Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 26

Skólablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 26
Áriö 1984—85 var án efa eftirminni- legasta starfsár Framtíðarinnar. Kemur þar margt til: glæsilegir sigrar í ræöu- keppnum á Stór-Reykjavíkursvæðinu og út á landsbyggðinni, sem síðar leiddu til eftirminnilegs sigurs í fullu Há- skólabíói, og bakslagið: ótrúleg fjár- málaóreiða og misnotkun á fé félags- ins. Kosinn var stjórn og forseti vorið 1984. Var Úlfur Hróbjartsson kosinn for- seti, en Gunnar Gylfason gjaldkeri. í stjórn hlutu kosningu: Björn Sveinn Björnsson, ritari, Þorlákur Jónsson og Halla Jónsdóttir. Keppnin Orator minor var haldin, og hlaut þar Kristján Hrafnsson titilinn Orator minor. í hinu sigursæla ræðuliði voru auk Kristjáns Hlynur Níels Gríms- son og Jóhann F. Haraldsson og Agnar Hansson var liðsstjóri. Hin hefðbundna starfsemi Framtíð- arinnar var ósköp svipuð og síðastliðin 100 ár, en segja verður, að athyglin beindist umfram allt að ræðuliðinu, sem lagði hvern andstæðinginn áfætur öðrum. Kann þetta að hafa haft einhver áhrif á hve seint vitnaðist um fjármálin og lengt gálgafrestinn, því að ekki var gengið í málið fyrr en í lok skólaárs. Björn Sveinn, Þorlákur og Halla, sem stóðu ekki að fjárdrættinum, höfðu þó gert tilraunir til að fá að vita, hvað væri á seyði, en ekki fengið fullnægjandi upplýsingar. Fyrrnefndir stjórnarmenn höfðu þó augljósan rétt til að vita stöðu félagsins, og ef framgangur þeirra hefði verið meiri, hefði bakslagið orðið minna. Tómas Guðbjartsson hafði þegar í nóvember gert athugasemd við fjármál félagsins, en fékk þau svör, að um af- skiptasemi væri að ræða og staða fé- lagsins væri í lagi. Tómas Guðbjartsson: Þetta var leið- indamál. Eftir uppljóstrun málsins reyndi ég að hindra með öllum hugsan- legum leiðum, að mál, þessu líkt, gæti hugsanlega komið upp aftur.“ Árshátíð Framtíðarinnar, sem er ein veigamesta hátíð ársins, var haldin með pompi og pragt í veitingahúsinu Þórscafé. Seldust ótölusettir miðar vel, og var þessi hátíð ógleymanleg að mörgu leyti, m.a. því, að innkoma fyrir selda miða mun eflaust ávallt verða mikið spurningarmerki. Mörgu var slegið fram, en ekkert verður í raun staðhæft um þetta leiðindaatvik. 12. mars 1985. Casa Nova. Tómas in- spector krefst að fá bókhaldsgögn Framtíðarinnar. Yfirheyrslur hefjast. 67 þúsunda fjármálaT,flopp“ liggur fyrir. Allir undir grun. Tómas inspector skip- ar rannsóknarnefnd, sem sitja í auk hans, Anna Gunnarsdóttir, Friðbert Friðbertsson, Gunnar Auðólfsson og Jón G. Þormar. Athyglisvert er, að Gylfi Magnúson scriba, sem vildi brenna sakborninga á báli, og Árni Hauksson quaestor áttu ekki sæti í nefndinni. Árni Hauksson: Hneykslið frá því í fyrra er útkljáð, en hættan er enn, verði lög- um Skólafélagsins og Framtíðarinnar ekki breytt. Nótur lágu fyrir öllum 67 þúsundun- um. 8.000 Hrafninn (22 krúsir), 10.000 leigubílar, herraföt og skór, Guðjón, Sómalía (M.H.), Bristol (vindlar) og fleiri nautnaseggjafyrirtæki voru með í ,,floppinu“. í ofangreindri rannsókn mátti greina örlítinn vott um vinagjöf, en framgangur Tómasar var til sóma og at- hugasemdarlaus. Fjármálamisferli viðgengst í mörgum skólum og félögum, og er þetta ekki neitt einsdæmi, en þó keyrði hér um þverbak í eyðslu. Ekki má heldur gleyma því, að þátttakendur voru marg- ir og nutu örlætis félagsins. Alls voru 13 embættismenn reknir þennan erfiða vetur í gamla latínuskól- anum. Ari Bragason. Framtíðarhneykslið Ég hélt því fram í kosningabaráttunni í fyrra, að lög Skólafélagsins væru mein- gölluð, og stend ennþá fast á þeirri skoð- un minni. Á þetta ekki síður við um lög Framtíðarinnar. Tökum sem dæmi lög Skólafélagsins um kakósöluna. í þeim stendur ekki einn stafur um það, hvert hagnaður af rekstrinum eigi að renna eða hvort hann eigi í rauninni að vera nokkur. Þetta litla dæmi er lýsandi bæði fyrir lög Skólafélagsins og Framtíðar- innar. Slík óreiða í fjármálastjórn hlýtur að leiða til misferlis, og eru löggiltir end- urskoðendur Skólafélagsins mér sam- mála um það. Slíkt kom einmitt á daginn í fyrra, er óvandaðir menn völdust til embætta, bæði innan Skólafélagsins og Framtíðarinnar. Hins vegar vorum við svo heppin að hafa þá Tómas Guðbjarts- son inspector, sem tók á málinu af mikilli röggsemi. Hneykslið frá því í fyrra er út- kljáð, en óreiðan í lögunum stendur eftir sem áður. í ár höfum við aftur mjög hæfan inspector, Gunnar Auðólfson, og með honum hæfa samstarfsmenn, en hætta er samt sem áður alltaf á ferðum. Óvandaðir menn munu aftur veljast til embætta, og þá er voðinn vís, því að þá er allsendis óvíst, að í embætti verði ann- ar eins inspector og Tómas Guðbjarts- son. 29.10.1985 Árni Hauksson. 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.