Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1985, Síða 46

Skólablaðið - 01.12.1985, Síða 46
LUNDUNA- FERÐ Seinni part ágústmánaðar lögðu nokkrir menntskælingar land undir fót, og var förinni heitið til hinnar frægu skemmtiborgar (menningarborgar) Lundúna. Hefur stór hluti M.Rringa eflaust frétt eitthvað af þessari ferð, en enginn skyldi taka mark á þvílíkum rógburði. Áttum við ferðalangarnir von á, að þessum kjaftasögum myndi linna með haustinu, en þær hafa frekar ágerst en hitt. Satt er, að margt gerðist í þessari ferð, sem best er að hafa ekki hátt um og varla í frásög- ur færandi, en að lokum ákváðum við ferðalangarnir að segja satt og rétt frá öllu, sem raunverulega bar við, ef það yrði til þess, að fólk hætti að smjatta á ógæfu okkar. Varð að samkomulagi milli mín, að ég segði frá. Magnús Kjartansson. Það var um klukkan fimm föstudag- inn 16. ágúst 1985, að við stigum upp í Langfara, þotu Flugleiða, á Keflavíkur- flugvelli. Flugtak gekk vel og flugið til Lundúna að óskum að öðru leyti en því að til orðahnippinga kom á milli Skara og Þrasa annars vegar og flugfreyja og seinna flugstjórans hins vegar um rétt farþega til að koma með og drekka eigið vín um borð í vélinni. Skari og Þrasi létu að Iokum I minni pokann eftir að hafa hlustað á sannfærandi rök flugstjórans, en hefndu sín aftur á móti eftir matinn með því að stífla öll salerni vélarinnar. En það er önnur saga. Toll- og vegabréfsskoðun gekk vel, nema bresku öryggisvörðunum þótti það grunsamlegt, að 70% farþega heimtuðu að fá að fara á salernið fyrst. Er í gegnum hreinsunareldinn var komið, skiptum við okkur í tvo hópa. Við strákarnir fórum á hið ódýra gisti- heimili, SICILY Catholic Center, af því að okkur hafði gengið illa að spara um sumarið (okkur helst illa á fé), en stelp- urnar fóru á The White House Hotel, 5 stjörnu. Var langt á milli þessara tveggja ólíku gististaða, og vil ég ráðleggja þeim hópum, er hyggja á stórborgarferð, að hafa helst ekki lengra en hálftímaakstur á milli sín. Komumst við strákarnir fljótt að því, að þau pund, sem við spöruðum með því að gista á ódýrum stað í East End, voru fljót að fara í leigubílaakstur á milli gisti- heimilis okkar og miðborgarinnar. En ekki er þar með öll sagan sögð. Okkur fé- lögum var hrúgað inn í herbergi með allra þjóða kvikindum. Hafði beiðni okkar um að vera saman í herbergjum ekki borist, þótt herbergispantanirnar hefðu komist prýðilega til skila. Skari lenti með sikileyskum „garðyrkju- manni“ í herbergi. Sá var í fríi í Lundún- um. Hann sagðist eiga heima á tveimur stöðum starfs síns vegna, Pakistan og Afganistan. En vegna stríðsins í Afgan- istan gengi ræktunin erfiðlega og þar með viðskiptin („business going down“). Sagðist Sikileyingurinn nú vera að reyna að færa afgönsku deildina yfir til Tai- lands. Skari var sammála honum um, að stríð væru hræðileg (sérstaklega fyrir verslunina), bauð upp á glas og kom svo með okkur strákunum út á lífið. Við hittum stelpurnar á Hippodrome, eins og um var talað, að vísu eftir við- komu á nokkrum pöbbum. Vildu stelp- urnar ekki tala við okkur og voru sestar að borði með lýbískum olíukóngum. Við létum að sjálfsögðu ekki bjóða okkur þetta, urðum okkur úti um eintak af Kóraninum, helltum ísraelskum vodka yfir hann og bárum eld að. Þá risu allir Arabadjöflarnir sem einn upp, og voru þeir heldur fleiri en við gerðum ráð fyrir. Sáum við okkur þann kost vænstan að hefja óskipulegt undanhald. Komumst við undan við illan leik. Vil ég sérstak- lega þakka dyravörðum skemmtistaðar- ins fyrir hve fljótir þeir eru að kalla á leigubíla. í leigubílnum ræddum við um stelpurnar, og var þungt í okkur hljóðið. Þetta fékk maður að launum fyrir að taka þær með. Við ákváðum að láta þær lönd og leið og báðum um, að ekið yrði ti) Soho Recreation Center, (félagsmið- stöð Soho), en þangað hafði Arnar Sig- urðsson oft komið áður, og bar hann staðnum vel söguna. Reyndist þessi fé- lagsmiðstöð vera í alla staði mjög skemmtileg, og dunduðum við félagar Skari skemmti sér vel í „félagsmiðstöðinni". Frá Sicily Catholic Center. 46

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.