Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1985, Síða 35

Skólablaðið - 01.12.1985, Síða 35
skyggja tekur Það er laugardagskvöld og klukkan langt gengin í tólf. Ilmur vorsins leikur um götur gamla miðbæjarins, ilmur sem kemur fögrum minningum frá æskuár- unum til að skjótast upp í hugann. Straumur fólks liggur inn um dyr á ný- uppgerðu húsi við Fischersund. Hávær hlátrasköll, sem óma út á götuna, geta gefið til kynna að innan veggja hússins sé ein af þessum svo kölluðu „bjórkrám" sem upp á síðkastið hafa sprotiið upp eins og gorkúlur víðs vegar um borgina. Eg geng inn og reykmettað loftið ræðst á augun með þeim afleiðingum að tár byrja að renna niður kinnarnar. Þegar upp á aðra hæð er komið fæ ég mér sæti við barinn^ Svona rétt til að ákveða hvað kaupa sku;li renni ég augunum yfir sal- inn. Þau staðnæmast í einu horninu á snyrtilega klæddum manni. Hann er lík- lega ekki eldri en fimmtíu ára en gæti eins verið fertugur. Þarna situr hann einn við ferkantað borð í liki óhamingjunnar sjálfrar. Um leið og ég greini rödd úr há- tölurunum syngja „Hvað sem ég gerði það var aldrei nógu gott“ sé ég hann stara ofan í glas sitt kannski í von um að sjá til botns. Skyndilega lyftir hann glas- inu og tekur síðasta sopann. I stað þess að snerta botninn með löngutöng stend- ur hann upp og hrópar yfir salinn: „Þjónn, eina kollu!“ Þar sem ég hef alltaf hrifist af slíkum mönnum sem e.t.v. hafa átt allt en tapað því og yfirbuga sorgirnar í félagsskap Bakkusar, ákveð ég að kaupa mér í ann- að glas og tylla mér hjá honum. Hann lít- ur snöggt upp og í augunum má sjá von- arglampa sem slokknar um leið og hann sér mig. Hann grúfir andlitið ofan í glasið á ný. Ég spyr í hálfgerðum afsök- unartón: „Er ekki í lagi að ég sitji hérna hjá þér?“ Svarið kemur bæði seint og líf- laust: „Jú, gjörðu svo vel.“ í huga mínum verður þögnin brátt óbærileg. í einhvers konar örvæntingu gríp ég til sígarettupakkans og býð glasinu í einum teyg og drep í sígarett- unni í öskubakkanum, virði fyrir mér reykinn sem fagnandi teygir sig upp í loftið. Gamli maðurinn við hlið mér horfir hugsandi á og mælir loks: „Dauð- inn er eina von okkar um frelsi“. Við verðum samferða út á dimma og regnvota götuna. Að skilnaði segir hann: „Þakka þér fyrir allt og mundu að það er sama hvað þú gerir, endirinn verður allt- af sá sami“. Að þessum orðum mæltum hrasar hann og fellur á götuna, staulast með erfiðismunum á fætur. Ég horfi á hann ganga burt. Alvarlegur í bragði hugsa ég. Já, ég bara hugsa. Um hvað, það skiptir kannski ekki máli en við vit- um öll að sólin rís næsta morgun. Nýr dagur hefst með morgni, en endar með kveldi. Og ég kvað: Gleði I Hús á ókunnum stað. Myndir á veggjum. Ógróin sár. Átök þess rétta og ranga. Opnar dyr þögnin hvíslar „þessa leið beint af augum“. ífjarlœgðinni er framtíðin kemur nær og nœr. Leitaði ákaft. Tíminn rann út í nóttina. Sátum saman í rökkrinu. Horfðum í eilífðina. Hvíslaðir í eyra mitt. „Ég er ekki til“. Fegurðin var tómið í huganum sem ég faldi í myrkrinu með tárinu og blóðinu. Við þornuðum upp í dögun. honum. Álika silalega og áður svarar hann: „Nei, þakka þér fyrir, vinur, ég reyki ekki.“ Enn á ný verður þögn. Eftir stutta stund áræði ég að kveikja mér í einni. Ég sit afslappaður í stólnum, sýg reykinn úr sígarettunni og skoða þennan álúta mann, blæs svo að lokum reyknum frá mér og undirbý næstu spurningu. Það reynist óþarfi því að skyndilega lítur hann upp, horfir beint í augu mér og segir: „Ef þú, ungi maður, lifir þá hlýt- urðu að finna og ef þú finnur þá hlýt- urðu að þjást. “ Án þess raunverulega að skilja hvað hann á við samþykki ég. Þá heldur hann áfram: „Á meðan þú lifir ertu ófrjáls. “ Nú kinka ég þegjandi kolli og hann lítur ofan í glas sitt að nýju. Það er orðið áliðið og síðasta klukku- tímann hefur straumurinn legið út úr húsinu. Ég virði fyrir mér unga og fallega þjónustustúlku sem er byrjuð að leggja stólana upp á borð. Hún er frekar lág- vaxin með ljóst og liðað hár sem teygir sig niður á herðarnar. Nú stendur hún yfir mér og segir þreytulegri röddu: „Því miður, við erum að loka“. Ég tæmi úr Raniets. 35

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.