Skólablaðið - 01.12.1985, Page 39
19. september, bjartur og fagur.
Hugleiðing um tolleringu
í Menntaskólanum í Reykjavík
Fimmtudagurinn 19. september rann
upp bjartur og fagur. Það fór ekki fram
hjá neinum, að gleði blandin spenna lá í
loftinu með nemendum Menntaskóls,
því að þennan dag skyldu nýnemar
skólans teknir í tölu nemenda hans.
Tollering er gömui hefð hér í skóla.
Áður fyrr voru busar reknir úr skólanum
af 6. bekk og síðan tolleraðir (hent upp
í loftið og gripnir), en 2., 3., 4. og 5.
bekkur horfðu á.
Eins og flestum er kunnugt, hefur
þessi siður breyst. 4. og 5. bekkur taka nú
þátt í athöfninni ásamt 6. bekk, og er
það ágætt. Á síðustu árum hafa aðrir
skólar apað þennan sið eftir okkur nema
þar er sóðaskapur meiri og aðferðir
harkalegri. M.R.-ingar öpuðu síðan
sóðaskapinn upp eftir þessum skólum.
Nú í haust reyndu skólayfirvöld að
stemma stigu við sóðaskapnum sem
kunnugt er. Kennarar áminntu nemend-
ur um að morgni busadags, að allt færi
vel fram og tómatsósu og þess háttar yrði
sleppt. Svoleiðis sóðaskapur hefur alltaf
verið bannaður, en aldrei verið framfylgt
af hörku. Helst hefur borið við, að teknir
hafa verið tveir eða þrír drukknir nem-
endur og þeir verið reknir úr skóla í viku.
Nú hugðust skólayfirvöld hins vegar
framfylgja banninu af hörku. Og laglega
byrjaði það. 40 lítrar af súrmjólk voru
gerðir upptækir í Fjósinu. Þar sem engar
kýr eru þar lengur, þótt langsennilegast,
að þessar mjólkurafurðir ætti að nota
við tolleringuna. Reyndist þar rétt til
getið, og játuðu nokkrir bolar á sig
sökina. Þrátt fyrir þessa viðvörun komu
margir ,,böðlar“ til leiks með ýmsar
vörur, síst skárri en súrmjólk, enda ekki
vanir öðru. Fyrst var allt tíðindalítið,
aðeins einn kennari gekk um og reyndi
að gæta velsæmis. En eftir að busi hafði
fengið eitthvert ógeð upp í augað, svo að
hann sá ekki, ruddist rektor sjálfur fram
á vígvöllinn, æstur mjög, og gerði tómat-
sósu, sinnep, matarlit, litbrúsa og fleira
huggulegt upptækt í stórum stíl. Gekk
hann svo rösklega fram, að hann leitaði
í vösum og fann þannig a.m.k. einn vasa-
hníf. Á sömu stundu var tilkynnt, að
tolleringu hefði verið aflýst.
Kom þessi aflýsingi þá ekki að gagni
því að þá höfðu þegar flestir losað sig við
bannvöruna í hár eða aldlit busanna.
Ljóst er, að margt fór úrskeiðis hjá
ýmsum aðilum. Skólayfirvöldum mis-
tókst að að koma í veg fyrir sóðaskap.
Og nemendur skemmtu sér ekki sem
skyldi. Tel ég, að reikna þurfi allt dæmið
upp á nýtt. Ljóst er, að einhvers staðar
verður að setja mörkin milli saklauss
gamans og sóðaskapar. Kannski mætti
leyfa blávatn, en banna matarlit og þess
háttar sóðaskap. Hins vegar finnst mér,
að viðhalda eigi réttinni, sem 4. og 5.
bekkur mynda enda er mesta fjörið tví-
mælalaust þar. En aðalatriðið er, að full-
trúi nemenda og rektor komi sér saman
um, hvað leyfist og hvað ekki. Menn
standi svo vörð um settar reglur. Það eitt
ætti að geta komið í veg fyrir þau leið-
indaatvik, sem urðu 19. september
síðastliðinn.
Kjartan Magnússon.
39