-ís-
lenskum orðabókum. Taldi Birgir þetta
bera vott um hlýhug Reagans í garð ís-
lendinga. Birgir sagði að þeir forsetarnir
hefðu orðið sammála um að beita MR
viðskiptaþvingunum, til þess að knýja á
um bragarbót í mannúðarmálum.
Hyggjast stjórnir Bandaríkjanna og
Framtíðarinnar standa saman að þeim
og mun rektor ekki fá að kaupa neinar
orðabækur, fyrr en nemendum verður
hlíft við járnspælingum hans. í lok yfir-
lýsingar leiðtoganna kom fram að Reag-
an hyggst koma í kjallara Casae Novae,
á næsta ári, í boði Birgis.