Skólablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 27
Þaö er býsna langt síðan viö
hittumst síöast. Raunar finnst mér
löngu kominn tími til, aö viö förum
aö hittast einhvern tímann á næst-
unni. Ég skil bókstaflega ekki,
hvernig stendur á því, aö viö höfum
ekki hitzt oftar. Er þaö vegna þess,
aö ég hef setið hérna í tukthúsinu?
Kærir þú þig ekki um aö hitta tukt-
húslim? Er áralöng vinátta okkar
þér einskis verö? Ja, ég bara spyr.
Þetta er nú líka hálft í hvoru þér aö
kenna. Þaö varst þú, sem bauðst
méríþessaveizlu. Þú getursjálfum
þér um kennt, ef þú hefur oröiö fyrir
einhvers konar óþægindum af
mínum völdum. ekki man ég eftir aö
hafa gert neitt vanhugsaö þarna
um kvöldið. Málin bara þróuðust
svona. Ég man aö vísu ekki alveg,
hvaö mágur þinn sagöi viö mig, en
engu aö síður er ég þess fullviss, aö
ég heföi ekki barið hann af slíkri
kostgæfni að ástæðulausu. Kjálka-
brot bróður þins og brotnar tennur
eiga sér líka ofureinfalda skýringu.
Maðurinn kallaöi mig fant! Ég skil
hreinlega ekki, hvers vegna þú
varst að hringja á lögregluna. Ég
barði nú ekki fastar en þaö í hann
frænda þinn, aö hann stóö ekki
einu sinni upp úr hjólastólnum til að
taka á móti! Já, vel á minnzt. Hvaö
er þetta „spastísk lömun“? Þaö var
sannarlega slæmt, aö hurðirnar
skyldu allar vera lokaöar. Ég er ein-
hvern veginn ekki í skapi til aö fást
viö lokaðar hurðir meö jafnaðar-
geöi. Ég lofa því aö borga þér þær
og gluggana, sem brotnuðu strax
og ég er búinn aö borga viðgerðina
á þessum bílgarmi, sem var aö
þvælast þarna fyrir mér, og svo
vitanlega sektina fyrir aö aka undir
áhrifum áfengis. Kannski get ég svo
Ég skil hrcinlega ekki hvers vegna þú varst að
hringja á lögregluna.
hjálpaö þér aö kaupa nýjan bíl
seinna meir.
Ég losna út eftir hálfan mánuö.
Mamma sagöi mér, aö systir þin
ætlaði einmitt aö fá aö halda brúö-
kaupsveizluna sína heima hjá þér
þá um kveldið.
Sjáumst!
Þinn einlægur vinur.
Skófli.
ÍSLENSKT
ALÞJÓÐAFYRIRTÆKI
LAUGAVEGI 10
SÍMI 27788. JV/
27