Skólablaðið - 01.12.1985, Side 48
★ STJÖRNUSPÁIN ★
LANGTÍMASPÁ MEÐ AÐSTOÐ TÖLVLJ
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl:
Þrátt fyrir frekar leiðinlegt skamm-
degi ertu frekar léttur í bragði þessa dag-
ana. Prófin — ekkert mál. Gleymdu
samt ekki að taka tilllit til tilfinninga
þinna nánustu. Ástamálunum skaltu
gleyma um sinn, þú átt, hvort eð er, eng-
an sjens. Farðu að stunda pöbbana —
strax.
Nautið, 21. apríl—21. maí:
Útlitið er ekki bjart þessa dagana.
Óvæntar breytingar nálgast. Farðu að
íhuga nám á fjölbraut. Þú skalt gæta þín
í fjármálum, því að þú færð ekki vinnu
í sumar. Þú skalt fara að sækja tíma, því
að stelpurnar á skrifstofunni eru hættar
að brosa til þín.
Tvíburarnir, 22. maí—21. júní:
Þú ert heldur veiklundaður og lætur
aðra ráða yfir þér. Því skaltu hætta að
lána vinum þínum peninga. Óþarfa við-
kvæmni í sérstöku máli kemur sér mjög
illa. Þú skalt ekki fara á jólaballið, því að
þú verður lamin(n).
Krabbinn, 22. júní—23. júlí:
Vonbrigði á ýmsum sviðum hafa vald-
ið miklum heilabrotum, jafnvel þung-
lyndi. Hvíldu þig mikið, þvi að þú átt
eftir að lenda í ýmsum næturævintýrum
og jafnvel sitja inni. Þú mátt eiga von á
óvæntri heimsókn.
Ljónið, 24. júlí—24. ágúst:
Sjaldan hefur blásið jafnbyrlega fyrir
þér og einmitt nú. Það er samt blekking.
Ekki dugir að tvínóna endalaust við
hlutina, heldur framkvæma þá fljótt og
örugglega. Þú sleppur ekki inn á Borgina
næstu helgi, dyraverðirnir hata þig eftir
pressuballið.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept.:
Auðvitað þurfa allir að taka áhættu
einhvern tíma í lífinu. Þú getur ekki
endalaust búið heima hjá mömmu og
pabba. Farðu í megrun. Taktu þig saman
í andlitinu og farðu að njóta lífsins.
48