Skólablaðið - 01.12.1985, Qupperneq 4
ANNALL
SKÓL AÁRSIN S 1985
þeir heppnast nokkuð vel, en fundar-
sókn ekki verið til að stæra sig af. Fram-
tíðin er annars í óðaönn að undirbúa
keppni MORFÍS og er stefnt í Háskóla-
bíó og ekkert minna en sigur.
Pressuball á vegum ritnefndar var
haldið í Gyllta sal Hótel Borgar. Seldust
miðar fljótt upp, og komust að færri en
vildu. Heppnaðist ballið vel, utan loft-
Frá ræðukeppni M.R. og Versló. Fyrirliði ræðuliðs M.R. tekur við bikarnum.
í M.R. er nær enginn grundvöllur fyrir
þróttmiklu félagslífi. Stafar það af því að
„kaffidrykkjustofa“ M.Rringa, sem
samanstendur af litlu rými og bergmáli
Alpafjalla, er „salur“ fyrir fundi og aðr-
ar uppákomur á vegum félaga innan
skólans Stundum fá félög þó lánaðar
stofur, og í fyrra var hin myndskreytti,
gamli danssalur fenginn að láni fyrir
Nóbelskáldið, sem var boðið af bók-
menntafélagi Listafélagsins. Aðrir skól-
ar hafa fjór-, ef ekki fimmfalt meiri og
betri aðstöðu fyrir félagsstarfsemi sína.
Má þar nefna M.H., Fjölbraut í Breið-
holti o.s.frv. Ekki hjálpar kennslufyrir-
komulagið í skólanum til. Ef sterkt er til
orða tekið, mætti halda, að allt væri gert
til að hindra félagslíf og kynningu ann-
arra hluta, en beyging orða og þurrir
söguhöfundar teknir fram yfir allt.
Það er því í raun undravert, hve öflugt
félagslíf er í skólanum. Félög af öllum
tegundum ríða á vaðið og berjast gegn
mótlætinu. Skólafélagið og Framtíðin
eru þau félög, sem mest ber á í félagslífi
skólans. Út frá þeim eru svo aftur fleiri
félög: Listafélag Skólafélagsins (bók-
menntafélag, tónlistarfélag, kvikmynda-
félag og myndlistarfélag), Vísindafélag
Framtíðarinnar, íþróttaráð skólafélags-
ins, ljósmyndaklúbbur og Herranótt,
sem er leikfélag skólans. Ekki má gleyma
Skóflumannafélaginu, sem í ár endur-
tekur barmmerkjabissniss sinn frá því í
fyrra. En sökum „hreinsana" innan fé-
lagsins er ekki hægt að spá neinu um
framhaldið.
Ræðunámskeið á vegum Framtíðar-
innar var haldið ? í sept., og eins og
fyrri ár voru það mestmegnis þriðju-
bekkingar, sem tóku þátt í námskeiðinu,
sem er gagnlegt og nauðsynlegt hverjum
manni.
17. sept. var keppnin Orator minor
(ræðumaður skólans) haldin, og hlaut
þar Hlynur Grimsson titilinn Orator
minor.
19. sept. var einn æsilegasti viðburður
skólaársins, en þá eru þriðjubekkingar
boðnir velkomnir með tolleringu sem
sjöttubekkingar stjórna. Síðan voru bus-
arnir leiddir inn í rétt og á leiðinni þang-
að klínt á þá ýmsum litum og fleira. Sök-
um eggja, ilmvatna, sósulita og fleiri eft-
irsitjandi hluta vatt rektor sér inn í rétt-
ina og stöðvaði athöfnina. Segja kunn-
ugir, að fjórðubekkingar eigi sök á
þessu. Þetta einsdæmi í sögu mennta-
skólans setti leiðinlegan svip á tollering-
una. Um kvöldið var svo haldin dansæf-
ing í Þórscafé. Heppnaðist hún stórvel,
og troðfylltist húsið snemma um kvöld-
ið. Fjárhagur Herranætur, sem sá um
ballið, er góður þessa stundina, og ætti
sýning félagsins að ganga upp fjárhags-
lega.
Skólafundur var haldinn 26. okt., og
vakti þar einna mesta athygli tillaga
þeirra Birgis Ármannssonar, forseta
Framtíðarinnar, og Ólafs Stephensens.
Tillagan felur í sér, að þriðjubekkingar
fái fullan atkvæðisrétt í inspectorskosn-
ingum.
Bókmenntafélag og tónlistarfélag
Listafélagsins hafa verið öflug. Var bók-
menntakvöld 9. okt., og lásu þar Sjón,
Þór Eldon og Jóhamar upp úr verkum
sínum með nýrri upplestrartækni. Ágætt
kvöld, en léleg aðsókn. Bubbi Mortens
hélt tónleika í Cösu á vegum tónlistarfé-
lagsins. Heppnuðust þeir mjög vel, og
varð húsfyllir. Myndlistardeild er að fara
af stað, m.a. með myndlistarnámskeiði.
Kvikmyndadeild er enn í „startholun-
um“, og skýrist starf hennar seinni hluta
vetrar.
Hin árlega ræðukeppni milli M.R. og
Verzló fór fram í vélritunarmusteri hinna
síðarnefndu. Tefldi Framtíðin þar fram
nýju ræðuliði, utan Hlyns, og að sjálf-
sögðu sigraði M.R. í annars jafnri og tví-
sýnni keppni. Tveir málfundir hafa verið
haldnir, það sem af er vetri, annar um
ágæti og skaðsemi kannabisefna. Hafa
ræstingin, sem staðurinn býður upp á, er
fyrir neðan allar hellur, sem sé engin.
Náði ritnefnd mörgum góðum myndum,
sem hugsanlega eru ekki birtingarhæfar
í blaði þessu, en verða birtar síðar.
Haustþing Visindafélagsins var haldið
23. okt., og 30. okt. hélt Ágúst Valfells
fyrirlestur um kjarnorku. Kom þar
margt athyglisvert fram.
Knattspyrnumót íþróttaráðs hófst
snemma í vetrarbyrjun og endaði með
sigri 5. Y og S. Kom sigurinn ýmsum á
óvart, ekki síst sjöttubekkingum, sem
voru fullvissir um auðveldan sigur.
í sumar og vetur hafa verið farnar
margar ferðir í Selið, og er viðgerð langt
á veg komin. Eiga Gunnar Inspector og
selsnefnd þakkir skildar fyrir glæsilega
framgöngu í að koma Selinu í stand aft-
ur, og þess skammt að bíða, að ferðir
hefjist þangað.
Þegar þetta er ritað, er árshátíð Skóla-
félagsins fram undan með öllu tilheyr-
andi: morgunpartýum, skemmtunum,
borðhaldi, Broadway . . . crash.
Stendur til að fá fulltrúa frá sendiráð-
um Bandaríkjanna, Ráðstjórnarríkj-
anna og Norðurlandanna til að kynna
háskóla landa sinna, kostnað og fleira í
því sambandi.
í lokin er vert að hvetja alla til virkni
í félagslífinu. Gleymið þó aldrei speki
snillingsins í heiðinni: Svo verðið þið
ekki með neinn helv. hávaða!
Ari G. Bragason.
4