Skólablaðið - 01.12.1985, Side 42
THE
HYPE
Árið 1960 fór fyrst að bera á mönnum,
sem áttu eftir að gleðja margt tónlistar-
mannseyrað. Á þessu ári fæddust sem sé
tvö sveinbörn, sem seinna hlýddu nöfn-
unum Paul Hewson og Adam Clayton.
Tveimur árum seinna litu aðrir tveir
sveinar dagsins ljós. Þeir voru „merklegt
nokk“, Larry Mullen og Dave Evans.
Fjórtán árum eftir þann atburð, árið
1976, mynduðu þessir sömu menn
hljómsveitina THE HYPE (dópistinn).
Reyndar skipti hljómsveitin um nafn síð-
ar, og var ástæðan sögð til að forðast for-
dóma og ranghugmyndir. Tóku þeir sér
svo nafn, sem þeir töldu vonlaust að
mynda sér skoðun um eða fá ranghug-
myndir um. Skyldi hljómsveitin sem sé
heita U2.
Þeim drengjum í U2 tókst fyrst að
vekja á sér einhverja athygli, er þeir unnu
tónlistarsamkeppni, sem bjórfyrirtækið
Guinnes efndi til. I framhaldi þessa sig-
urs var þeim boðinn samningur við ír-
landsdeild CBS. Fyrsta grammófónskíf-
an, sem kom frá þeim, var þriggja laga
12-tomma, sem nefndist U2—3. Hún var
einungis gefin út á írlandi og fór beint á
toppinn þar í landi. Sömu sögu er að
segja um næstu smáskífu þeirra, An-
other day. Brátt fóru að berast fregnir til
Lundúna um geysivinsældir hljómsveit-
arinnar á eyjunni grænu. Skipti þá eng-
um togum, að tilboðum tók að snjóa yfir
hana. Fór svo að lokum, að þeir félagar
gleyptu við tilboði Islands records í apríl
1980. Næstu fjóra mánuði komu út í
Bretlandi tvær smáskífur, og kom þá
loks að fyrstu breiðskífunni. Platan fékk
það frjálslega, víðáttumikla, en jafn-
framt beinskeytta og hagyrta nafn Boy.
Almenningur og gagnrýnendur tóku
henni mjög vel, og mátti sjá hana á list-
um margra tónlistarblaða um bestu plöt-
ur þessa árs. Því næst brugðu þeir sér yfir
álana og tróðu upp í Bandaríkjunum.
Fer engum sögum af reisu þessari.
Platan October kom út í október og
hét October vegna þess, að Bono (auka-
nefni á Paul Hewson) datt nafnið í hug
kvöld eitt, er hann var að lesa 1981-daga-
talið. Hún var af mörgum talin slakasta
plata þeirra, en á henni er samt hinn stór-
góða dægurfluga Gloria og einnig Re-
joice, sem okkur þykir eigi síðri. Þrátt
fyrir það að platan fengi slæma dóma
gagnrýnenda, tók almenningur henni
vel, enda komst hún í 11. sæti breska
breiðskífulistans. í nokkrum textum
plötunnar ber nokkuð á kristnum boð-
skap, en þeir kumpánar ku vera kristnir
menn með afbrigðum.
Var þá meðalaldur hljómsveitar-
manna orðinn 21 ár.
War kom út 28. febrúar 1983 kl. 11. Á
War breyttist stíll U2 nokkuð. Platan er
greinilega hrárri en hinar fyrri, og minna
ber á gítarsnillingnum The Edge. Aftur á
móti fær Larry Mullen yngri verulega að
njóta sín, og þykir trumbusláttur hans
hinn magnaðasti á plötunni. Á War er
mikið um ádeilu á stríð og kúgun í alls
konar myndum. Fór skífan atarna beint
í fyrsta sæti breska breiðskífulistans í
fyrstu viku, og er það til marks um, hve
gífurlegar vinsældir sveitarinnar voru
orðnar á Bretlandi. En atvinnugagnrýn-
endur voru fljótir að taka sér penna í
hönd og tæta plötuna í sig, kölluðu hana
það versta sem hljómsveitin hefði gefið
út, í algerri þversögn við viðtökur al-
mennings. En þeir um það.
Eins og áður sagði, voru vinsældir U2
miklar á Bretlandi, en orðstír þeirra
hafði farið víðar. Hljómsveitin var mjög
eftirsótt tónleikasveit í Bandaríkjunum.
Þar hafði tónlistarmaður, Bruce nokkur
Springesteen, uppgötvað U2, áður en
hún naut almennrar hylli. Vakti hann at-
hygli Ameríkana á henni, og urðu margir
frá sér numdir af hrifningu. Á tónleika-