Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 21

Skólablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 21
við nokkrar stelpur úr þorpinu, en Veru sé ég ekki meir það sem eftir er ballsins. Þegar ballið er búið, fer rútan aftur heim í plássið. Það er frekar dauft hljóð í lið- inu, annaðhvort eru menn of þreyttir eða of ölvaðir til að tala. Jóa hefur greinilega mistekist kvennafarið. Hann situr við gluggann, hallar höfðinu upp að rúð- unni og dottar. Rútan staðnæmist hjá sjoppunni og þar fer liðið út. Ég labba í áttina að frystihúsinu. Það er logn og vornóttin vefst eins og hula yfir frysti- húsið og höfnina. í frystihússdyrunum mæti ég Veru. Hún er töluvert drukkin og rauðeygð, eins og hún hafi grátið. — Sæl, segi ég um leið og ég opna dyrnar. — Sæll, svarar hún og lítur niður fyrir sig og labbar upp stigann. Þegar hún er komin hálfa leið, snýr hún sér við og lítur á mig og segir: Af hverju horfirðu svona á mig? — Ég er ekki að horfa á þig, segi ég og veit ekki hvaðan á mig stendur veðrið. — Jú, þú ert víst að því, heldur hún áfram. Ég þoli ekki þegar fólk horfir á mig með vorkunnarsvip. Hún herpir saman varirnar. Allt í einu gengur hún til mín og segir: Hvers virði heldurðu að þetta allt saman sé mér? Dag eftir dag hjakka ég í sama farinu, — verbúð eftir verbúð, fyllirí og vinna. Svo verður maður hrifin af strák og heldur að hann sé eitthvað sérstakur, en kemst svo að því að hann er sama pakkið og allir aðrir. Svona fólk eins og ég er alltaf eitt. Stundum finnst mér ég vera ormur sem sé þræddur upp á öngul og iði þar í andarslitrunum. Skyndilega er eins og hún átti sig, roðnar og lítur á mig. —Æ, annars, vertu ekki að hlusta á ruglið í mér, segir hún og brosir ölvuðu brosi . . . Bjóddu mér frekar inn til þín. Við göngum upp stigann og eftir rökkvuðum ganginum. Þegar við kom- um að herbergisdyrunum mínum, snýr Vera sér að mér og segir: Veistu að mér finnst þú vera dálítið sætur strákur. Síðan hlær hún skært og snöggt og rykkir til höfðinu. Ég finn að hún hefur lagt hendurnar um háls mér og hún horf- ir í augu mér og það leikur ákaft bros um varir hennar. Augu hennar tindra og allt í einu tek ég eftir því hvað hún er ómót- stæðilega falleg með þessi brúnu flökt- andi augu. Áður en ég veit af hefur hún þrýst mér að sér og við kyssumst. Síðan sleppir hún mér og ég opna herbergishurðina og við förum inn. Við setjumst bæði á rumið og kveikjum okkur í sígarettum. Hún legg- ur bakið upp við vegginn og tekur stóran smók. — Ásgeir er fífl. Djöfull skal ég hefna mín á honum. Hann skal ekki voga sér að koma svona fram við mig. — Hvað gerði hann? spyr ég. Hún hlær, lítur á mig. — Þú mundir ekki skilja það, þú ert svo vitlaus. Svo hlær hún aftur, leggur hendurnar um háls mér og segir: Nei, nei, ég er bara að stríða þér. Á ég að segja þér leyndó? Hún horfir djúpt inn í augu mín með þessum brúnu, flöktandi augum sem sjá allt og ekkert. — Veistu að ég er dálítið skotin í þér. Þú er nefnilega dálítið sætur strákur. Svo blikkar hún öðru auganu ertnis- lega, rís á fætur, tekur jakkann sinn og opnar dyrnar. Áður en hún fer, hallar hún undir flatt og segir: Ætlarðu ekki að kyssa mig góða nótt? Ég rís á fætur, geng til hennar, tek utan um hana og við kyssumst. Loks ýtir hún mér frá sér og er horfin út um dyrnar í myrkrið á ganginum. Á eftir get ég ekki sofnað. Ég ligg uppi í rúminu og hugsa um Veru og atvikið áðan. Stuttu seinna heyri ég að það eru barin þrjú högg á dyrnar. Ég fer upp úr rúm- inu, kveiki ljós og opna. Frammi á gang- inum stendur Vera. Hún er klædd í þunn- an, hvítan náttkjól. Hún gengur inn í herbergið og ég loka hurðinni. Án þess að mæla orð frá munni þrýstir hún sér upp að mér og þannig stöndum við um stund. — Mig langar til að sofa hjá þér, segir hún og horfir djúpt inn í augu mín. Hún fer úr náttkjólnum, slekkur ljós- ið og leggst í rúmið. Hún er grönn og vel vaxin og brjóstin eru fíngerð og stinn. Að elska er eins og að kasta sér út í á og láta berast með straumnum að bakka eða ókunnri strönd. Maður sér sjalfan sig beygja sig yfir líkama, kyssa varir og snerta hörund. Stundu seinna liggur hún í faðmi mín- um og sefur. Klukkan 7 um morguninn vakna ég við að hún er að brölta fram úr rúminu. Ég læst sofa og finn svefndrukkna kossa næturinnar ennþá á vörum mínum. Hún klæðir sig hljóðlega en í flýti. Fyrir utan gluggann er nýr dagur að rísa úr hafinu og geislar morgunsólarinnar koma inn um rúðuna og skríða eftir skítugu gólf- teppinu. Hún opnar herbergisdyrnar og ég horfi á hana fara. II Eitt augnablik, ein athöfn, ein nótt, og síðan er lífið söknuður og þrá. Vera hefur breyst. Hún er þöglari en áður og fer einförum. Hún forðast að vera samvistum við mig, og ef við mæt- umst fyrir tilviljun, fer hún undan í flæmingi. Einn daginn, þegar rigndi, sá ég hana sitja uppi í gluggakistunni á herberginu sínu og stara út í regnið. Hún hallaði höfðinu upp að rúðunni, reykti og lét höfuðið hanga. Ég er áfram látinn vinna í saltfiskin- um. Húsið, þar sem hann er verkaður, er gamall timburhjallur og er saltfiskurinn unninn á neðri hæðinni, en á bjálkalofti fyrir ofan eru kaðlar og ýmislegt drasl geymt. Upp á loftið liggur mjór tréstigi og stundum stelast yngri krakkarnir þangað, og þegar þeir hlaupa eftir timb- urgólfinu, heyrast dynkir og brak. Þegar þessi skruðningur þagnar, má yfirleitt heyra haltrandi fótatak og gamall, þybb- inn karl, rauður í framan og með kart- öflunef, birtist. Það er Gísli. Hann haltrar upp stig- ann, og er hann kemur upp á loftið, byrj- ar hann að kalla á krakkana og reynir að reka þá niður. En þeir bara hlæja og fela sig í köðlunum. Það var ekki fyrr en ég hafði unnið í saltfiskinum nokkuð lengi, að ég komst að því hvers vegna Gísla var svona illa við að krakkarnir væru að leika sér uppi á loftinu. Fyrir mörgum árum hafði stúlka, sem vann hér í saltfiskinum, hengt sig uppi á loftinu og menn sögðu að Gísli hefði ver- ið góður vinur hennar og jafnvel verið ástfanginn af henni. Um ástæðuna fyrir því að hún hengdi sig, vissi enginn, enda voru liðin rúm 30 ár frá því að þessi at- burður gerðist. En menn töldu að hún hefði verið með barni. Dagarnir líða hægt og það er oft rign- ing. Kærasta Finns er nýkomin frá Reykjavík og á kvöldin heyrist frá her- bergi þeirra hlátur og tónlist. Ég hugsa mikið um Veru og atvikið eftir ballið. Hún er hætt að koma í heim- sókn. En ég sé hana oft í bílnum með Ásgeiri. Eitt fimmtudagskvöld herði ég upp hugann, banka á herbergisdyrnar henn- ar og bið hana að koma aðeins fram og tala við mig. Hún kemur fram í dyragættina. Hún er greinilega nýkomin úr baði, því að hár hennar er blautt og hún horfir á mig spurulum augum, eins og hún vilji að ég ljúki erindinu sem fyrst. — Eigum við að fá okkur smá-göngu- túr, ég þarf að tala við þig, segi ég hrað- mæltur. — Er það eitthvað sérstakt? spyr hún. — Já, ég þarf að tala aðeins við þig, segi ég. Hún lítur á úrið sitt, hnyklar auga- brúnir og nær í jakkann sinn. Við löbb- um útúr frystihúsinu. Við göngum 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.