Skólablaðið - 01.12.1985, Page 14
Róður er góður, í hvers kyns mynd,
enda hafa menn stundað róður frá alda
öðli, allt frá því að bátur og ár voru upp
fundin. Kostir róðrar eru margir. Hann
skerpir 'hugsun, bætir líkamlegt sem
andlegt atgervi og er síðast en ekki síst
ómissandi í bátsferðum.
Síðari menn hafa svo skrumskælt og
afbakað hinn eina sanna róður með alls
kyns afbrigðum, svo sem áróðri og und-
irróðri. En þess kyns róður er alls ekki til
umræðu hér, heldur skal uppfræða kom-
andi ræðara um þennan konung íþrótt-
anna.
1. lexía.
Á flot.
Fyrst verða menn að kynna sér verk-
færin vel og vandlega. Ágætt er að hand-
leika árma um stund til að fá reglulega
góða tilfinningu fyrir henni. Þá er gott
að sitja um stund í bátnum og stjúka
honum létt.
Nú má fara að setja bátinn á flot, þ.e.
setja bátinn út á vatnið eða sjóinn, eftir
því sem við á. Gott er að vera í vaðstígvél-
um til að vökna ekki í fæturna, þegar
maður fer í bátinn, ef aðstæður krefjast
þess, að stígið sé í vatnið.
2. lexía.
Listin að róa.
HÉR MFi SJR DÆMIGERÐR RR.
Þegar komið er á flot, má setja árarn-
ar í keipana, sem sýndir eru á 1. mynd.
Mikilvægt er að snúa þeim rétt, ef róa á
að einhverju gagni. Nú má dýfa þeim
enda, sem ekki er í haldið, ofan í vatnið.
(Sjá mynd hér að neðan.)
Svo er togað jafnt í báðar árar. Ef allt
er með felldu, færist báturinn áfram. Ef
svo er ekki, má athuga, hvort hann sé
nokkuð bundinn við einhvern fastan
punkt. Ef svo er ekki, ætti ræðarinn að
lesa aftur yfir þessa grein.
Má nú sjá, að róður er í rauninni ákaf-
lega einföld íþrótt, ef menn temja sér rétt
handtök strax í upphafi.
Mikilfengleiki róðrar felst einmitt í
einfaldleika hans.
14
Le Président
Bjarni Ragnarsson, 6.X.